Leita í fréttum mbl.is

Grænmeti fyrir alla!

 aaaaaaaaaaaaaaaaa

Þetta var ekki ég, ég sverða.

Fór ekki út fyrir hússins dyr eftir miðnætti og átti nóg af sígarettum.

Er með mann til að sanna mál mitt ef þurfa þykir.

Annars er það virðingarvert að stela þó vítamínum ef á annað borð er verið að taka hluti ófrjálsri hendi.

Kreppan getur valdið allskyns næringarvandamálum þegar fólk hefur ekki efni á góðum mat.

En í alvöru talað þá sá ég frétt á annarri hvorri sjónvarpsstöðinni í gær varðandi þann skelfilega möguleika að grænmetisbændur þurfi að stöðva framleiðslu yfir vetrartímann.

Þetta kemur til af því að rafmagnið fer síhækkandi og kostar hvítuna úr augum þeirra.

Svo fer hátt rafmagnsverð beint út í verðlagið.

Ég segi fyrir mig að það eru sjálfsögð mannréttindi að fá að kaupa ferskt grænmeti og ávexti.

Nú þegar fólk þarf að spara í innkaupum til heimilisins og hvert starf er gulls í gildi þá segir það sig sjálft að við eigum ekki að þurfa að eyða dýrmætum gjaldeyri í innflutning á grænmeti nema þá að afskaplega litlu leyti.

Eða missa fólk sem vinnur við garðyrkju í atvinnuleysi.

Mér finnst sykurskattur í fínu lagi og að sama skapi eiga grænmeti og ávextir að vera á viðráðanlegu verði fyrir alla.

Það vantar einhvern skilning þarna um nauðsyn þessarar búgreinar og mikilvægi holls mataræðis fyrir börnin okkar.

Ef það er hægt að gera leynisamninga við álfyrirtæki þar sem þeir fá rafmagn á útsöluverði þá er lágmark að við styrkjum íslenska framleiðslu á mat og bjóðum grænmetisbændum (og hinum líka) upp á sama díl og álrisunum.

Hvað er að forganginum í þessu þjóðfélagi?

Urrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrr

 


mbl.is Sígarettum stolið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kolbrún Heiða Valbergsdóttir

Ég kom að máli við Ögmund fyrir kosningar og lýsti áhyggjum af hækkandi rafmagnsverði á grænmetisbændur. Hann tók í hönd mína og lofaði mér því að þetta yrði endurskoðað. Hann áréttaði einnig að það lægi beinast við þar sem þeir væru grænn flokkur og vildu styðja innlenda grænmetisframleiðslu. Eins og auli trúði ég honum og kaus VG. The rest, as they say, is history...

Kolbrún Heiða Valbergsdóttir, 28.6.2009 kl. 17:22

2 Smámynd: Villi Asgeirsson

Hvað höfum við við einhverjar gúrkudruslur að gera ef við höfum ál til að setja skattlagða kókið og bjórinn í?

Tómatarnir gætu þó komið sér vel á Austurvellinum, svo það er kannski eitthvað til í því sem þú segir.

Villi Asgeirsson, 28.6.2009 kl. 20:16

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Rio Tinto á afmæli á miðvikudaginn. Opið hús. Fjölmennum og fáum frítt ál.

Hrönn Sigurðardóttir, 28.6.2009 kl. 22:23

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Kolbrún Heiða: Villtu ekki gefa Ögmundi aðeins meiri tíma?  Það er ekki eins og hann sé farinn að rykfalla í embætti.

Villi: Borðu ál.

Hrönn: Ertu að meina þetta?  Á Ríó Tintó ammili.  Við þangað.

Jenný Anna Baldursdóttir, 29.6.2009 kl. 09:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 39
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 33
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.