Leita í fréttum mbl.is

Aumingja Framsókn

Flestir eigendur Jöklabréfa eru erlendir hefur fjármálaráðherra upplýst.

Undir flokkum "annað" eru 19,8 milljarðar.

Þetta myndi ég vilja fá sundurliðað.  Í mínum augum eru þetta stórir peningar.

En...

Ég hef verið að fylgjast með þinginu af og til í dag.

Ég veit ekki hvort ég á að hlæja eða gráta yfir nýjum tuðmeisturum þingsins.

Karlkyns Frammarar eru svo fúlir, svo svekktir og svo bitrir að það er nánast ekki fyndið.

Útúrsnúrningar og ómálefnalegur málflutningur þeirra er þeim ekki til sóma.

Er það missir þingflokksherbergisins sem veldur þessum ótrúlega neikvæðu geðbrigðum.

Var dagsskipanin í litla þingflokksherberginu eftirfarandi: Verum leiðinlegir, smámunasamir og tuðum fyrir allan peninginn (og jafnvel lengur, vó)?

Þeir virðast hafa það eina markmið að vera á móti.

Flestir aðrir virðast vilja standa málefnalega að málum.

Já ég sagði flestir en ekki allir.

Aumingja Framsókn.

 


mbl.is Íslendingar ekki aðaleigendur jöklabréfa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Stóra málið er að ekki náðist 20% niðurfelling skulda hjá hlutabréfafjárhættuspilurum á kostnað skattgreiðenda. Fjárhættuspilararnir hafa nefnilega ekki fengið nóg af almannafé til að gambla með.

Það eina sem náðist var svolítið fylgisaukning hjá Framsókn út á skuldaniðurfellinguna sem sumir kjósendur héldu að væri vegna húsnæðislána. Það er greinilega ekki nóg að mati Framsóknarþingmanna. Þeim hefur stundum tekist betur að villa kjósendum sýn síðustu vikurnar fyrir kjördag.

Sverrir (IP-tala skráð) 19.5.2009 kl. 17:42

2 Smámynd: Jenný Stefanía Jensdóttir

Góðan og blessaðan daginn vinkona,

Það fer frömmurum afar illa þessi fýlupúkastarfsemi, það fer þér hins vegar prýðilega að vera sérlegur "þingfréttabloggari". 

Með réttu eða röngu, virðist þú hafa fína sýn á hvað aðrir sófameðlimir þjóðfélagsins hugsa og segja sitjandi í sófanum, en þegar staðið er upp gefast allir upp við ofureflið "orðagljáfrið".

Áfram með þingbloggin, við þurfum að vita frá fyrstu hendi hvað umræðan getur verið lágkúrleg. 

Jenný Stefanía Jensdóttir, 19.5.2009 kl. 17:47

3 Smámynd: Þorsteinn Helgi Steinarsson

Þú ert væntanlega varðandi 19,8 milljarða að vísa í 'frétt' DV um 'eigendur' jöklabréfa:

Samkvæmt tölum sem Seðlabankinn tók saman í desember voru eftirfarandi eigendur bréfanna:

Radobank í Hollandi 78 milljarðar
Þýski fjárfestingabankinn KFW 42 milljarðar
Evrópski fjárfestingabankinn 33 milljarðar
Ameríski þróunarbankinn 22 milljarðar
Alþjóðabankinn R&D 15,9 milljarðar
Toyota 15,9 milljarðar
Rentenbank 7 milljarðar
Aðrir 19,8 milljarðar
- - - - - - - - -
Samtals: 234 milljarðar króna

Þetta eru útgefendur en ekki eigendur. Það er alls ekki það sama og frétt DV því röng.

Þorsteinn Helgi Steinarsson, 19.5.2009 kl. 17:50

4 identicon

ÉG fæ GRÆNAR BÓLURþegar Framsóknarfólk tekur til máls.

Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 19.5.2009 kl. 19:58

5 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

Hvarridda. þetta er bara svona þyrluskutl og annað smáræði.

Smá Konni on ðe sæd. Örugglega ekki meira en 500 lítrar af vsop.

Brjánn Guðjónsson, 19.5.2009 kl. 20:26

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Sverrir: Sammála.

Jenný Stefanía: Takk fyrir þetta.  Held áfram eins og enginn sé framtíðin.

Þorsteinn Helgi: Takk.

Ragna: Dittó.

Brjánn: Segðu.

Jenný Anna Baldursdóttir, 19.5.2009 kl. 20:51

7 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Sammála Sverri hér efst á athugasemdalistanum. 

 Það má bæta við að Framsóknarmenn eru auðvitað líka fúlir,  þar sem Finnur Ingólfsson er líka að tapa sínum hlut í Icelandair til ríkisins, þar sem Framsókn komst ekki í ríkisstjórn til að rétta af kúrsinn fyrir þá Finn og félaga.  Það er nú hægt að vera fúll af minna tilefni. 

Svo finnst mér athyglisverð það sem hann skrifar hann Þorsteinn Helgi, og þá sérstaklega feitletruðu orðin í síðastu línunni.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 19.5.2009 kl. 22:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 2985882

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband