Leita í fréttum mbl.is

Undrun Guðríðar

Guðríði Arnardóttur kemur verulega á óvart uppphæðirnar sem Kópavogsbær (lesist Gunnar Birgisson) hefur greitt til fyrirtækis dóttur Gunnars fyrir hin og þessi viðvik.

Ég las um þetta mál í kringum páska í DV en í kosningalátunum virðist fréttin hafa farið meira og minna fram hjá fólki.

Þar komu fram ýmis viðvik fyrirtækis dótturinnar fyrir pabba sinn ég meina Kópavog og eitthvað af þeim verkum voru greidd en höfðu ekki verið unnin.

Ég skil því ekki alveg undrun Guðríðar varðandi þetta mál.

Þar fyrir utan hélt ég að það væri fylgst með gerðum samningum og skilum á þeim af þeim sem stýra bænum.

Gunnar var létt móðgaður og stórlega misboðið þegar DV fjallaði um málið og spurði brostinni röddu (úps óheppilegt orðaval en ég læt það standa): Á að refsa fyrirtækinu af því dóttir mín á það?

En þetta téða fyrirtæki dóttur og tengdasonar virðist vera alveg svakalega hagstætt í verði og viðskiptum.

Annars er ég ekkert að gagnrýna hana Guðríði neitt voðalega en halló, er ekki kominn tími til að henda út spillingu, kunningjareddingum og einvaldsköllum og taka í staðinn upp gagnsæ vinnubrögð?

Svo næ ég ekki upp í nefið á mér yfir þessum kóngi í Kópavogi og vinum hans sem gera það að verkum að fyrir suma er gott að búa í Kópavogi.

Frekar ólekkerar týpur.


mbl.is „Kom verulega á óvart“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónína Dúadóttir

... fyrir suma greinilega

Jónína Dúadóttir, 8.5.2009 kl. 09:52

2 Smámynd: Finnur Bárðarson

Hvað er að Kópavogsbúum, að kjósa þennan rostung yfir sig ár eftir ár ?

Finnur Bárðarson, 8.5.2009 kl. 10:11

3 Smámynd: Garún

Ég er alltof svo undrandi  afhverju það er endilega svona gott að búa í Kópavogi.  Ég reyndar bjó í Kópavogi, en mér fannst það ekkert endilega betra heldur en að búa annars staðar.  Eins og staðan er í dag er bara gott að búa einhvers staðar eða bara vinna einhvers staðar.  úff...já ég kem með þér aftur 17.maí....þorir þú?

Garún, 8.5.2009 kl. 10:26

4 Smámynd: halkatla

frekar "ólekker fenjatröll" er orðfærið sem ég myndi nota

og spurning Finns #2 á vel við, hvað er eiginlega að???

halkatla, 8.5.2009 kl. 11:16

5 identicon

Núverandi bæjarstjóri Kópavogs er fulltrúi þeirra tíma þar sem allt blómstraði. GIB yrði varla kosinn í dag eða hans flokkur.

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 8.5.2009 kl. 11:27

6 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Ég man alveg þessar fréttir um málið og fannst það ósiðlegt og finnst það enn. Skil heldur ekki hvað þeir eru að kjósa þennan mann yfir sig.
Já hann er frekar ólekker svo ég noti nú ekki sterkari lýsingarorð yfir þetta fyrirbæri.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 8.5.2009 kl. 12:00

7 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Ég er líka undrandi, ég er undrandi og hneyksluð á þeim bæjarfulltrúum Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks að hafa samþykkt þetta sukk, í öll þessi ár.

 - Þeir eru samsekir, vegna þess að þeir létu þetta gerast á meðan þeir sátu og þáðu bæjarstjórnarlaun frá Kópavogsbæ fyrir það að vernda rétt og stöðu bæjarnins.

Ég skora á þá að segja af sér strax í dag.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 8.5.2009 kl. 12:40

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Takk öll fyrir innlegg.

Auðvitað á þetta lið að segja af sér strax.

Jenný Anna Baldursdóttir, 8.5.2009 kl. 12:48

9 Smámynd: Katrín

Það eru alltaf jafnmálefnalegar umræðurnar hér á þessum vettvangi....ólekker, fenjatröll rostungur eru heiti sem þið gefið bæjarstjóranum..það drýpur smjör af hverju strái hér.  Hvað skyldu vera viðeigandi orð yfir ykkur kerlingar og karlar sem blaðrið frá ykkur allt vit dag hvern, dæmið mann og annan, alla nema sjálfa ykkur...álkur, hænsn  eða kvensniftir, liðleskjur og veifiskatar, rógberar og níðingar......

Katrín, 8.5.2009 kl. 14:15

10 Smámynd: Jenný Stefanía Jensdóttir

Nákvæmlega það sem ég hugsaði þegar ég las undrun Guðríðar, og hún er að tala um s.l. 10 ár takk fyrir.

Segir eiginlega meira um máttlausa stjórnarandstöðu þar á bæ.

Og staðfestir að þessir bæjarstjórnarfundir eru kaffi og bruðu fundir.

Jenný Stefanía Jensdóttir, 8.5.2009 kl. 15:10

11 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Stóra málið er að Kópavogsbúar kjósa þennan mann yfir sig aftur og aftur og aftur og aftur og aftur og aftur.  Árni Johnsen hvað?

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.5.2009 kl. 16:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 2985766

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.