Leita í fréttum mbl.is

Muniði?

 frakki

Ég man aldrei eftir að það væri talað um kynlífsfíkla þegar ég var barn, unglingur, ung kona og alveg þangað til núna nýlega, svei mér þá.

Það var heldur aldrei talað um átfíkla, spennufíkla eða fólk með lesti og bresti, sem um sjúkdómsástand væri að ræða.

Lengi vel var heldur ekki talað um fíkla varðandi ofnotkun (misnotkun) á vímuefnum.

Það voru einfaldlega til skilgreiningar eins og rónar, dónar, fitubollur og önnur hlýleg lýsingarorð á borð við slík, sem bar vitni opnum huga og miklu fordómleysi samfélagsins.

Hm...

Ég man reyndar bara eftir Leibba dóna, ef við tökum kynlífselementið sem dæmi, sem var svo alls enginn dóni þegar á reyndi heldur áhugamaður um armbandsúr og örlítið nærsýnn með því greyjið.

Svona var lífið einfalt.

(Sem það var auðvitað ekki, allt í felum á bak við byrgða glugga auðvitað).

En ég hékk í volæði mínu inni á ljósmyndasafnsvefnum í dag og rakst þar á nokkrar myndir af fólki frá sólbekkjabrjálæðistímabilinu.

Áttatíuogeitthvað.

Munið þið hversu viðurstyggilega brúnir allir voru þá?

Með sítt að aftan?

Og herðapúða dauðans?

Ég var nefnilega brúnkufíkill.  Vissi það auðvitað ekki þá, það er bara núna sem það er að renna upp fyrir mér.

Ég hefði sennilega hent matarpeningunum í ljósabekkinn hefði ég þurft að velja (jabb).

Komst ég ekki í mína nánast daglegu ljósatíma leið mér eins og vélritunarblaði í óopnuðum pakkanum.

Eða eins og Snæfinni Snjókall nýkomnum úr yfirhalningu.

Þá sjaldan sem ég komst ekki í ljósin gat ég ekki beðið með að komast í tíma daginn eftir og þá tvo.

Svo hlustaði ég aldrei á músík á meðan ég lá í bekknum.

Mér fannst einhvern veginn að athyglin á brúnkuvinnunni yrði að vera hundraðprósent, ekkert mátti leiða hugann frá verkefninu.

Svona jafn gáfulegt og að taka sér frí úr vinnunni til að safna hári.

Er þetta ekki bilun?

Minnir mig á þessa elsku hér.

Sjitt, svona læt ég þegar ég hef lofað sjálfri mér að blogga bara fíflafærslur.

Mun leita mér hjálpar hið bráðast.

Jeræt.


mbl.is Kynlífsfíklum fjölgar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Stefanía Jensdóttir

Bráðskemmtileg fíflafærsla.

Við erum öll fíklar .... í einhverju.  Annars finnst mér fyndið þegar þú minnist á Leibba vininn, því hann barst í tal í vikunni yfir matnum.

Umræðan snerist um einelti og svoleiðis og dóttirinn var að reyna að sverja einhverja eineltis sögu upp úr okkur mætu hjónunum.  Við minntumst bæði á þrálátar spurningar til Leibba:  "hvað er klukkan" og svo sprakk krakkahjörðin úr hlátri.  Hvaðan kemur dóninn? "Ekki hugmynd ljúfan, og kláraðu nú af diskinum þínum"

Jenný Stefanía Jensdóttir, 3.5.2009 kl. 18:11

2 Smámynd: Garún

Þetta er það fyndnasta sem ég hef lesið!  Að taka sér frí í vinnunni til að safna hári er náttúrulega bara snilld.   AAAARRRRGGGG...Djöfull þykir mér vænt um þig!

Garún, 3.5.2009 kl. 21:00

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ásdís Sigurðardóttir, 3.5.2009 kl. 21:50

4 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

   Ég var nágranni Leibba dóna og sá ég oft hversvegna hann fékk "dóna" viðaukann við nafnið sitt.  Hann stóð oft á milli trjánna í Hallargarðinum og runkaði sér um hábjartan dag.  Ég var hrædd við hann. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 4.5.2009 kl. 00:44

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

JK: Oj, ég hélt að karlinn hafi verið blásaklaus.  Tek það til baka.

Takk krúttin mín fyrir að taka þátt í fíflagangnum með mér.

Jenný Anna Baldursdóttir, 4.5.2009 kl. 09:43

6 Smámynd: Laufey B Waage

Jenný þú ert yndisleg.

Laufey B Waage, 4.5.2009 kl. 09:49

7 Smámynd: Emil Örn Kristjánsson

Viðurstyggilega brúnir... og svo tók fólk e-ð sem hét Orobronze til að verða enn brúnna. Mig minnir samt að það hafi orðið appelsínugult.

Emil Örn Kristjánsson, 4.5.2009 kl. 14:03

8 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ómæ.... Rifjast upp fyrir mér allt appelsínugula fólkið.....

Hrönn Sigurðardóttir, 4.5.2009 kl. 19:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 2985807

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband