Leita í fréttum mbl.is

Ég er glötuð!

Þetta vorið hef ég hagað mér algjörlega út úr korti með margt.

Vígin falla hvert af öðru, prinsippunum mínum hent á gólfið og þar hef ég hoppað á þeim og sparkað þeim út í horn, eins og um úldnar borðtuskur væri að ræða.

Þetta er skelfilegt!

Það prinsipp sem minnst er heilagast, þetta með að hata Júróvisjón í verki og horfa ekki á neitt sem tengist því er kolfallið.  Algjörlega farið í vaskinn!

Ég gæti tekið "stjórnmálamanninn" á þetta og hent ábyrgðinni á þrálát veikindi sem hafa verið að hrjá mig undanfarið og því haldið mér meira og minna innilokaðri á menningarheimili mínu hér í hjarta borgarinnar, en ég ætla ekki að gera það.

Þetta varðaði bara svona.

En mikill rosalegur urmull af glataðri músík er í þessari keppni.

Algjör ráðstefna fyrir hæfileikalausa lagasmiði.

En það eru undantekningar.

Plebbinn ég féll fyrir Noregi.

Og Jóhönnu Guðrúnu.

Svo horfði ég á sænska panelinn (í þættinum þar sem Eiríkur Hauks sat til skamms tíma og gaf álit sitt), og þar voru menn yfir sig hrifnir af okkar framlagi með Jóhönnu Guðrúnu.

Nema ein kerling, en hún var mjög óaðlaðandi manneskja (Halo) hinir fimm féllu í stafi.

Ætli við vinnum?

Nei, en það mun Noregur gera, ekki spurning.

Úff, bara að mér fari að batna, þetta er að eyðileggja töffaraímynd mína algjörlega.

Later og góðan daginn.


mbl.is Íslandi spáð góðu gengi í Moskvu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Þetta var nú það skásta af afspyrnu lélegri dagskrá í gærkvöldi... en kannski var bara flensan að villa mér sýn...

Farðu vel með þig og vertu dugleg að taka lýsið þitt

Jónína Dúadóttir, 3.5.2009 kl. 09:35

2 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Hreint ætla ég að vona að þér batni fljótt svo þú getir nú horft á
Eurovision hvenær sem það verður nú haldið, í alvöru þá er nú kominn tími á betri heilsu, en náttúrlega ertu ein af þeim sem finnst alveg óþarfi að þú farir til læknis eða gerir eitthvað með það sem fólk er að segja þér svona með te, C vit og Sólhatt það bjargar mér næstum alltaf, það er ef ég man eftir að taka það.
En svona í lokin á þessari ritgerð þá horfi ég aldrei á Eurovision.
Kannski maður verði að fara að vera inn.

Knús til þí elskan
Milla

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 3.5.2009 kl. 09:35

3 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Úff láttu þér batna kona!!

Ég hef bara heyrt eitt lag, finnska, og það var ferlega gott! Og ég sem er ekkert lasin!

Heiða B. Heiðars, 3.5.2009 kl. 11:20

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hef ekki heyrt þetta finnska, bæti úr því.

Takk Heiða mín, er að fá röddina, smátt og smátt, en hún er enn hryllilega ljót.

Milla: Þú verður að bæta úr þessu kona.  Er að taka mínavít.

Jónína: Takk elskan, en ég tek aldrei lýsi.  Oj.

Jenný Anna Baldursdóttir, 3.5.2009 kl. 11:23

5 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Bæti úr því, flott að taka mínavít.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 3.5.2009 kl. 11:59

6 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég var ekki búin að heyra þetta norska, það er bara gott, annars finnst mér Jóhanna Guðrún flottust, allt annað er óttalegt rusl. Batni kveðjur til þín.

Ásdís Sigurðardóttir, 3.5.2009 kl. 13:44

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég hef misst af þessu öllu, en þetta norska lag finnst mér frábært.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 3.5.2009 kl. 16:01

8 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Jenný þó...þetta er bara umburðarlyndið, sem kemur með "bættum" aldri

Norska lagið súperflott, en Jóhanna Guðrún tekur þetta, þ.e. ef hún kemst upp úr undankeppninni

Sigrún Jónsdóttir, 3.5.2009 kl. 16:07

9 identicon

Hann er óttalegt kjútípæ sá norski.

Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 3.5.2009 kl. 17:16

10 Smámynd: Emil Örn Kristjánsson

Einu sinni fylgdist maður með þegar Ísland keppti í Evróvisjón. Eftir að farið var að syngja á útlenzku finnst mér þetta ekki vera "mitt lið".

Emil Örn Kristjánsson, 3.5.2009 kl. 17:54

11 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Takk öll fyrir innlitið.

Ég ætla að fylgjast með án hljóðs.

Nema á meðan Ísland syngur nottla.

Jenný Anna Baldursdóttir, 3.5.2009 kl. 17:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 2985878

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband