Leita í fréttum mbl.is

Engin dömubindaauglýsing í sjónmáli

Frábært, peningar sem liggja steinþegjandi inni á banka.

Verst að þjóðin fær þá ekki inn á reikninginn.

Annars hef ég ekki nokkurt andskotans vit á neinu lengur.

Það er svo mikið af "sérfræðingum" sem vita hvað eigi að gera okkur til bjargar, en því miður kannski, þá eru þeir ekki þar sem ákvarðanirnar eru teknar.

Ég hef ákveðið að nota brjóstvitið héðan í frá.

Fyrirgefið en helbláir Sjálfstæðismenn sem vilja ganga í ESB segja mér ekkert um eitt eða neitt.

Ég hreinlega treysti ekki Sjálfstæðismönnum.

Á laugardaginn kemur þá steðjum við að kjörborði.

Ég ætla að kjósa VG og er búin að gera það upp við mig svo fremi sem ekkert stórkostlegt gerist.

Ég held að það sé ekki hægt að kjósa yfir sig kraftaverk í stöðunni, betri heim, fiðluspil, dömubindaauglýsingalíf, blóm og stórsteikur.

Því eru Sjálfstæðismenn ásamt Framsókn búnir að klúðra svo fokking big time að það er ekki til neins að láta sig dreyma.

Valið hjá mér snýst ekki um neina útópíu, ég tel mig vita nokkurn veginn hvað býður, ég kýs einfaldlega þá sem ég treysti best til að vera heiðarlegir og raunsæir og þá sem ég tel að muni forgangsraða þannig að við venjulega fólkið verðum ekki notuð sem fallbyssufóður í fremstu víglínu afleiðinga efnahagshrunsins.

Borgarahreyfingin er auðvitað möguleiki líka, en ég ætla að hafa þetta svona.

Já og talandi um Framsókn.

Það þarf ekki spádómsgáfu til að sjá að þá dreymir um heitar samvistir með Sjálfstæðisflokknum.

Í öllum þáttum sem frambjóðendur koma saman þá eru þeir ofan í kokinu hver á öðrum, jánkandi og jáandi.

Það var frábært að horfa á Sjóð 9 og Birkir Jón á Borgarafundinum síðasta (minnir mig).  Birkir Jón jánkaði svo brjálæðislega öllu sem Sjóðurinn sagði að ég var skíthrædd um að hann yrði höfðinu fátækari ef þátturinn yrði mikið lengri.

En við erum Zimbabwe norðursins börnin góð.

Úthrópaðir ómerkingar án þess að hafa lyft litlafingri til að orsaka orðstírinn.

Endilega ekki biðja um meira af sama á laugardaginn.


mbl.is Óvænt fé í íslenskum banka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Blessuð vertu .Það er gott að þú ert ekki í vafa lengur ,í sambandi við kosningarnar ,en ég er samála þér að Sjallarnir finnst mér geta hvílt sig áfram ,en þeir eru bara eiginhagsmálapúkar ..

Jón Reynir Svavarsson (IP-tala skráð) 19.4.2009 kl. 17:26

2 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

við erum þó sammála um að kjósa ekki yfir okkur Sjóð 9 & co

Brjánn Guðjónsson, 19.4.2009 kl. 17:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 2985743

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.