Leita í fréttum mbl.is

Askja Pandóru ekki opin enn

pandora 

Ég er komin með upp í kok, fyrir löngu, af spillingarfréttum.

Ekki að ég vilji hætta að fá þær, ekki misskilja mig.

Hvers lags fólk höfum við alið við Íslendingar?

Siðlausa peningamenn sem gera það sem þeim sýnist, án tillits til laga og reglna?

Þrátt fyrir að ekkert lát sé á fréttum af alls kyns sukki og svindli hef ég sterklega á tilfinningunni að askjan hennar Pandóru sé rétt að opnast.

Svo mikið meira á eftir að koma í ljós.

Er það nema von að maður sé hvekktur?

Nei, auðvitað ekki.

Ég vil gera þá stjórnmálamenn ábyrga sem gerðu þetta mögulegt.

Munið að þetta bitnar fyrst og síðast á okkur almenningi, ekki sukkbarónunum.

Munið það þegar þið steðjið á kjörstað.


mbl.is Fyrrum starfsmenn Askar Capital grunaðir um lögbrot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Davíð Löve.

Er fólk svo hissa á því að stuttbuxnadeild íhaldsins rífi kjaft? Það er með ólíkindum hvílík ósvífni skín úr andlitum þessarra drengja. Þeir drulla yfir allt sem heitir siðferði og reglur. Okkur kemur bara ekkert við hvað þeir eru að gera að þeirra áliti. Þeir telja sig guðs útvalda eins og gyðingarnir segja.

Davíð Löve., 8.4.2009 kl. 13:04

2 Smámynd: Finnur Bárðarson

Þetta er alltaf kallað lögbrot þegar hvítflibbarnir eiga í hlut en skinkustuldur kallast hins vegar afbrot.

Finnur Bárðarson, 8.4.2009 kl. 13:16

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Birgir: Ég sé hvergi einn staf um Sjálfstæðisflokk í pistlinum.

 Þarftu ekki að fara og láta líta á þig?

Jenný Anna Baldursdóttir, 8.4.2009 kl. 13:40

4 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ég er alveg hrikalega sammála kreppukallinum!

Hrönn Sigurðardóttir, 8.4.2009 kl. 13:52

5 identicon

Þegar tíkin er ekki lagi þá verða hvolparnir það ekki heldur.

Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 8.4.2009 kl. 15:16

6 identicon

Það fer ekki á milli mála að þarna áttirðu eflaust meira við ''Sjálfgæðisflokkinn'' enn í honum margir virtir oflátungur ,, Reyndar svo margir að ef þeir féngju allir viðeigandi dóma þyrfti að breyta Tónlistarhöllinni á Batteríinu okkar í fangelsi og dygði ekki til,, Samt má gera ráð fyrir að ekki verði af slíku,,Jú þeir sem verða látnir sæta ábyrgð verða þeir sem ekkert hafa saknæmt gert, þeir sviptir öllu og gerðir að öreigum, sem líklega síðan flýja land atvinnu- og eignalausir, enda velkomnir með sínar vinnandi hendur hvar sem er í hinum siðmentaða heimi,,Þá liggur líklega best við að breyta Íslandi í eina risastóra fangaeyju eins og Rússinn stakk uppá á sínum tíma,, 

Bimbó (IP-tala skráð) 8.4.2009 kl. 15:21

7 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Góð spurning hjá þér Jenný:  "Hvers lags fólk höfum við alið við Íslendingar ?"

-Sem nöðrur okkur við barm.

Gallinn er bara sá að nöðrurnar eru líka hluti þjóðarinnar.   Það er ekki eins og þær hafi komið utanfrá.   Það er kannski sárast.

Við sitjum uppi með þær og þeirra siðleysi.   Svo tala stjórnmálamenn margir um "tilfinnanlegan skort á trausti".   I wonder why...

Hildur Helga Sigurðardóttir, 8.4.2009 kl. 17:17

8 identicon

NO NO NO !!! It is all Gordon Brown and China and America and outer mongolia that is to blame..... !!!!!!

Fair Play (IP-tala skráð) 8.4.2009 kl. 18:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 9
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 46
  • Frá upphafi: 2985788

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband