Leita í fréttum mbl.is

Íslendingurinn Seth í góðum málum

Er það ekki 2007 að vera að kafna úr ást á eigin nafla og þá er ég að tala um þjóðernisnaflan?

Ég held það sko.

Erum við ekki hætt að halda að við séum betri, frábærari, klárari og krúttlegri en aðrar þjóðir?

Það er ekki par fallegt að troða þjóðerni upp á fólk, einkum og sér í lagi íslensku þjóðerni á þessum síðustu og verstu.

Það er ábyggilega nokkuð stór frétt þegar McCartney, Ringo, Donovan, Eddie Vedder og Sheril Crow koma fram á einu og sama brettinu.

Algjört dúndurlið í tónlist sem kemur saman á tónleikum í Radio City Music Hall í N.Y. til styrktar velgjörðarsjóði leikstjórans David Lynch.

Í fréttinni stendur svo orðrétt og framkallar aulahroll upp á mikið á Richter hjá moi:

"Síðast en ekki síst verður þarna á meðal íslenski söngvarinn Seth Randolph Sharp sem er mörgum að góðu kunnur af sönghæfileikum sínum en hann tók m.a. þátt í Söngvakeppni Sjónvarpsins í fyrra auk þess að hafa leikið og sungið í ófáum Broadway-sýningunum."

Seth vinurinn er auðvitað ekki íslendingur en hefur búið hér um einhvern tíma.

Seth krúttið er í bakraddakór á tónleikunum.

Þú þarna blaðamaður; fáðu ekki hjartaáfall af æsingi.

Annars kætti þetta mig ótrúlega.

Ég vona að þessi blaðamaður sem skrifar fréttina sé að fíflast í okkur lesendum Moggans.

Þetta getur ekki verið í alvöru, ha?  Segið mér að við séum ekki svona miklir ógeðisplebbar, ha?

Fyrirsögnin er auðvitað drepfyndin.

Seth á sviði með McCartney og Ringo.

En halló, ég hélt að við værum orðin svo ógeðslega auðmjúk og raunsæ eftir hrunið.

Af hverju má fólk ekki millilenda á Íslandi t.d. án þess að vera kallaðir Íslandsvinir?

Hvað neimdroppingárátta er þetta eiginlega?

En Seth, þú ert svo mikið krútt, gaman að hafa þig, ekki láta nýja þjóðernið glepja þér sýn, ekki springa úr monti og hortugheitum.

Segi svona.

Grátið mér heilu helvítis stórfljótunum.


mbl.is Seth Sharp á sviði með McCartney og Ringo
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Auður Proppé

 Jebb, þú ert í stuði.

Auður Proppé, 4.4.2009 kl. 20:47

2 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Við erum laaaangbest.....hrundum fyrst......verðum fyrst uppúr hruninu...og Barack Obama vill koma í heimsókn

Sigrún Jónsdóttir, 5.4.2009 kl. 00:16

3 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Sko Elskan.

Garinn er bara búin að vera hellings tíma í ljósalömpum SEE´

hann getur ekkert gert það því hvað hann er ,,sætur"

mibbæo

Bjarni Kjartansson, 5.4.2009 kl. 00:50

4 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 5.4.2009 kl. 02:52

5 Smámynd: María Guðmundsdóttir

 hahaha..thetta er svooooooooooooo rétt hjá thér...en madur hélt ad thessi "rosti" hefdi lækkad vid "hrunid"...en thad greinilega hrundi ekki...

gódan sunnudag

María Guðmundsdóttir, 5.4.2009 kl. 06:54

6 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Jónína Dúadóttir, 5.4.2009 kl. 07:43

7 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Já sæll, hver í andsk... er nú þessi Seth Sharp?  Annars verður þetta bara fínn sunnudagur.  Kveðja inn á kærleiks. 

Ía Jóhannsdóttir, 5.4.2009 kl. 08:17

8 Smámynd: Edda Björk Hafstað Ármannsdóttir

Jenný Anna!

Ert þú bæði búin að gleyma máltækinu "aðgát skal höfð í nærveru sálar" og skilmálum þessa bloggs?

Þú hefur rétt fyrir þér að við Íslendingar erum margir með þjóðernisrosta, en það er þjóðarsálfræðileg og margsönnuð staðreynd um lítil lönd og eysamfélög.  Og íslenska þjóðin er sú minnsta meðal tæknivæddra þjóða! Þér er skilt og leyfilegt að skrifa greinar um það!

En það segir mest um þið sjálfa þegar þú gerir þetta að persónulegri árás. Sama hefði verið skrifað um aðra Íslendinga. Það gefur mér tilefni til að spyrja:

Mig langar að vita hvort þú hefði skrifað það sama um aðra Íslendinga ? Því já maðurinn er Íslendingur - hefur búið hér í áraraðir - og er íslenskur ríkisborgari! Þú vilt kannski  líka skrifa svona um Dorrit, hún er líka með nýlegt þjóðerni. Það er ekki eins og Seth hafi skrifað eða beðið um að þessi frétt yrði orðuð á þennan hátt. Hann vissi af greininni á sama tíma og við hin. Ef það er einhver Íslendingur sem er að: (tilvísun) "springa úr monti og hortugheitum."þá er það að minnsta kosti ekki hann.

Þú ættir að beina orðum þínum að blaðamanninum ef þú þarf "Jante low" fylgjandinn og útlendingahatarinn í þér þarf endilega að snobba svona rosalega.

Maðurinn er líka öðruvísi á litinn en megnið af íslensku þjóðinni. Ég sé það að minnsta kosti einn svarenda þinna hefur tekið eftir því. Það sýnir hvað mörg okkar Íslendinga erum ekki bara útlendingahatarar heldur höfum líka mikla kynþáttafordóma.

Jený Anna, þú berð mikla ábyrgð sem einn virkasti og mest lesni bloggari landsins. Ég mæli með að þú biðjir Seth afsökunnar strax og hvetjir þá af viðhlæjendum þínum sem líkt og þú hafa haft meiðandi ummæli að gera slíkt hið sama. Annars máttu búast við lögfræðilegum eftirmálum (sem fordæmi er fyrir) verði sá hluti færslunnar látinn standa. Ég er búin að hafa samband við stjórnendur bloggsins og mun sem umboðsmaður Seths fylgja málinu eftir.

Edda Björk Hafstað Ármannsdóttir, 5.4.2009 kl. 09:35

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Afsökunarbeiðni er hér með komin á bloggið.

Jenný Anna Baldursdóttir, 5.4.2009 kl. 10:15

10 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Er ekki að skilja neitt frekar en vant er, svona er að vera hæghugsandi.

Knús í daginn
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 5.4.2009 kl. 13:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 7
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 2985874

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband