Leita í fréttum mbl.is

Frænka hennar Gretu systur

Logos hefur ekki unnið fyrir Baug svona beinlínis.

Þetta kom fram í Kastjósi kvöldsins.

En þeir hafa unnið fyrir FL-group sem tengist Baugi svona rétt aðeins eða hvað?

Svo unnu þeir fyrir Kaupþing sem voru með verkefni fyrir Jón Ásgeir, en ó, það var ekki Baugur sko.

Jenný Anna Baldursdóttir ertu dóttir Önnu Bjargar Jónsdóttur frá Hafnarnesi?

Nei,  en hún mamma alsystra minna.

En ertu mamma Helgu Bjarkar Laxdal?

Nei,nei, alls ekki, ég er sko amma sonar Helgu hans Jökuls.

og Dóra gamla á nesinu er ekki frænka mín hún er frænka hennar Gretu systur.

Ókei, nú skil ég, það er eftir þessu kerfi sem Logos flokkar hæfi og vanhæfi.

Djísús hvað ég er treg. 

Þið hljótið að skilja þetta líka, er það eggi bara?

Logos hefur ekkert með Baug að gera og því fullkomlega eðlilegt að þeir séu með skiptastjóra stærsta þrotabús íslandssögunnar á sínum snærum.

Ekki málið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvar væri ég ef ekki værir þú hér til að útskýra hlutina fyrir mér.

Núna skil ég þetta nefnilega svo mikið betur eða ....

Ásta B (IP-tala skráð) 17.3.2009 kl. 21:00

2 Smámynd: Hlédís

Fín ættfærsla og þrælpassar. Stendur í Íslendingabók, sannað mál.

Hlédís, 17.3.2009 kl. 22:51

3 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Þú ert yndisleg

Sigrún Jónsdóttir, 17.3.2009 kl. 23:07

4 Smámynd: Steingrímur Helgason

Ég efazt um ættbókarfærzlu þezza, grunar að þú sér rángmæðruð.

Steingrímur Helgason, 18.3.2009 kl. 00:02

5 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

  Góð samlíking. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 18.3.2009 kl. 00:27

6 identicon

svo erum við bróðir minn bara mæðrasynir svo þetta sé allt á hreinu með skyldleikann.

zappa (IP-tala skráð) 18.3.2009 kl. 01:26

7 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Ónei, þarna eru sko engin svona beinlínis tengsl á ferð. 

  Á eitthvað að fara að persónugera það ?

Hildur Helga Sigurðardóttir, 18.3.2009 kl. 01:32

8 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

  Eigum við að ræða þetta eitthvað!

Ía Jóhannsdóttir, 18.3.2009 kl. 09:12

9 identicon

Hafnarnes - Fáskrúðsfirði?

- Svo er til tvíburahálfsystir.

Ingibjörg Þ. Þorleifsdóttir (IP-tala skráð) 18.3.2009 kl. 21:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 9
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 2985764

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.