Leita í fréttum mbl.is

Takk, takk, takk

Það bjargar sálarheill minni að heyra að Eva Joly, hefur verið ráðin ráðgjafi íslenskra yfirvalda varðandi rannsókn á efnahagsbrotum tengdum hruninu.

Eva segir það brandara hversu fáir menn vinna við að rannsaka bankahrunið.

Eva: Þú ert ekkert búin að sjá nema brotabrot ennþá.

Öll þessi mál og viðbrögð við þeim sýna fram á ótrúlega afneitun stjórnvalda í kjölfar hrunsins og það má segja að hún ríki enn í ýmsum herbúðum.

Að minnsta kosti er bullandi afneitun í gangi hjá Sjálfstæðisflokki nú eða þá að þeir hafa góða ástæðu til að halda öllu í myrkrinu.

Mikið skelfing er það góð tilhugsun að sérfræðingur efnahagsbrotum skuli koma að hruninu hjá okkur.

Einhver með bein í nefinu, ótengdur með öllu.

Sem nýtur alþjóðlegrar virðingar í starfi.

Takk Óðinn, Þór, Búdda, Ésús og allir hinir.

Úff.


mbl.is Gagnrýnir fámenna rannsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hilmar Gunnlaugsson

Sammála þér að ráðning Evu Jolly sé ánægjuleg.

Hilmar Gunnlaugsson, 10.3.2009 kl. 18:38

2 identicon

Sammála, bestu fréttir lengi að fá Evu Joly í lið með okkur.  Fyllir mann loksins smá von. 

ASE (IP-tala skráð) 10.3.2009 kl. 20:11

3 Smámynd: Kolgrima

Ég er himinlifandi og vona innilega að hún standi undir (mínum) væntingum - sem er um það bil ómögulegt fyrir dauðlegan, en...

Kolgrima, 10.3.2009 kl. 21:28

4 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Tek undir hvert orð sem þú skrifar Jenný Anna, þvílík heppni að fá hana í þessa vinnu. 

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 10.3.2009 kl. 21:51

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Kolgríma: Ég á í sama vanda.  Það fittar enginn inn í mesjúrmentið.  Hehe.

Sammála.

Jenný Anna Baldursdóttir, 10.3.2009 kl. 21:56

6 Smámynd: Kolgrima

Hún er góð ef hún er hálft eins góð!

Kolgrima, 10.3.2009 kl. 22:03

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já þetta var gott framtak hjá Jóhönnu og Steingrími.  Þau hlusta greinilega á fólkið, sem er gott.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 11.3.2009 kl. 09:25

8 Smámynd: Bjarni Kjartansson

HEfðilíklega boðið henni í glas á barnum niðri í ,,hellinum" í Glaumnum hér forðum.  Semsagt flott kjedling.

Er líka með toppstykki tila ð bæta útlitið.

Vonandi líka Bitch.

Gersamlega laus við vorkunnsemi og  ,,ég vísa þessu nú barra frá dómi" syndrome.

Það er mjög mjög furðulegur misskilningur hjá þér og sumum öðrum,--svona um helmings þjóðarinnar-skó-- að Sjálfstæðismenn velji að allt sé í myrkrinu.

VIÐ sem erum alvöru ÍHALD viljum bara sumt í rökkrinu,--þú skilur, ekkert dónó,--bara svona prívat, skiluru?

Alvöru Sjálfstæðismenn vilja hag fólksins sem mestan og að allir séu í raun frjálsir að vinnusinni án þess að vera heftir af einhverjum frekjuhundum, sem við Matti Bjarna köllum einu nafni GRÓÐAPUNGA og hann Einar minn Oddur var svo penn að benda á, að ekki fælist endilega í því orði kyn skipting.

Benti undirrituðum á, að hann væri Gleðimaður og ef við (Einar og ég) værum konur, yrði eflaust erfiðara að nefna okkur Gleði --eitthvað, SEE??

Annars er að styttast í helgina.

Ætla að rölta á nokkrar skrifstofur prófkjörskandidata og hlusta á, hvað þeir eru allir flottir og lausir við spillingu, svona EKKI  neitt 2007 legir --eða þannig.

Fæ reyndar smá aulahroll, þegar sumir vílerar og dílerar eru nú farnir að klæðast lopapeysum og tala um fallegu blómin EN batnandi og allt friggings það.

Bæ Bæ luv

Mibbó

Bjarni Kjartansson, 11.3.2009 kl. 10:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 2985810

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.