Leita í fréttum mbl.is

Ég verð ekki eldri

Bara smá lífsmark frá mér.

Ég er í raun gapandi yfir því sem ég verð vitni að núna í þessum skrifuðu orðum.

Geir Haarde er í ræðustól á Alþingi og er að ræða stjórnarskrárbreytingar.

Það sem hissar mig og furðar er að þessi dagfarsprúði maður er bálillur.

Fer hamförum svona miðað við það sem hann er þekktur fyrir.

Snýr sér að Jóhönnu og hundskammar hana.

Ég held að ég verði ekki eldri.


mbl.is Fjórða stigs málþóf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mikill rosalegur léttir verður það fyrir þjóðina að losna við karlfauskinn af þingi !!!

Stefán (IP-tala skráð) 10.3.2009 kl. 14:48

2 Smámynd: Fannar frá Rifi

mikið er það nú sorlegt fyrir lýðræðið og stjórnarskránna í landinu að hér eftir og um alla framtíð muni verða gengið upp með það að einfaldur meirihluti á þingi geti ég krafti meirihlutasíns knúið á breytingum á stjórnarskrá lýðveldisins. eitthvað sem aldrei hefur gertst síðan Íslendingar fengu fyrst stjórnarskrá.

já lýðræðisást vinstri flokkana er greinilega engin og allt er gert og öllu má fórna fyrir tímabundna fylgisaukninu í skoðannakönnunum. 

Fannar frá Rifi, 10.3.2009 kl. 15:09

3 identicon

Ertu viss um að hann Geir sé ekki bláillur??

Þetta er allt frekar nöturlegt.

Ingibjörg Þ. Þorleifsdóttir (IP-tala skráð) 10.3.2009 kl. 18:38

4 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Ég settist niður gapandi af undrun yfir ákefðinni og hávaðanum í Geir, ég verð að viðurkenna að ég hélt ekki að hann ætti þetta til,  að vera svona ómálefnalegur.  -

Og hvernig hann talaði um þjóðina, ég hélt ekki að hann liti svona niður á kjósendur sína, ég varð alveg miður mín -

Þar til,  að mér varð ljóst,  að hann hefur engu að tapa,  heldur allt að vinna,  til þess að þjóðin fái ekki að sjá svart á hvítu hvernhig hann og aðrir forystumenn í ríkisstjórn s.l. 17 ár hafa athugasemdalaust gefið allar auðlindir þjóðarinnar.

 Þessvegna berst hann nú, eins og rjúpan við staurinn, og gefur skít í allt og alla, eingöngu til að koma í veg fyrir að krafan um "stjórnlagaþing" nái fram að ganga. -

 Því að meö stjórnlagaþingi hefur verið stigið fyrsta skrefið í lýðræðisátt á Íslandi, og þar með hafa hann og hans líkar misst völdin, sem þeir ætla sér að hafa á bak við tjöldin, hér eftir sem  hingað til. -

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 10.3.2009 kl. 19:01

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tek undir þetta með Lilju, þetta er að mínu mati hárrétt greining.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 11.3.2009 kl. 09:27

6 Smámynd: Geir Ágústsson

Er Geir H. Haarde hin nýja Jóhanna Sigurðardóttir í ræðustól Alþingis?

Geir Ágústsson, 11.3.2009 kl. 20:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband