Leita í fréttum mbl.is

Viðbygging fílabeinsturns

Það er einn af styrkleikum Sjálfstæðisflokksins, á að vera það til langrar framtíðar, að flokksmenn verða að geta gagnrýnt ákvarðanir og stefnu, jafnvel með stórum orðum ef því er að skipta,“ segir Vilhjálmur Egilsson, formaður endurreisnarnefndar.

Gott mál, þeir mega rífa kjaft.

Almenningur mátti líka mótmæla að mati flokksins.  Geir Haarde margsagði að það væri sjálfsagt mál að fólk sýndi þann lýðræðislega rétt sinn í verki.

(Svo framarlega sem það var ekki hávaðasamt, subbulegt eða á annan hátt óþægilegt).

Varðandi rétt Sjálfstæðismanna til að gagnrýna og hafa uppi stór orð þá á ég þá von þeim til handa að forystan geri ekki með þá gagnrýni eins og með mótmælin.

Láti eins og hún heyri hvorki né sjái og haldi sínu striki.

Í algjörri afneitun á raunveruleikann.

Ætli þeir fari ekki að byggja við fílabeinsturninn?

Þetta er orðið allt of lítið rými fyrir allt þetta fólk.

Úje


mbl.is „Flokkurinn þoli stór orð"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Helvítis risaeðlur! Þoli ekki þennan flokk.... og ég get svo svarið það að ég er búin að setja flesta vini mína sem kjósa þennan hroðbjóð út í kuldann! Skil ekki hvernig þau urðu vinir mínir til að byrja með ....hahahaha

Heiða B. Heiðars, 2.3.2009 kl. 11:30

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Heiða: Nú eru nýir tímar, héðan í frá mun ég krefjast flokksskírteina af öllum sem ég þekki.

Múhahaha

Jenný Anna Baldursdóttir, 2.3.2009 kl. 11:31

3 Smámynd: Anna

Flokkum landmenn.

Anna , 2.3.2009 kl. 11:47

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Æ já ég vona að Sjálfstæðisflokkurinn verði ekki í aðstöðu til að stjórna næstu árin.  Ég er stundum með kvíðahnút í maganum við tilhugsunina um nýja ríkisstjórn með Framsókn og Sjálfstæðismönnum.  Það er eiginlega komið nót af þeim í bili.  Má ég þá frekar biðja um Samfylkinguna og Vinstri græna, ekki væri verra að Frjálslyndi flokkurinn yrði þar innanborðs. 

En ég held að Samfylkinginn yrði sterkari án Íngibjargar Sólrúnar.  Og mér finnst Jóhanna hafa veikst við að taka undir þennan söng Ingibjargar um að standa með henni.  Hún átti að taka slaginn, sem Jón Baldvin rétti henni.  Ég heyri margar óánægjuraddir meðal samfylkingarmanna hér á þessu svæði með þessa ráðstöfun.  Og að höfða til veikinda sinna var í hæsta máta ósmekklegt. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.3.2009 kl. 11:57

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Komið nóg af þeim.  vildi ég sagt hafa.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.3.2009 kl. 11:57

6 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Elsu kerlingar mínarVið munum stjórna með einum eða öðrum hætti, það er borðleggjandi.

Samfó stillir upp að hætti Kommúnista í Kína,    "Þetta er SAMEIGINLEG ákvörðun, Ingibjörg í 1. Jóhanna í 2.  og svo má _Össur fá 3. sætið.  og svo að auki---Dagur (ei meir) verður vara Ingibjörg"""""

Við aftur á móti rífumst eins og hundar um hvaðeina.

Ég hef verið að rífats um EES en ekki komið því í gegn að við segjumokkur úr því hel..appírati.

Kanski fara einhverjir að taka friggings tappana úr eyrunum á sér.

Tappar eiga við sumsatðar EN EKKI Í eyrynum.

Halló

MEira sinna skvísurnar mínar.

Mibbó

töffari af Guðsnáð.

Það er "sameiginleg ákvörðun"!!!!!

Bjarni Kjartansson, 2.3.2009 kl. 12:24

7 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Ég held ég pakki bara niður og flytji af landi brott ef Framsókn og Sjálfstæðismenn taka aftur við stjórnartaumnum ..   

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 2.3.2009 kl. 13:19

8 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

það varð auðvitað að verja íslenska ástandið útávið! . en að ekkert skyldi gert innávið það er ótrúlega einfeldningslegt! . en nú vil ég fara að frétta hvað á að gera Í DAG OG Á MORGUN! . það er nóg af fortíðarkjaftæði! . og búið að skipta öllum út . nema Þorgerði og Einari Guðfinnss. , Ingibjörgu Sólrúnu, Össuri og Jóhönnu

Jón Snæbjörnsson, 2.3.2009 kl. 13:27

9 identicon

Ég á í rökræðum við fólk í öðrum flokkum og ekki flokkum en þetta eru allt vinir mínir. eruð þið ekki hér orðin ansi svona eins og einn sagði að hætta á að gerðist hér á landi eins og í Þýskalandi á nasistatímanum að stríð byrjaði á milli ólíkra sjónarmiða og ein stefna væri sú eina rétta.

Óskar (IP-tala skráð) 2.3.2009 kl. 14:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 2985776

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.