Leita í fréttum mbl.is

Af öfugum Dorian og fortíðarsvengd

Það er laugadagur í mér, sem í mínu tilfelli er ágætt, þrátt fyrir eitt og annað sem ekki er svo bærilegt og ég fer ekki nánar í hér.

En ég er búin að þrífa eins og dauðadrukkinn fraktskiptsjóri, hér hefur ekkert sloppið.

Svo kveikti ég á kertum og hóf að lesa slúður.

Kreppan hefur svo sannarlega gert mér hluti þegar ég er farin að gleypa í mig fréttir af vesalings Michael Jackson.

Hvað er með manninn?  Hann er annað hvort haldinn Dorian Grey syndróminu með öfugum formerkjum og það liggur einhversstaðar falið málverk af íðilfögrum Mikka, eða þá að hann hefur lent á lýtalækni á tremma og niðurtúr.

Allt í einu langar mig í brenni.

Munið þið eftir því?

Nú eða apótekaralakkrís, úr gamla Vesturbæjarapóteki.  Þessi með stimplinum.

Eða snúið krummalakkrísrör.

Litla kók eða ískalda Póló.  Nei annars, ananas frá Sanitas.  Með stelpunni í strápilsinu á miðanum.

12 Pantyggjó með spíramintbragði.

Rauðan haltukjaftibrjóstsykur.

Heita vínarbrauðsenda úr Mjólkurbúðinni.

Ómæómæ.

Nú verð ég að fá mér banana.

Ekkert hættulegra í boði fyrir sykursýkiskonuna á nostalgíuflippinu.


mbl.is Michael Jackson áformar tugi tónleika í Lundúnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunna-Polly

Spur eða cinalco

Gunna-Polly, 21.2.2009 kl. 16:00

2 identicon

Ummmmmmmm apótekaralakkrís með stimpli og sinalco.Fá sér rúsínur og 70%súkkulaði

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 21.2.2009 kl. 17:14

3 identicon

Svona Dorian Gay ?

Vignir (IP-tala skráð) 21.2.2009 kl. 17:29

4 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Snilli með minnið!

Edda Agnarsdóttir, 21.2.2009 kl. 17:59

5 Smámynd: Einar Örn Einarsson

Rauðar möndlukúlur, Freyjukaramellur, Lindubuff.

Fékk einmitt Póló á heilann um daginn, langaði í póló og Conga.

Fékk mér stundum í kaupfélaginu, keypti bara innihaldið. Á meðan ég naut syndarinnar blasti við mér í hillinnunni við kassann: Commander, Raleigh, Camel, Kent , Benson og Hedges sígarettur m.a. Prins Albert, Half and Half, Raleigh Píputóbak, Midland og pappír til að vefja sígarettur....... OMG ég hef ekki reykt í tæp 9 ár og ég man þetta. Í útvarpinu inni hjá ´verslunarstjóranum var verið að lesa skipafréttir og næsta lag var Haf blikandi haf .........

Svo farið í mjólkurbúðina að kaupa hálft kíló af skyri , hálft fransbrauð...

Nú hætti ég.

Michael Jackson er eiginlega ekki mennskur.... veit ekki hvað hann eiginlega er.

 Knús og kremja á þig Jenný mín, er að fara á sjóinn á morgun.

Einar Örn Einarsson, 21.2.2009 kl. 18:57

6 Smámynd: Einar Örn Einarsson

Hillinnunna veit ég ekki hvað er, en hilla er eitthvað sem flestir ættu að þekkja.

Einar Örn Einarsson, 21.2.2009 kl. 18:58

7 Smámynd:

Nokkuð góð samlíking. Póló drukkið með lakkrísröri var æðislegt

, 21.2.2009 kl. 21:32

8 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Innlitskvitt og kveðjur:=)

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 21.2.2009 kl. 22:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 2985799

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband