Leita í fréttum mbl.is

Að taka steininn úr

Samkvæmt þessar skoðanakönnun sem Frjáls Verslun gerði fyrir vefsvæðið heimur.is fengu Sjálfstæðismenn mest fylgi.

32%!

Klárinn leitar greinilega þangað sem hann er kvaldastur.

Langar fólk í meiri spillingu?

Vildarvina og flokksráðningu?

Aukna kosningaþátttöku sjúklinga með beinum greiðslum í heilbrigðiskerfinu?

Æi ég nenni ekki að telja upp, fólk er búið að upplifa íhaldið á eigin skinni.

Annars bendi ég þeim sem þegar eru búnir að gleyma síðustu fjórum mánuðum að fara inn á Alþingi og fylgjast með beinni útsendingu frá þingfundi.

Þar eru Sjálfstæðismenn eins og óknyttakrakkar og geta ekki hamið gremju sína og reiði.

Eiginlega má segja að þingið sé tæpast starfshæft, kjánaskapurinn er ótrúlegur.

Stundum á ég ekki orð yfir hegðun íslenskra stjórnmálamenn.

Í þetta skipti hafa Sjálfstæðismenn tekið steininn úr.

Ég hvet þá sem aðstöðu hafa til að fylgjast með þingfundum.

Ég held að það ýti fólki aftur út í raunveruleikann.

Annars má geta þess að Sjálfstæðisflokkurinn hefur alltaf reiknað með þrælsótta kjósenda og því miður ekki að tilefnislausu.

 


mbl.is Bjarni og Þorgerður Katrín oftast nefnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Sjálfstæðismenn eru að grilla, mega ekki vera að því að pæla í pólitík og eru svo alveg hissa þegar allt rennur á rassinn. Og kjósa svo aftur sama flokkinn í næstu kosningum. Heitir þetta ekki að vera ekki fær um að læra af reynslunni?

Rut Sumarliðadóttir, 5.2.2009 kl. 12:03

2 identicon

Er eitthvað hægt að segja við svona löguðu.

Hvað þarf Sjálfstæðisflokkurinn (pólitíkusarnir þar innan) eiginlega að gera til þess að sumt fólk fáist til að hætta að kjósa þá.

En það er enn til fólk í landinu sem heldur að ástandið sé í raun ekki svo slæmt og að fjölmiðlarnir séu að gera of mikið úr þessu.

Mig langar að bjóða þessu fólki í minn raunveruleika í svona korter og þá ætti það að sjá að það er bara ekki hægt að réttlæta það að kjósa Sjálfstæðisflokkinn.  Að minnsta kosti ekki næstu áratugina, ef nokkurn tíman.

Erna Kristín (IP-tala skráð) 5.2.2009 kl. 15:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.