Leita í fréttum mbl.is

Steingrímur hvatvísi

Steingrímur talaði við mann hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum í dag.

Himnar opnuðust ekki.

Fjöllin standa enn.

Möndulhalli jarðar er sá hinn sami og fyrir símtal.

Alþjóðagjaldeyrirssjóðurinn mun enn vera að störfum.

Allir þar innan dyra munu vera kúl á því að reikna, nú eða í pásu að kjafta og svona.

Enginn maður liggur slasaður eftir svo vitað sé.

Sjúkkit, þarna hefði getað farið illa.

Steingrímur bara lyftir símanum og hringir í sjóðinn!

Oh, svo hvatvís hann Steingrímur J. 


mbl.is Steingrímur ræddi við IMF í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hann Steingrímur er nú bara að sjá að hann getur ekki gert nein kraftaverk. Eina sem hann getur sagt nú að örugglega engin hefur tekið við eins slæmu búi og hann. Aumingja kallinn. Hann minnir mig nú alltaf svolítið á Georg Bjarnfreðarson.

Þórður Möller (IP-tala skráð) 5.2.2009 kl. 01:04

2 Smámynd: Einar Örn Einarsson

Hehe rétt.

Nú er komið að því að gera í stað þess að tala, dálítið fyndið að sjá karakterbreytingarnar í liðinu sem er búið að skipta um hlutverk.

Einar Örn Einarsson, 5.2.2009 kl. 01:36

3 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Jahérna Jenný, Er jafn hissa og þú á því að Steingrímur skyldi ekki rústa IMF með einu símtali.   Hvernig datt líka fráfarandi ríkisstjórn í hug að leyfa þessum manni að hafa síma ?  (Þó varla óhleraðan ?) 

Og nú er hann kominn inn í ráðuneyti sem þau eiga !   Ósvífnin ríður ekki við einteyming !

Hvernig getur "þetta fólk" horfst í augu við fólkið í landinu ?  Eins og fráfarandi...

Hildur Helga Sigurðardóttir, 5.2.2009 kl. 05:43

4 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Núorðið eru gefin lyf við hvatvísi

Jónína Dúadóttir, 5.2.2009 kl. 08:01

5 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Jedúddamía...... hringdi hann? Ertu viss um að það sé allt í lagi? Hugsanlega er innviðir IMF að falla og enginn sér það....

Hrönn Sigurðardóttir, 5.2.2009 kl. 08:31

6 Smámynd:

Hahahaha já að hugsa sér

, 5.2.2009 kl. 09:23

7 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Sögur herma að það sé búið að taka símaráðin af Steingrími

Heiða B. Heiðars, 5.2.2009 kl. 09:23

8 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Drottin minn dýri... hringdi hann í alvöru þangað? Og er ekki "friðargæslulið" á leiðinni til landsins nú þegar???

Ég meina, Hannes Hólmsteinn er búinn að senda neyðarkall til Financial Times vegna blóðugs valdaráns kommúnista hérna á skerinu og allez...

...eða er Hannes kannski eins og aðrir Sjálfstæðismenn búinn að gleyma að Washington gaf þeim puttann fyrir löngu síðan, nánar tiltekið 30. September 2006. Sorry Hannes, þeir eru ekkert á leiðinni að koma og bjarga ykkur, nanana-búbú!

Guðmundur Ásgeirsson, 5.2.2009 kl. 09:49

9 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Steingrímur virðist halda að honum leyfist bara hvað sem er. Verður ekki að fara að gera honum ljóst að hann er bara íslenskur ráðherra og á ekkert að vera að þenja sig út um allar koppagrundir.

Helga Magnúsdóttir, 5.2.2009 kl. 10:34

10 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

uss já, hann er kaldur hann Joð.

verð annars að leiðrétta eitt. þetta hefur vissulega haft afleiðingar. möndulhallinn hefur minnkað um allavega eina gráðu síðan símtalið átti sér stað.

Brjánn Guðjónsson, 5.2.2009 kl. 10:39

11 Smámynd: halkatla

loksins er semsagt einhver með viti að hringja útum hvippinn og hvappinn fyrir Íslands hönd - senn verðum við ekki lengur þekkt as the gimps of the world

halkatla, 5.2.2009 kl. 11:10

12 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þeir eru enn að tuða um IMF eða voru í morgun.

Árni Matt er að drepast úr áhyggjum.

Ætlar Steingrímur að bylta öllum innviðum fjármálaaráðuneytisins?

Ætlar hann að eyðileggja hina frábæru vinnu sem Áddni hefur unnið?

Er ekki í lagi?

Jenný Anna Baldursdóttir, 5.2.2009 kl. 11:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband