Leita í fréttum mbl.is

Af þjónum fólksins

Ég horfði á útsendinguna frá Alþingi áðan, eins og ég geri oft reyndar, og það jafngilti heilu skemmtiatriði, eða hefði gert væri landið ekki á haus og allt á vonarvöl.

Þvílíkt sjónarspil í boði arfabrjálaðra Sjálfstæðismanna.

Mér finnst dapurlegt ef að Sjálfstæðismenn fullir af heift yfir nýrri stöðu sinni, ætla að láta eins og keipakrakkar sem leikfangið hefur verið rifið af og tefja störf þingsins.

Hver á fætur öðrum komu þeir í pontu og þeir áttu ekki orð yfir ósvífni MINNIHLUTARÍKISSTJÓRNARINNAR (hefði átt að telja hversu oft þeir hnykktu á því) að halda ekki Sturla Böðvarssyni áfram sem forseta þingsins.  ÞEIRRA MANNI eins og Arnbjörg Sveinsdóttir réttilega sagði.

Að þingmeirihluti vilji skipta um forseta heitir nú aðför að persónu Sturlu Böðvarssonar.

Sjálfstæðismenn hafa átt þingforsetastólinn í 18 ár samfellt.

En um þá gilda vitanlega aðrar reglur.

Sér einhver þá í anda bjóða minnihluta þingsins upp á forsetaembættið?

Halló.

Ég veit að það er ljótt að láta hlakka í sér yfir "óförum" annarra en mikið skelfing gleður það mig að Sjálfstæðisflokkurinn fái smá æfingu í minnihlutasetu.

Ég ætla að vona að sá skóli vari út næsta kjörtímabil að minnsta kosti.

Að fjórum árum liðnum gæti verið farið að örla á smá auðmýkt sem nauðsynleg er öllu fólki og sérstaklega þjónum fólksins.

Því alþingismenn eru ekkert annað en þjónar fólksins.

Það væri mörgum hollt að muna á milli kosninga.

Ójá.


mbl.is Gagnrýna forsetaskipti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þeir sem ætla sér að kjósa Sjálfstæðisflokkinn í næstu alþingiskosningum hafa klárlega greind langt undir meðallagi.

Stefán (IP-tala skráð) 4.2.2009 kl. 15:39

2 Smámynd: Halldór Halldórsson

Það kemur ekkert á óvart að vinstra liðið minnist ekki einu orði á áralanga kröfu Steingríms Joð um að stjórnarandstaða hverju sinni tilnefni þingforseta; enda standa öll prinsipissin þeirra Vinstri Grænna ekki stundinni lengur en það tekur að leggja ráðherrabílnum í stæði.

Halldór Halldórsson, 4.2.2009 kl. 15:50

3 Smámynd: Auður Proppé

Kjósum fólk ekki flokka

Auður Proppé, 4.2.2009 kl. 17:23

4 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

Halldór, það er bara ekki einum einasta Sjálfstæðismanni treystandi... :P

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 4.2.2009 kl. 17:27

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Halldór: Get over it, geimið er tapað.

Auður: Helst enga flokka í kosningum sko.

Hildigunnur: Góð.

Stefán: Hehe, ekki fjarri lagi amk. þessa dagana.

Jenný Anna Baldursdóttir, 4.2.2009 kl. 17:31

6 identicon

Mér finnst nú bara sanngjarnt að sjálfstæðisflokkurinn verði í stjórnarandsstöðu næstu 18 árin

linda (IP-tala skráð) 4.2.2009 kl. 22:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 2985770

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband