Leita í fréttum mbl.is

Byggja þjóð - halló!

Ég get ekki á mér setið.

Sigmundur Ernir ætlar í póltík.

Gott hjá honum.

En hann verður að taka númer, röðin er löng.  Margir kallaðir fáir útvaldir, æi og allt það kjaftæði.

En kommon maður, hvaðan kemurðu með þetta uppskrúfaða málfar?

Hvernig ætlarðu að höfða til fólks með svona yfirborðstali og hátimbruðu orðalagi?:

Ég hef haft gaman af að smíða úti í garði,“ sagði Sigmundur Ernir Rúnarsson í viðtali í Morgunútvarpi Rásar 2 rétt í þessu, en „nú ætla ég að byggja þjóð“.

Á ekki að fara í kosningabaráttuna með stuðla og höfuðstafi að vopni bara?

Íklæddur vaðmáli og suðskinnsskóm?  Ha?

En ný stjórn er í burðarliðnum það er næsta víst.


mbl.is Fundað um stjórnarmyndun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: hilmar  jónsson

Hvar er Jakob Frímann ?

hilmar jónsson, 29.1.2009 kl. 12:28

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hehe, segðu.  Er þetta fólk ekki í tímanum.

Talar eins og það sé að bíða eftir Nóbelnum í málfari.

Jösses.

Jenný Anna Baldursdóttir, 29.1.2009 kl. 12:30

3 identicon

Ætlar þú ekki að garga þig hása?

Þú gætir kannski mætt í viðtal, sagst hafa gaman af því að garga þig hása heima, en nú ætlir þú að garga þjóðina heyrnarlausa.

:-)

Henrý Þór (IP-tala skráð) 29.1.2009 kl. 12:56

4 Smámynd: Björn Birgisson

Þjóðin hefur verið að kalla eftir nýju fólki í framlínuna. Ef Sigmundur Ernir vill gefa kost á sér er það bara gott mál. Fólkið ákveður svo hvort hann nær árangri og kemst eitthvað áfram. Smá jákvæðni takk!

Björn Birgisson, 29.1.2009 kl. 13:24

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Jakob Fríman var í Íslandshreyfingunni síðast þegar ég frétti.  Já nú vilja allir í pólitíkina.  Mikið þurfum við að gæta okkar á framapoturunum, þeir bókstaflega snúllast út um allt til að komast að núna í allri upplausninni. Þekki ekki til Sigmundar Ernis en ef fram fer sem horfið þá verða sjónvarps og útsvapsstjórnur sem tróna í hverjum flokki, það er jú verið að reka þá alla ekki satt!!!

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.1.2009 kl. 13:31

6 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Það verður örugglega nóg af alls konar fólki sem búið er að missa vinnuna og finnst alveg gráupplagt að fara bara á þing í staðinn.

Helga Magnúsdóttir, 29.1.2009 kl. 14:06

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hehe, ég er ekkert neikvæð, sá bara húmorinn í þessu.

Henrý Þór: Ég ætla að fleygja þjóðinni í vegg OG garga mig hása.

Mér finnst fínt að SE fari í framboð, látið ekki svona.

Helst vildi ég að hann héldi áfram að skrifa.  Hann er flottur í því.

Jenný Anna Baldursdóttir, 29.1.2009 kl. 14:08

8 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Það er nú í lagi eru ekki margir að bjóða sig fram um þessar mundir.

Kristín Katla Árnadóttir, 29.1.2009 kl. 14:20

9 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Fyllum þingið af atvinnulausum. Þá geta allir gargað sig hása

Rut Sumarliðadóttir, 29.1.2009 kl. 14:23

10 Smámynd: Anna

 boys will be boys

Come on stelpur bjóðið ykkur fram....

Að vera í ríkisstjórn er eins og að reka heimili. Við kunnum þetta.

Við förum yfir reikninga borgum skuldirnar fæðum liðið og förum í sumarfrí fyrir afganginn.

Anna , 29.1.2009 kl. 14:28

11 Smámynd: Soffía Valdimarsdóttir

sauðskinnsskór og vaðmál, stuðlar og höfuðstafir.......................hljómar alla vega skömminni skár en kjaftæði undanfarinna missera!

Soffía Valdimarsdóttir, 29.1.2009 kl. 16:49

12 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Sigmundur Ernir,  Jakob Frímann og Stefán Jón Hafstein allir saman í framboð.    Sparar ljósmyndurum landsins mikinn tíma

Hildur Helga Sigurðardóttir, 30.1.2009 kl. 04:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 9
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 2985764

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband