Leita í fréttum mbl.is

Nokkurs konar ljóska

 d

Í mér blundar kona með viðkvæmt tilfinningalíf.

Nokkurs konar ljóska sem þolir ekki pólitík, vill kaupa sér föt, dingla augnhárunum og lesa glanstímarit.

Eftir að hafa verið lokuð inni síðan í hruni braust hún fram í morgun og gargaði blíðlega á mig þar sem ég sat og horfði framan í daginn.

Ég vil borða gæsalifur og mótsartkúlur í öll mál!

Ég vil ganga um á háum hælum með bera leggi og Gucci tösku á búlevard í útlöndum.

Ég vil fara á frumsýningar á leiðinlegum söngleikjum þar sem ilvatnsblandan frá hinum innantómu gestunum blandast þannig að lyktin verður peningar og eilíf veisluhöld.

Ég vil lifa lífi mínu í einni andskotans óslitinni dömubindaauglýsingu.

Þegar hér var komið sögu, múlbatt ég konuna og læsti hana inn í skáp.

Skilur hún ekki að við lifum á erfiðum tímum?

Er hún ekki meðvituð um ástandið í þjóðfélaginu?

Fífl og lofthöfuð.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: M

Það er nauðsynlegt að viðra ljóskuna öðru hvoru. Annars deyjum við úr kreppuleiðindum

Láttu eitthvað eftir þér í dag og lifðu eins og hann sé sá síðasti

M, 29.1.2009 kl. 10:55

2 Smámynd: hilmar  jónsson

Assgoti gott. heilmikil hrynjandi.

góður texti..

hilmar jónsson, 29.1.2009 kl. 11:02

3 Smámynd: hilmar  jónsson

( mikill )

hilmar jónsson, 29.1.2009 kl. 11:03

4 identicon

Hallllllóóóóóóóóóó!

Ekki loka hana inni, það má alveg vera smart í kreppu ! Ætlarðu að drabbast niður og hætta að vera þú? Ég meina það er kannski erfitt að um vik að spóka sig á erlendum búlivördum í Gucci eins og staðan er og kannski verður svo um ókomna tíð, en hei við verðum að halda uppi ákveðnum standard

Ofurskutlukveðja!

Guðbjörg Erlingsdóttir (IP-tala skráð) 29.1.2009 kl. 11:22

5 Smámynd: Einar Örn Einarsson

Hæ blondína. Mikið er ég búinn að sakna þín.  Vonandi verður ekki svona langt þangað til ég sé þig aftur .

Einar Örn Einarsson, 29.1.2009 kl. 11:28

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Einar Örn: Ég dett í sjálfa mig annars slagið.  En ekki gleyma því að hitt er líka ég.  Þakka guði fyrir að vera upptekin af örlögum mínum og minna nánustu og að vera ekki ein um það.

Guðbjörg: Í kreppu á hælum.  OFFKORS.

Hilmar: Hehe, takk.

M: Geri eitthvað divulegt í dag.

Jenný Anna Baldursdóttir, 29.1.2009 kl. 11:36

7 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Set á mig rauðu "bad hair day" húfuna áður en ég kík...i fyrst þú ert í þessu stuðinu

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 29.1.2009 kl. 11:38

8 Smámynd: Einar Örn Einarsson

Betra að detta í sjálfan sig í staðinn fyrir eitthvað annað. Vitanlega hefur allt venjulegt fólk áhyggjur af sínum. Ég tengi feitt á það. En við höfum öll okkar háttinn á í því að fást við þær áhyggjur. Hef haft fangið fullt af áhyggjum vegna veikinda innan familíunnar, var einmitt að koma frá Kanarí, í nótt, frá því að sitja við sjúkrabeð þar.

Ég á auðvelt með að missa mig í áhyggjum, það verð ég að varast, því ég hef enga blondínu til að detta í, og ég hef það fyrir satt að ef ég fer að detta í "það" þá er mikið áhyggjuferli komið í gang hjá mínu fóllki.

Sorry ætlaði ekki að fara að snúrublogga á síðuna þína. Er að fara á sjóinn eftir hádegi. Kveðja á þig. Ljóskan í þér kemur mér allavega alltaf til að brosa breiðar.

Einar Örn Einarsson, 29.1.2009 kl. 11:59

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Einar minn: Þú mátt snúrublogga eins og þú villt ljósið mitt.  Hugsa til þín og sendi þér góða strauma.  Leiðinlegt að heyra af þessu.

Knús á sjóinn.

Katrín: Er slæmur hárdagur?

Omægódd.

Jenný Anna Baldursdóttir, 29.1.2009 kl. 12:36

10 Smámynd: Óskar Arnórsson

Góðir straumar til þín Jenný!  Votta hér með virðingu mína fyrir þér!

Óskar Arnórsson, 30.1.2009 kl. 01:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband