Leita í fréttum mbl.is

Tár í augum og ellefu mínútna þögn

jólakerling

Á morgun verða ellefu mínútna þögul mótmæli á Austurvelli kl. 15,00.

Síðan verður mótmælt kröftuglega strax þ. 27. janúar á sama stað.

Ég ætla að reyna að komast á morgun er í smá vanda hérna með tíma.

Annars er ég búin að vera jólin með afbrigðum.

Búin að baka fjóra marengsbotna.

Búa til lítra af ís.

Jájá.

Svo fékk ég skarpan og skemmtilegan mann í heimsókn og við húsband höfðum virkilega gaman af þessum hittingi í miðju jólastressi sem b.t.w. hrjáir mig ekki hinn eðla helming hér á kærleiks.

Fólk þarf að gefa sér tíma til að anda.

En þarna áttum við skemmtilega stund með miklum aufúsugesti.

Ég sat úti og reykti áðan og horfði á jólaljósin í húsunum í kring, hvít trén og rauðan himininn og ég fór í dálítinn jólafíling.

Það var gott að finna smá gleði í hjartanu, ekki veitir af.

Svo eru stelpurnar mínar svo yndislegar.  Þær fá tár í augun yfir jólasnjónum.  Þeim finnst hann svo fallegur.

Ég er á því að það sé töluvert mikið varið í dætur mínar.

Svo var ég að lesa yfir þessa færslu áður en hún fór í loftið og ég sá að hún var svo lítið ég í bökunarkaflanum eða þannig.  Ég var að baka en ég er samt ekki svona döll bökunarkona.  Ég rappa yfir bakstrinum fer í smók, reyti af mér brandara, ríf kjaft og sendi stjórnvöldum ljótar hugsanir (djók).

Einhvern tímann á meðan ég var í stríðinu gegn húsmóðurhlutverkinu hefði ég gargað af óþoli hefði ég lesið um einhverja bakandi kerlingu.

Svona er nú komið fyrir mér.

Gengin í björg.

Falalalalala

 


mbl.is Boða þögul mótmæli á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ahemm... 27. desember. Höfum sko ekki þolinmæði lengur.

Solveig (IP-tala skráð) 20.12.2008 kl. 01:14

2 identicon

Hæ, Jenný. Mér finnst frábært hvernig þér tekst að undirbúa jólin, meina fjóra marengsbotna og allt annað sem þú hefur verið að gera til að undirbúa. Þú mátt vera stolt af þér. Mér sýnist af stuttorðum lýsingum þínum, að heimili þitt er ekta jólaheimili þar sem bæði húsmóðir og húsband umfaðma dásamlega fjölskyldu og gera margt saman með börnum og barnabörnum. Ömmubörnin gleyma aldrei hlýlegu og öruggu og ilmandi andrúmsloftinu. Annars öfunda ég þig mest af staðfestu þinni að reykja úti. Það er minn Akkilesarhæll. Dáist að fólki sem hefur þrek og þrautseigju til að geta gert þetta heima hjá sér. Gleðileg jól, Jenný mín, og mundu að þegar allir eru ánægðir, saddir og glaðir, þá áttir þú stóran þátt í því. Ekkert er betra en sjá fjölskylduna glaða, ánægða, sátta og sadda.

Nína S (IP-tala skráð) 20.12.2008 kl. 01:25

3 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Sjáumst kannski á morgun

Sigrún Jónsdóttir, 20.12.2008 kl. 01:43

4 Smámynd: Sigrún Aðalsteinsdóttir

Við meyrnum öll um jólin. Þykjumst vera eitthvað töff, svona dagsdaglega en þegar jólin nálgast snúast allir hlutir um að gera sem best við fjölskyldu og vini og svo hendum við nokkrum þúsundköllum til hjálpar þeim sem ekkert eiga). Þá þykjumst við vera góð. En viljinn er til staðar, við höfum bara ekki fjármagnið.

Sigrún Aðalsteinsdóttir, 20.12.2008 kl. 02:01

5 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Næstu áramót verða 5 ár frá því að ég byrjaði að reykja úti í öllum veðrum.  Þessi 5 ár hafa verið góð fyrir börnin mín sem búa hjá mér.  Þau virða þetta litlu skinnin.

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 20.12.2008 kl. 02:20

6 Smámynd: Beturvitringur

Ég þakka öllum þeim sem standa og staðið hafa að og í mótmælum fyrir sína hönd, MÍNA og annarra.

Hugurinn er með hópnum en skrokkurinn neitar að koma með.

Beturvitringur, 20.12.2008 kl. 02:56

7 Smámynd: Sigurbjörg

Mætum öll á morgun ! :)

Sigurbjörg, 20.12.2008 kl. 03:18

8 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Duglega konaEigðu góðan dag

Jónína Dúadóttir, 20.12.2008 kl. 07:54

9 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Ía Jóhannsdóttir, 20.12.2008 kl. 08:33

10 Smámynd: Dísa Dóra

Þú ert greinilega búin að vera dugleg í bakstrinum þrátt fyrir að þú viðurkennir ekki slíkt

Skil vel að stelpurnar þínar tárist yfir jólasnjónum - ég elska þessa hvítu fegurð líka og finnst grátlegt að þetta eigi að hverfa fyrir jól

Dísa Dóra, 20.12.2008 kl. 08:33

11 Smámynd:

Já þú ert bara reglulega dugleg þótt þú þykist ekki vera það  Dætur þínar held ég séu einnig bara vel heppnaðar manneskjur. Allavega úr því þær tárast yfir jólunum - þá hljóta þær að vera góðar  

, 20.12.2008 kl. 09:16

12 Smámynd: Beturvitringur

Ráð sem dugar vel:  Njóta snævarins NÚNA; fara í þotuferð, göngutúr, sitja á bekk, fara með heitt á brúsa og setjast í almenningsgarð til að horfa og fá sér heitt að drekka.

Þá verðum við búin að njóta hans þegar/ef hann fer um/fyrir jólin!

Trúið mér  (*_*)

Beturvitringur, 20.12.2008 kl. 16:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 2985743

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband