Leita í fréttum mbl.is

Heima að baka vandræði?

Mér fannst fundurinn í kvöld hörkufínn.

Sko, vegna fundargesta og frummælendanna mínus verkalýðskall sem bara talar og talar og segir ekki neitt.  Eitt stykki kerfiskall framleiddur í fjölda eintaka.  Nauðsynlegur í hverja nefnd.

Annars var þarna margt ágætis fólk í panel.

Nema auðvitað kerfiskallinn og svo VR-mógúllinn sem er ekki par hrifinn af því að fá spurningar um launamálin sín.  Hans fokkings einkamál bara.

En ég get sagt ykkur eitt,  það er ekkert vonleysi í mér þó illa gangi að keyra ábyrgðarhugtakinu inn í höfuðið á ríkisstjórninni.

Það kemur.

Málið er að þetta frábæra fólk sem ég sé á Borgarafundunum fær mig til að trúa því að við almenningur getum flutt fjöll (og fólk úr stólum og út á gangstétt ef svo ber undir) ef við sameinumst um það.

Nú langar fólki að koma sér upp smá jólaskapi og ég skil það vel.

Haustið hefur verið hörmulegt við þurfum smá yl í sálina.

Svo kemur janúar og febrúar og þá verðum við komin með stóra breiðfylkingu úr grasrótinni.

Mark my words.

Og hún Ásta Rut sem talaði í kvöld var ótrúlega mögnuð í sinni ræðu.

Ég fékk gæsahúð.

Eftirfarandi alþingismenn mættu:

Álfheiður Ingadóttir, Kolbrún Halldórsdóttir, Steingrímur J. Sigfússon, Þorleifur (man ekki hvers son) mættu frá VG ásamt Ögmundi sem var í panel.

Helgi Hjörvar frá Samfylkingu (ásamt viðskiptaráðherra í panel).

Formaður FF hann Guðjón Arnar mætti líka.

Sá engan frá Framsókn.

VG tóku mætinguna með vinstri.

Ha? Engin Sjálfstæðismaður spyrð þú?

Nei, mér þykir það leiðinlegt en þeir voru örugglega heima að baka vandræði.

Og mikið helvíti er ég reið yfir því að sjónvarp allra landsmanna getur ekki séð sóma sinn í að senda út fundinn fyrir fólk sem á ekki heimangengt.

Það er ekki eins og það sé daglegt brauð þetta ófremdarástand í þjóðfélaginu.

Þöggun?

God natt.


mbl.is Hiti í fólki í Háskólabíói
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

nú þarf fólk smá jólafrí....en fundurinn var ágætur....þó ekki eins góður og síðast

Hólmdís Hjartardóttir, 9.12.2008 kl. 00:10

2 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Ég kemst ekki á borgarafundina vegna vinnu minnar, en ég mæti á alla mótmælafundi

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 9.12.2008 kl. 01:25

3 Smámynd: Fríða Eyland

Jams þöggun þar hittiru beint í mark.. 

Fríða Eyland, 9.12.2008 kl. 04:08

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Við kjósum svo í maí, ný stjórn í júní og svo sjáum við til.

Ásdís Sigurðardóttir, 9.12.2008 kl. 06:43

5 Smámynd: Jónína Dúadóttir

"Í panel"... hvað er það ?

Jónína Dúadóttir, 9.12.2008 kl. 07:22

6 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Takk fyrir þetta! Ég er fúl yfir því að ekki var sjónvarpað beint!

Í hvað fara afnotagjöldin mín? Olíu á jeppa??  

Hrönn Sigurðardóttir, 9.12.2008 kl. 08:32

7 Smámynd:

Sjónvarp allra landsmanna? Finnst Páli mikilvægara að sýna útlenska fræðsluþætti á þessum tíma en borgarafund þar sem framtíð Íslands og Íslendinga er rædd? Hvernig væri að forgangsraða?

, 9.12.2008 kl. 10:04

8 Smámynd: Kreppa Alkadóttir.

Er guðslifandi fegin því að þessu var ekki sjónvarpað, hef engann áhuga á áróðursfundi Vinstri grænna en það er svo augljóst að þeir eru að nýta sér þessa fundi til hins ýtrasta leiðinlegt í raun því það hefur ekki gert neitt annað en eyðileggja málstaðinn.

Heimildarmyndin var mun mikilvægari en þessi fundur en þar var verið að fræða landann um HIV faraldur sem er mikið mikilvægari en vællinn í VG.

Fyrir utan það að við erum 200 þúsund c.a sem borgum fyrir Rúv og 700 manneskjur eru ekki mikilvægari en vilji 200 þúsunds manns.

Kreppa Alkadóttir., 9.12.2008 kl. 11:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband