Leita í fréttum mbl.is

Ekki skata í sjónmáli

Skata er ógeđismatur og ég fer ekki ofan af ţví.

Samt er eitthvađ krúttlegt viđ ţennan siđ sem fólk hefur veriđ ađ hefja til vegs og virđingar undanfarin ár hér í höfuđborginni.

Ţađ ţýđir ekkert ađ halda ţví fram ađ skötuát hafi veriđ stundađ á öđru hvoru heimili frá upphafi vega ţví ţannig er ţađ ekki.  Ég t.d. er eldri en ómunatíđin og í minni ćsku var hćgt ađ ganga á milli húsa og heimila á Ţorláksmessu án ţess ađ verđa fyrir lyktarofbeldi.

En aftur ađ ţessu krúttlega.  Fólk safnast nefnilega saman yfir hrćinu og hefur skemmtilegt.

Ingunn systir mín er međ skötuveislu á Hjallaveginum fyrir mömmu og pabba og allar systur mínar.

Hún eldar kvikindiđ úti í bílskúr sem er auđvitađ brilljant.

En ég mćti ekki.  Ég er skötuhatari.

Ég sýđ hangikjöt á Ţorláksmessu og brýt allar hefđir ţví viđ borđum ţađ líka.  Ađ hluta sko.

Annars er Ţorláksmessa minn uppáhaldsdagur á árinu ţví ţá koma jólakveđjurnar í útvarpiđ.

Ég elska jólakveđjurnar.  Ţćr minna mig á bernsku mína, á eplalykt, mjallarbón og kökuilm.

Ekki skata í sjónmáli á Hringbrautinni get ég sagt ykkur ţegar ég var barn.

En ţessi mađur sem stal skötunni ásamt humri og hámeri hefur ćtlađ ađ bjóđa til ţríréttađrar veislu á Ţorlák.

Ći ţađ er eitthvađ sorglegt viđ ţađ ađ fólk skuli vera fariđ ađ stela mat.

Aumingja mađurinn.

Og aumingja nefiđ á mér eftir einhverja daga.

Fallegasta jólalag í heimi kemur svo hér.  Frá mér til ykkur stórkrúttin og villingarnir ykkar.

Og hagiđ ykkur svo einu sinni.


mbl.is Stal skötu, humri og hámeri
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd:

Og ég sem hélt ađ mamma vćri eina manneskjan sem eldađi hangikjöt á Ţorláksmessu  og svo tók ég náttúrulega viđ og dćtur mínar á eftir mér. Í mínum huga er Ţorláksmessa líka fyrsti dagur í jólum - lykt af hangikjöti, Handy Andy, tekkolíu, greni, eplum og mandarínum. Nostalgía

, 9.12.2008 kl. 10:13

2 identicon

mmmm, skatan elduđ fyrst og síđan hangikétiđ á eftir til ađ drepa niđur skötuilminn...annars ćtla ég ađ borđa skötuna úti í ár og í hádeginu á ţorláksmessu, hvort sem ég verđ á Akureyri ađ skottast međ krakkana eđa hérna á Dósinni en hangikjötiđ verđur sođiđ ađfaranótt ađfangadags og síđan slökkt undir ţví og látiđ kólna í pottinum ţegar öll verkin eru búin svona klukkan ţrjú um nóttina, ţegar ég skríđ uppí, allt hreint og fínt...ţađ eru jólin...hjá mér...

gegg lag!!

alva (IP-tala skráđ) 9.12.2008 kl. 10:18

3 Smámynd: Ţórarinn M Friđgeirsson

Tek undir ţetta međ ţér Jenný, skatan er ekki matur(ekki ađ mínu viti allavegna). Hangikjöt hefur veriđ á borđum hjá foreldrum mínum á ţorlák frá ţví ég fór ađ muna eftir mér og ţađ er gaman ađ sjá ađ ţađ eru fleiri sem hafa ţann siđinn og skötu get ég ekki lagt inn fyrir mínar varir. Jólakveđjur í ríkisútvarpinu eru ómissandi og jólin koma ekki nema mađur heyri nokkrar slíkar, vonandi lenda ţćr ekki í niđurskurđarhnífi Páls M. Kv. Tótinn

Ţórarinn M Friđgeirsson, 9.12.2008 kl. 10:18

4 Smámynd: Dísa Dóra

Ég er nú ekki ćttuđ ađ vestan fyrir ekki neitt og elska bara skötuna og helst međ ekta hnođmör   Sammála Ölvu međ ađ fyrst er skatan sođin og svo hangikjötiđ til ađ fá burtu skötulyktina.  Sjálf fer ég reyndar yfirleitt í skötuveislu heim til foreldra minna en ađ sjóđa hangikjötiđ geri ég samt á ţorlák svona til ađ fá lyktina í húsiđ

Dísa Dóra, 9.12.2008 kl. 10:38

5 identicon

Ég sýđ líka hangikjet á Ţorláksmessu en fer međ tengdafólkinu á veitingastađ og snćđi saltfisk á međan ţau snćđa óges-skötu.En fýlan vonda er ómissandi jóla-óţefur.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráđ) 9.12.2008 kl. 10:40

6 Smámynd: Ólöf de Bont

Ég hlakka til ađ fá lyktina af Hjallaveginum hingađ á Langholtsveginn.  Hjá mér er ţađ áunnin nautn ađ éta skötustöppu á Ţorláki helst međ hnođmör :-)

Ólöf de Bont, 9.12.2008 kl. 11:03

7 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

Mamma eldar hangikjöt á Ţorláksmessu, ég flúđi alltaf ađ heiman.  Ojbjakk, lyktin af hangikjöti ađ sjóđa   Ekkert skárri en skatan (sem var aldrei á borđum heima hjá mér, reyndar).  

Viđ sjóđum rauđkál á ađfangadagsmorgun, ţađ er jólalyktin hér á bć.

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 9.12.2008 kl. 11:49

8 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Ég fć vatn í munninn viđ tilhugsunina um skötuna - ţví kćstari ţví betra. Fer til vinkonu minnar í skötuveislu á Ţorlák. Heima hjá mér var alltaf skata á borđum og ólíkt flestum börnum ţótti mér hún lostćti.

En ég sýđ líka alltaf mitt hangikjöt á Ţorláksmessu en einhvern veginn finnst mér ilmurinn af ţeirri suđu hafa minnkađ undanfarin ár. Ćtli ţađ sé vininslan á hangikjötinu...?

Lára Hanna Einarsdóttir, 9.12.2008 kl. 12:38

9 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Skata er lostćti. Punktur

Hólmdís Hjartardóttir, 9.12.2008 kl. 12:41

10 Smámynd: Sigríđur Ţórarinsdóttir

Enga skötu á mitt heimili takk. Ţvílík ógeđslykt.  Hjá foreldrum mínum hefur hangikjötiđ alltaf veriđ sođiđ á ţorláksmessu en lyktin af ţví er farin ađ fara meira í mig međ árunum eins og hangikjötiđ er nú gott kalt.

Ţorláksmessa eins og hún var oftast ţegar ég var barn og unglingur:  Jólakveđjur á gufunni, lykt af greni, tekkolíu, hangikjöti. Ég eitthvađ ađ hjálpa til, skreyta jólatréđ og gera herbergiđ mitt fínt. Jólalögin sem hljóma svo á milli  eru svo Marys boy child og fleiri gömul.  Annars er ég sammála međ besta jólalagiđ: Fairytale of New York. Búiđ ađ vera eitt af uppáhalds í mörg ár.  

Sigríđur Ţórarinsdóttir, 10.12.2008 kl. 00:28

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 0

Annađ

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.