Þriðjudagur, 25. nóvember 2008
Er ég geðveik?
Ég hef það sterklega á tilfinningunni á hverjum degi að það sé verið að ljúga að mér, blekkja mig.
Þetta er auðvitað sjúklegt ástand og geðdeildarhæft í eðlilegu árferði en í kreppunni er þetta að verða dagsform margra.
Hversu lengi getur maður gengið um og vantreyst öllum stjórnmálamönnum sem opna munninn?
Þá á ég við án þess að verða settur í klæðilegu treyjuna með hreyfihindrununum og lokuðu ermunum?
Þegar ég sá Ludde Lufseman í Kastljósinu kvöld fannst mér eins og þar hefði enn eitt leikritið verið sett á svið, að hann hefði jafnvel skrifað handritið sjálfur.
Hann vildi svo skemmtilega til að hann lauk verkefni sínu í dag, daginn eftir borgarafundinn þar sem fólk úaði ef minnst var á hann. Fólk vildi hann úr landi. "Illa fort".
Ég rak því tunguna út úr mér og ullaði á sjónvarpið. Það heita þögul mótmæli á heimili.
Ég fékk póst í dag þar sem mér er tjáð að fólk sem hefur verið að hvetja til kosninga hafi verið hent út af Andlitsbók, heimasíðu þeirra lokað og bloggsíðum líka.
Var þetta hönnun Luddes?
Er það kannski langsótt eins og margar tilgátur hafa verið undanfarnar vikur en hafa síðan reynst vera réttar?
Á ég að trúa því að það sé verið að loka á fólk fyrir að halda úti skoðunum um að það vilji kosningar?
Hver gerir slíkt?
Mikið skelfing langar mig til að láta segja mér hverjum datt í hug að ganga svo langt?
Ég er farin að tvílæsa hurðum og gluggum eða kannski ég múri bara upp í fyrirkomulagið.
Enn er ég þó ekki farin að heyra raddir.
Ég er algjörlega bláedrú og hef ekki tekið paratabs einu sinni svo það er ekki af kemískum hvötum sem ég þjáist af þessari paranoju gagnvart stjórnvöldum.
Bara svo það sé bókfært.
Ráðgjafinn heim til Noregs | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Lífstíll, Sjónvarp, Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:58 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 16
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bláar eyllýar
- Bloggar
- Bækur
- danskar kjötbollur með sósu
- Dómar
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Femínistablogg
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Halloki
- Hamfarablogg
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hneyksli
- Íþróttir
- Jólafár
- Kjaramál
- kvikindiskapur og illt umtal
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Lúkas
- lygasögur
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjálfsdýrkun
- Sjónvarp
- Snúra
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Synt til sigurs
- Synt yfir sundið
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Þvagleggur
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Tenglar
Tónlist
Vinir og fjölskylda
Vinkonur
Ég les alltaf
Netmiðlar
Tónlistarspilari
Bloggvinir
- draumur
- jonaa
- hronnsig
- larahanna
- skessa
- eddaagn
- amman
- annabjo
- annambragadottir
- annaragna
- asthildurcesil
- kolgrima
- birnan
- bjarnihardar
- brjann
- brylli
- christinemarie
- danjensen
- lillagud
- disadora
- einari
- einarorneinars
- emm
- estro
- evabenz
- fifudalur
- garun
- gelgjan
- gunnarggg
- halkatla
- halo
- hildurhelgas
- heidah
- helgamagg
- hildigunnurr
- iaprag
- hlynurh
- hugarfluga
- hugsadu
- ibbasig
- katrinsnaeholm
- ingolfurasgeirjohannesson
- jogamagg
- jara
- jensgud
- katlaa
- krummasnill
- krissa1
- lehamzdr
- ktomm
- laufeywaage
- lauola
- lindalinnet
- madamhex
- maggij
- majaogco
- mariakr
- markusth
- meistarinn
- motta
- nimbus
- olinathorv
- pollyanna
- ragnarfreyr
- ragnhildur
- ringarinn
- rosa
- roslin
- saedis
- sailor
- salkaforlag
- skordalsbrynja
- skrifa
- snar
- soley
- steingerdur
- steinnhaf
- steinunnolina
- stinajohanns
- sunnadora
- svetlana
- thuridurbjorg
- tibet
- tigercopper
- toshiki
- unns
- valgerdurhalldorsdottir
- wonderwoman
- vefritid
- vest1
- bidda
- zeriaph
- killjoker
- sisvet
- gudrununa
- dora61
- possi
- gelin
- silfri
- jyderupdrottningin
- gretaulfs
- sibba
- baldvinj
- stjaniloga
- bokakaffid
- kreppukallinn
- jonerr
- gerdurpalma112
- adhdblogg
- astafeb
- snjolfur
- haddih
- brell
- reisubokkristinar
- little-miss-silly
- baldis
- olofdebont
- kikka
- jarnar
- thorolfursfinnsson
- birnast
- vrkristinn
- leifur
- astroblog
- bjarkey
- manisvans
- siggisig
- nordurljos1
- gunnaraxel
- ragnar73
- sij
- kreppu
- runirokk
- gotusmidjan
- dorje
- slembra
- skari60
- must
- fhg
- aevark
- fridaeyland
- hedinnb
- cakedecoideas
- taraji
- audurproppe
- kollakvaran
- finni
- arnaringvarsson
- samstada
- drum
- gretarogoskar
- tbs
- vistarband
- valdivest
- fingurbjorg
- gustichef
- skulablogg
- andreskrist
- fasteignir
- rognvaldurthor
- helgatho
- gullfoss
- bailey
- jennystefania
- gattin
- annaandulka
- ansy
- gumson
- berg65
- bjarnimax
- brahim
- elin
- gudlaugbjork
- dramb
- gudrunkatrin
- hvilberg
- himmalingur
- ingaragna
- naflaskodun
- kiddirokk
- sigurborgkrhannesdottir
- joklamus
- stjornlagathing
- saemi7
- unnurgkr
Athugasemdir
hvað er Andlitsbók?
Brjánn Guðjónsson, 25.11.2008 kl. 23:01
Hann hætti í síðustu viku, sá Norski.
Þröstur Unnar, 25.11.2008 kl. 23:16
Brjánn, það er Facebook.
Á ég að trúa þessu? Er búið að loka Andlitsbókarsíðunni? Hvað næst? Þú? Í járnum? Já, hafðu læst hjá þér og ekki opna fyrir neinum.
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 25.11.2008 kl. 23:16
það er búið að loka mbl bloggi þess sem stendur fyrir kjosa.is síðunni sem og nokkrum facebook síðum þeirra sem hafa kosið að nota yfirskriftina kjosa.is á síðunni sinni samkvæmt þeim upplýsingum sem ég hef séð um málið. Illt er ef satt er. Þetta var gert í morgun. Og maður heldur áfram að spyrja sig óþægilegra spurninga. Samt skiljanlegt að svona upplýsingar renni ekki ljúflega niður í maga almennings sem á eftir að fá enn fleiri sjokktreatment á næstunni. Það eru örugglega ekki öll kurl komin til grafar enn.
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 25.11.2008 kl. 23:17
Nei, þú ert ekki geðveik.
Lára Hanna Einarsdóttir, 25.11.2008 kl. 23:20
Kannski eru þeir sem öllu stjórna hérna bara geðveikir..allavega eru áhrifin af stjórnunarstílnum á þjóðinni núna eitthvað að hafa erfið áhrif á fólkið. Nú fer ég að sofa og vona að mig dreymi ljúfa drauma. Dagarnir eru að verða hreinasta martröð.
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 25.11.2008 kl. 23:28
Langbesta þýðingin á FaceBook er "Snjáldurskinna"
En fyrir utan það er ákaflega hæpið að einhver eða einhverjir hér á landi geti lokað Facebook síðum, fyrirtæki í USA láta yfirleitt dæma sig til slíkra hluta.
Jón (IP-tala skráð) 25.11.2008 kl. 23:43
Jamm og jæja. Ég er geðveik. Og hef kynnst mörgu skemmtilegu geðveiku fólki, t.d. fólki sem tvílæsir hurðum sínum, sem er paranojað, o.s.frv. Það er bara þannig. Fékk einu sinni frábæra líkingu á geðveiki frá Auði Adxels iðjuþjálfa. Þar lýsti hún geðsjúkdómum þannig að samanborið við líkamleg veikindi s.s. kvefi allt uppí krabbamein, þannig væri það með geðsjúkdómana, þ.e. frá vægu þunglyndi og allt uppí geðklofa. Svo væri fólk statt alls staðar þarna inn á milli. Þannig að það er ekkert að óttast þó maður sé pínu geðveikur, bara að vita hvað er að hjálpar. SELAVIE. Svo, Jenný mín, þó þú tvílæsir hurðum, þá ertu kannski bara langt til vinstri á skalanum. Ekkert að óttast.
Nína S (IP-tala skráð) 26.11.2008 kl. 00:19
We all live in a yellow submarine
Hólmdís Hjartardóttir, 26.11.2008 kl. 01:39
Ekki held ég að þú sért geðveik, Jenný Anna.
Spurningin er hins vegar hvort við eigum ekki að fara að taka einhverja stóra belgi,
sem láta okkur sofa fram á þar-þar-þar- næsta vor ?
Hildur Helga Sigurðardóttir, 26.11.2008 kl. 03:23
Þetta er ekki geðveiki mín kæra, þetta heita áhyggjur
Jónína Dúadóttir, 26.11.2008 kl. 08:00
Jú ætli þetta flokkist ekki undir megaáhyggjur Jenný mín. Kveðja inn í bjartan dag.
Ía Jóhannsdóttir, 26.11.2008 kl. 08:14
Jenný Anna svona til að fræða þig smávegis vegna ótta þíns um veikindi þín að geðrænum toga sem sagt geðveiki þá hefur það verið bannað í áratugi að nota svo kallaða klæðilega treyju með hreyfihindrunum og lokuðum ermum.
Kveðja til þín með ósk um góðan bata.
Ásgerður Einarsdóttir
egvania, 26.11.2008 kl. 08:52
Þetta er samsæri,Geir Harde sem er hálf norskur, að sagt er,hefur líklega verið þjálfaður sem ungur maður í Noregi eingöngu til að verða forsætisráðherra á Íslandi og markmiðið, jú ,setja landið á hausinn og þegar við værum sem mest lömuð mundi Noregur senda hernaðarráðgjafa til hans, til að leggja loka hönd á það að innlima Ísland Noregi!
Konráð Ragnarsson, 26.11.2008 kl. 09:23
Ha ha ha - við erum öll geðveik. Við erum öll haldin vantrúar og stjórnvaldalygageðveikinni. Ætli séu til spennitreyjur fyrir okkur öll
Lísa Björk Ingólfsdóttir, 26.11.2008 kl. 09:36
Hehe, sumir alveg grafalvarlegir yfir treyjunni.
Þið eruð ógeðslega fyndin og skemmtileg.
Jenný Anna Baldursdóttir, 26.11.2008 kl. 09:37
Ludde Lufsemans! Arg... ég spring
Heiða B. Heiðars, 26.11.2008 kl. 10:33
Jenný Anna ég er sko ekki alvarleg yfir þessum treyjum, ég held að Spaugstofumenn eigi til eitthvað af þeim en svo er ekkert má að sauma þær.
En þetta með raflostið er alveg pottþétt en ekki er hægt að leggja inn pöntum heldur verðurðu metin að geðlækni.
Ásgerður
egvania, 26.11.2008 kl. 11:22
Nei, þið eruð ekki geðveik, því það er verið að ljúga að okkur og blekkja, og þið eruð ekki ein um þessi viðhorf. Mörkin á milli "heilbrigðrar tortryggni" og "sjúklegrar vænisýki" liggja hvergi nema í þeirri tölfræði sem skilgreinir hvað teljist vera "eðlilegt" og hvað ekki, en sú markalína er ekki eitthvað náttúrulegt fyrirbæri heldur mannanna verk. Þegar fleiri þúsund manns safnast saman til að mótmæla ósannsögli og valdkúgun er frekar langsótt að afskrifa það sem einhvern skyndilegan sjúkleika. Það hlyti þá að vera einhverskonar vænisýkisfaraldur, en síðast þegar ég vissi eru geðsjúkdómar ekki smitandi og það þyrfti ansi stóra geðdeild undir allan hópinn ef það væri tilfellið. Er ekki raunhæfari skýring að skyndileg útbreiðsla tortryggni í garð stjórnvalda, eigi sér a.m.k. einhverja stoð í athöfnum þeirra og framkomu gagnvart lýðræðislegum stjórnarháttum?
Varðandi Facebook þá eru bein tengsl milli fjármögnunar þess og einstaklinga sem eiga rætur að rekja til CIA og sambærilegra aðila innan njósnageirans. "It's not paranoia when they really are watching you!" ;) Hér má finna stutta myndræna kynningu sem útskýrir þetta nokkuð vel.
Gefum engan afslátt af lýðræðinu, lengi lifi byltingin!
Guðmundur Ásgeirsson, 26.11.2008 kl. 12:02
Bofs, CIA? Facebook er gullnáma fyrir markaðfólk, fésbók þarf ekki CIA til að fjármagna sig, ríkið í usa á betri njósnagræjur en það. Samt ótrúlegt að fólk sé tilbúið að setja hvaða upplýsingar sem er um sig á netið, samanber Fésbók (ekki andlitsbók) eða bara bloggið. Svo er fólk hissa á því að það sé einhver að skoða þetta með einhverjum öðrum markmiðum en að skemmta sér eða koma sér í samband við nýja og gamla vini.
Bjöggi (IP-tala skráð) 26.11.2008 kl. 17:35
Elskurnar mínar ef að þið eruð alvarlega haldin af geðrænum sjúkdómi það er að segja geðveiki þá mæli ég með Geðdeild FSA skrifa af reynslunni ?
Geðrænum, lífrænum er það sama og geðveiki ?
Undir hvaða flokk geðveikinnar er lífrænan sjúkdóm að finna ?
Kveðja og ósk um ljúfa nótt ykkur til handa.
Ásgerður
Bjöggi minn við höfum bara gaman af og tökum hvort annað svona passlega alvarlega stundum.
egvania, 26.11.2008 kl. 22:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.