Leita í fréttum mbl.is

Að láta blekkjast, aftur og aftur

Samfylkingin fundaði í tvo tíma um Davíðsvandræðin en viðurkennir það samt ekki, það voru hjól atvinnulífsins sem voru til umræðu.

Össur segir ekkert.  Ég hélt að hann myndi hjóla í málið.

Ég er á því að það sé eitthvað stórkostlega mikið að mér og þeim sem láta blekkjast aftur og aftur.

Ég sverða, ég hélt að það myndi eitthvað koma út úr þessum fundi í kvöld.

Hélt að Davíð hefði með ræðu sinni farið endanlega yfir mörkin.

En nei, ekki aldeilis.

Ætlar enginn í ríkisstjórninni að krefja Davíð svara varðandi það sem hann segist vita, þ.e. hvað varð til þess að hryðjuverkalögin voru sett á Ísland?

Það liggja allir ráðherrar undir grun þangað til þetta hefur verið upplýst.

Hvað er í gangi, hvernig stendur á því að það er ekki hróflað við Seðlabankastjóra sama hvað hann gerir?

Hvaða tangarhald hefur hann á ríkisstjórninni?


mbl.is Fundi Samfylkingar lokið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Ég hélt þetta einmitt líka!

Lára Hanna Einarsdóttir, 18.11.2008 kl. 23:40

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þau voru öll eins og kakkalakkar að forðast ljósið samfylkingarfólkið,  vildu ekkert segja, hröðuðu sér í burtu eða létu sig hafa að hreinlega ljúga beint upp í opið geðið á okkur, svo stendur frú Ingibjörg þarna skælbrosandi og segir að það sé ekkert að, allt í gúddý, hvar er samfylkingarfólkið úti í þjóðfélaginu? eru þau alveg jafnblind og Sjallarnir ? er þá samfylkingarfólki samskonar trúarhópur og Sjallar ?

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 18.11.2008 kl. 23:44

3 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Úff!

Greta Björg Úlfsdóttir, 18.11.2008 kl. 23:48

4 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Stundum er bara notalegt að láta plata sig. Sólveig Pétursdóttir naut þess í hærra hlutabréfaverði og ríflegri matarpeningum að manni hennar tókst í fjögur ár að svindla á lögreglunni og Landhelgisgæslunni meðan hún gegndi starfi dómsmálaráðherra. Ég held að Samfylkingin njóti þess þó mest allra að plata aðra.

Sigurður Þórðarson, 19.11.2008 kl. 00:15

5 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Ég er sannfærð um að einhver ákvörðun var tekin á fundinum.....en samstarfsflokkurinn fær að vita það á undan fjölmiðlum

Hólmdís Hjartardóttir, 19.11.2008 kl. 00:19

6 Smámynd: Sigurður Þórðarson

IMF stjórnar vöxtunum. Davíð ræður engu lengur. Eru þetta ekki látalæti?

Sigurður Þórðarson, 19.11.2008 kl. 00:21

7 Smámynd: Eva Benjamínsdóttir

Er ekki DO í Steingeitinni?

Eva Benjamínsdóttir, 19.11.2008 kl. 00:21

8 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Jóhanna virtist ansi pirruð og vildi ekki tala við fréttamenn.

Sigrún Jónsdóttir, 19.11.2008 kl. 00:49

9 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Það virðist allt vera að gerast á Íslandi í dag  

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 19.11.2008 kl. 01:11

10 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

svona svona. þau munu vitanlega byrja á að funda með Geir og stilla honum upp við vegg. það væri ekki gott að gefa út yfirlýsingar í kvöld og gefa honum þar með útgönguleið.

allt er þetta einn stór póker.

það gerist eitthvað á morgun, eftir að Sanfó og Sjallar hafa hittst.

Brjánn Guðjónsson, 19.11.2008 kl. 01:31

11 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

Samfó vildi ég sagt hafa

Brjánn Guðjónsson, 19.11.2008 kl. 01:31

12 Smámynd: Isis

ætli... *ræskj*....ætli D og S séu að fara skilja?.....ha... (minn blauti draumur sko...)... eða ætli... Já nei ég þori ekki að segja það...

Sji!.. það er svo spennandi að vera til stundum! Alltaf eitthvað nýtt á hverjum degi maður bara varla þorir að fara að sofa

Isis, 19.11.2008 kl. 02:30

13 Smámynd: María Guðmundsdóttir

nú heldur mann vart vatni lengur

María Guðmundsdóttir, 19.11.2008 kl. 06:13

14 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ég mundi segja: "Ég sagði þér það!" Ef ég væri ekki svona vel upp alin....

Hrönn Sigurðardóttir, 19.11.2008 kl. 07:23

15 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Smart líka hvernig fréttamenn þurfa að eltast við Jónas FR Jónasson í fjármálaeftirlitinu og hann neitar að tala við þá vikum saman...Ingibjörg Sólrún neitar að svara spurningum fréttamanns og vísar á Jónas sem er í felum.  Helgi Seljan var flottur að sýna hvernig hlutirnir ganga fyrir sig á fjármaáleyrinni eins og hann gerði í kastljósi í gær. Og þórhallur tilkynnti hverja hefði verið reynt að fá í viðtöl en vildu ekki koma..það er líka flott að upplýsa fólk um að ráðamenn vilja ekkert við okkur tala.

Þess vegna mætum við öll fyrir utan alþingishúsið á hádegi í dag klukkan 12.00 og gerum það sem þetta lið ætti að vera að gera..Sláum skjaldborg utan um lýðræðið okkar sem verið er að vanvirða algjörlega af ráðamönnum og hlandmáttlausum alþingismönnum.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 19.11.2008 kl. 08:11

16 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Já Helgi Seljan var flottur í Kastljósinu í gær!!

Hrönn Sigurðardóttir, 19.11.2008 kl. 08:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (11.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 2985830

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.