Leita í fréttum mbl.is

Frussssssssss

Mér líður stundum eins og það séu þetta fimm - sex ríkisstjórnir í landinu.  Svona fjölríkisstjórn.

Allt eftir því við hvern er talað hverju sinni.

En nú gæti Össur skorað feitt, hann neitar ábyrgð á Davíð, segir hann á ábyrgð forustu ríkisstjórnarinnar.

Vill ekki lengur taka þátt í sjúklegri varnarpólitík íhaldsins á Davíð.

Annars er það hlægilegt um leið og það er hræðilega sorglegt og dýrkeypt hvernig Davíð öslar áfram eins og krakkaandskoti sem aldrei hlýðir.

Hann veit að pabbi elskar strákinn sinn og finnst hann alltaf krúttlegur, líka þegar hann brýtur og bramlar og hann þarf að borga brúsann.  Gússí, gússí elsku drengurinn segir hann væminn í andlitinu.

Sko, fyrst Össur er búinn að fá nóg af Davíð og reynir ekki að fela það eins og í meðfylgjandi myndbandi má sjá þá er stjórnin tæknilega fallin. Hún á þá bara eftir að aktjúalísera fallið, segja nó mor þið vitið. 

En í alvöru. 

Eftir nýjasta útspil Seðlabankastjóra þar sem hann gasprar eins og mófó líkt og í Kastljósinu forðum þá hljóta jafnvel klíkubræður hans að sjá að hann er beinlínis hættulegur í ræðustól.

Er hann á fjallagrösum eða hvað?  Gingseng?  Hvað vera?

En samkvæmt Sigmundi Erni þá er mögulegt að málið sé að leysast.

Sjá hér.


mbl.is Davíð á ábyrgð forystu ríkisstjórnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Bíddu.... ha?? Er Össur ekki í forystu ríkisstjórnarinnar?

Hrönn Sigurðardóttir, 18.11.2008 kl. 17:10

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Nebb hann er í óforystu.

Solla og Geir eru í beisíklí forysta.

Jenný Anna Baldursdóttir, 18.11.2008 kl. 17:11

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

iss piss - hártog. Hann er í samfylkingunni......... eða hvað?

Samfylkingin er í ríkisstjórn! Trúi ekki orði af því sem hann segir! Ekki frekar en ég trúi Davíð, Geir eða Ingibjörgu Sólrúnu eða mogganum eða sjónvarpinu.......

Viltu að ég haldi áfram? 

Hrönn Sigurðardóttir, 18.11.2008 kl. 17:16

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Sko málið með Össur er að hann getur ekki stillt sig um að segja hug sinn.  Hann er nefnilega þeirrar gerðar.  Amk. þegar hann reiðist.

Held ekki upp á monthanann Össur Skarphéðinsson en ég sé að hann er að springa á Davíð eins og fleiri í Samfó eins og maður heyrir þessa dagana.

Spurningin er; breytir það einhverju hvað Össuri finnst?

Heldur stjórnin ekki áfram í sínum góða gerræðisgír?

Ég trúi ekki stjórnmálamönnum svona yfirleitt.

Jenný Anna Baldursdóttir, 18.11.2008 kl. 17:22

5 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Skil þig.......

Hrönn Sigurðardóttir, 18.11.2008 kl. 17:27

6 Smámynd: Anna

Nú ólgar í flokkunum. Hver ætli segi af sér næst. 'Eg bið spennt. Þessir flokkar munu hrynja um sjáltsig áður enn kemur að kosningum. Þeir geta ekki samið um neitt, hvorki innbyrðis eða úrbyrðis.

Geir H.Haarde blessaður virðist ekki átta sig á því að meðan hann lætur Dabba sitja sem fastast því úti lokar hann atkvæðið sitt frá almenningi. Sem er bara gott mál.

Anna , 18.11.2008 kl. 17:29

7 identicon

..og takið eftir: Samfylkinarinnar er  að búa sig undir kosningar með ESB á oddinum. Bráðum sjáum við bæklinginn í lit.  "Fagra ESB".

Stjórnarsamstarfið er á síðustu metrunum . Ályktanir frá félagsstjórnum í kjördæmum og fleira segja það sem segja þarf.

Og svo þetta sígilda:
"Þegar á bjátar má alltaf treysta á flótta Samfylkingarinnar"

101 (IP-tala skráð) 18.11.2008 kl. 17:54

8 Smámynd: Anna

Já kosningar. Það vera nú margir þingmenn og ráðamenn atvinnulausir eftir næstu kosningar. Ég var að frétta af því að það vantar tiltölulega mikið af kaupamönnum í sveit. Ætli þeir kunni að moka flór eða rýja kindur.

Anna , 18.11.2008 kl. 18:41

9 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Alla vega held ég að Árna fjármálaráðherra myndi líða betur við kýrrassana en honum leið í fréttaviðtalinu áðan - búinn að vera þægur eins og ætlast var til og fær svo skammir fyrir allt saman, ekki bara frá almenningi heldur líka frá Stjóranum í Svörtuloftum, opinberlega. Maðurinn var í klessu.

Greta Björg Úlfsdóttir, 18.11.2008 kl. 20:29

10 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Skrópar Össur á fundi? - Segir Solla honum aldrei neitt. sbr. viðtalið hér?

Solla segist nefnilega haf verið búin að mæta á marga fundi um bankavandann og eiga punkta því frá þeim - en Össur hefur ekki heyrt neinar aðvaranir! Why????? 

Óeining innan flokka sem utan. Það er allt á suðupunkti.

Greta Björg Úlfsdóttir, 18.11.2008 kl. 20:41

11 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Búkollabaular kem með

Hólmdís Hjartardóttir, 18.11.2008 kl. 20:45

12 Smámynd: Kolgrima

Ég man þá tíð þegar var gúrkutíð.

Kolgrima, 18.11.2008 kl. 20:56

13 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Samfylkingin lét bóka á ríkisstjórnarfundi í október að Davíð Oddsson starfaði alfarið á ábyrgð Sjálfstæðisflokksins. Þannig að það er langt síðan Samfylkingin sór hann af sér.

Helga Magnúsdóttir, 18.11.2008 kl. 21:22

14 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég ætla að kjósa Guðna og Bjarna Harðar

Ásdís Sigurðardóttir, 18.11.2008 kl. 21:43

15 identicon

Davíð er einfaldlega að reyna að sprengja ríkisstjórnina. Ingibjörg ætlar sér ekki að leyfa honum að hafa ákvörðunarvald í því máli. Svo einfalt held ég að málið sé og allur ágreiningur innan Samfó snýr væntanlega að afstöðu manna til þess að hóta stjórnarslitum formlega. Ég efast þó að málið sé komið mikið lengra.

Gunnar Hrafn Jónsson (IP-tala skráð) 18.11.2008 kl. 22:27

16 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Jiii hvað ég vildi að það væri gúrkutíð........

Hrönn Sigurðardóttir, 18.11.2008 kl. 22:37

17 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Æjá...*Súkk*

Greta Björg Úlfsdóttir, 18.11.2008 kl. 22:39

18 identicon

Hrönn: þetta er full mikið af því "góða", svo mikið er rétt

Gunnar Hrafn Jónsson (IP-tala skráð) 18.11.2008 kl. 22:40

19 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Ég ætla að slást í för með Búkollabaular og Hólmdísi

Sigrún Jónsdóttir, 18.11.2008 kl. 22:46

20 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Vitiði að það er ennþá til fólk sem ver Dabba, og ég er ekki að grinast, hér á blogginu og á málefnunum eru basekly fólk sem hefur fyllst vandlætingu og nú er Heimdallarliðið búið að fá dúsuna sína, hvernig þeir eigi að tala, vissu það ekki fyrr en í dag.

Ingibjörg Sólrún hefur gengisfellt sig allhrikalega undanfarið, en aldrei eins og í dag.  Meira að segja samfylkingarfólk hefur fengið áfall yfir afstöðuleysi hennar.  Hún er að sýna sitt rétta eðli nákvæmlega núna.  Og hún lét ekki einu sinni bankamálaráðherran vita af krýsunni, sem hún ræddi svo oft við Davíð.  Hann vissi þetta ekki fyrr en í ágúst!!! Oboy oboy. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 18.11.2008 kl. 23:19

21 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

ég trúi ekki fyrr en ég tek á, að ríkisstjórnin lifi morgundaginn af.

ég trúi ekki öðru en Samfylkingin setji Sjálfstæðismönnum úrslitakosti. að öðrum kosti eru þau duglaus. ég á hinsvegar eftir að sjá Geir ganga gegn Davíð, því ég tel að Davíð hafi eitthvað óþægilegt í bakhöndinni á hann.

við skulum samt bíða og sjá. morgundagurinn gæti orðið spennandi.

Brjánn Guðjónsson, 18.11.2008 kl. 23:27

22 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

ég tel að breytt valdahlutföll séu nauðsynleg. sem sagt kosningar.

reyndar lítur út fyrir að, ásamt Samfylkingu, næðu VG góðri kosningu. það finnst mér ekki sérlega gæfulegt í ljósi stefnu þeirra í Evrópumálum.

hafi einhverntímann verið tíminn, er hann nú. að stíga skrefið út úr anddyri moldarkofans og úr klíkusamfélaginu, í samfélag siðaðs fólks. verst að VG húka enn innst inni í baðstofu, við húslestur.

Brjánn Guðjónsson, 18.11.2008 kl. 23:34

23 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Já, Brjánn, þessi undanlátssemi Geirs gagnvart Davíð er dularfull. Auðvitað hlýtur að vera sárt að snúa baki við skólabróður frá í menntaskóla, en almannaheill hljóta að ráða. Mér sýndist kallinn hálforðlaus við síðasta útspili Dabba í kvöldfréttum, þó hann styndi upp úr sér stuðningsyfirlýsingu. Þetta er furðulegt.

Ingibjörg sagði af sér sem borgarstjóri eftir skamma setu til að hella sér í landspólitíkina, muniðið?

Greta Björg Úlfsdóttir, 18.11.2008 kl. 23:36

24 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Brjánn, þú ert sem sé einn þeirra sem vilja hlaupa í fang ESB?

Mikið held ég að það sé kaldur faðmur, samanber hvernig 27 aðildarríki höfðu sitt fram gagnvart okkur - sem við áttum þó líklega skilið.

Sástu nokkuð mótmæli lettnesku bændanna í kvöldfréttum rúv?

ESB þó vera eitthvað að linast í landbúnaðarmálum, því betur.

Greta Björg Úlfsdóttir, 18.11.2008 kl. 23:41

25 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Var að blogga um þennan fund sem ekkert kom út úr.

Sæbjúga! Ég er í kasti.

Brjánn: Trú þín á flokkinn er yndisleg.

Já elskulega gúrkutíðin er ekki væntanleg um fyrirsjáanlega framtíð.

Jenný Anna Baldursdóttir, 18.11.2008 kl. 23:42

26 identicon

Ég er í sjokki eftir daginn. Sannleikssjokki. Sannleikurinn er að renna upp fyrir mér. Ráðamenn þjóðarinnar, Seðlabankastjórnin, Fjármálaeftirlitið, bankastjórnendur, allir þessir aðilar VISSU í hvað stefndi en gerðu ekkert. EKKERT. Menn og konur vísa hvert á annað,en staðreyndin er sú að ALLIR þessir aðilar keyrðu landið í gjaldþrot auk þess sem það missti virðingu sína út á við. Hverjir borga brúsann? Við, kjósendur, fólkið í landinu, við öll frá ungabörnum til aldraðra. Áhrifin eru þegar farin að koma í ljós og munu fara versnandi næstu mánuði. Vanmætti mitt er algert.

Nína S (IP-tala skráð) 18.11.2008 kl. 23:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 8
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 45
  • Frá upphafi: 2985787

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 39
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband