Leita í fréttum mbl.is

Fúleggið og fréttamaðurinn

Ég veit ekki hvað er að verða með fréttastöðvarnar.

Þær skiptast á um að ganga fram af mér þessa dagana.

En núna held ég að þeir séu endanlega að flippa út.

Í fréttunum var rætt við félagsfræðing sem hafði áhyggjur af reiði almennings vegna skorts á svörum.  Hann hafði áhyggjur af því hvernig sú reiði gæti gæti endað ef ekkert yrði að gert.

Sem sagt fullkomlega alvarlegt umfjöllunarefni á skelfilegum tímum kreppu.

Gísli brandarakarl og fréttamaður sá ástæðu til að krydda þessa frétt með gamanmálum svona eins og hann hefur sennilega gert á Þorrablótum lífs síns, eða á töðugjöldum og hvað þau nú heita öll þessi fyrirkomulög úti í sveitum þar sem praktíseruð er lókalfyndni sem enginn nema innvígðir fá nokkurn botn í.

Með þessu er ég ekki að ráðast á landsbyggðina.

Öllu heldur er ég að ráðast á sveitamennskuna í fréttamanninum og skort hans á innsæi.  Hvenær er tími til að hlæja og hvenær er smekklegt að láta það eiga sig.

Í enda fréttarinnar át hann eggið.

Er einhverjum hlátur í hug?

Ég held að fjölmiðlarnir ættu að senda þá verst höldnu af starfsmönnum sínum í krísuviðtöl hjá sérfræðingunum.  Sumum virðist alls ekki sjálfrátt.

Og í lokin Gísli:  Þetta með gapastokkinn og lýðinn.  Ekki fyndið.  Bara alls ekki.

Sjá hér.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Gísli greyið fékk það verkefni að reyna að klóra yfir fréttina frá í gærkvöld með gamanyrðum, er það ekki augljóst?

Eruð þér einnig að hugsa um að segja upp störfum yðar, frú?

Mér fannst hann pínku fyndinn, en vorkenndi kallinum um leið.

Greta Björg Úlfsdóttir, 9.11.2008 kl. 21:21

2 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Sumir þekkja bara ekki sinn vitjunartíma.

Helga Magnúsdóttir, 9.11.2008 kl. 21:28

3 identicon

Mér finnst þetta akkúrat frétt sem má krydda aðeins með gamanmáli. Gera smá grín af líðnum sem kastaði eggjunum.

Always look on the bright side of life, dú dú dú dúdúdúdú...

Bjöggi (IP-tala skráð) 9.11.2008 kl. 22:16

4 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Hér talar hinn viti borni maður, sé ég.

Greta Björg Úlfsdóttir, 9.11.2008 kl. 22:18

5 Smámynd: María Kristjánsdóttir

En nú skil ég allt þetta andlega harðlífi á fréttastofunni- fyrst þeir lifa á harðsoðnum eggjum!

María Kristjánsdóttir, 9.11.2008 kl. 22:45

6 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Sá ekki meintan húmor í þessu hjá Gísla, samt er ég landsbyggðartútta að upplagi

Sigrún Jónsdóttir, 9.11.2008 kl. 22:52

7 identicon

Greinilega gúrkutíð eftir allan æsinginn undanfarið á fréttastofum landsins ef það þarf að fara að harðsjóða egg fyrir útsendingu.

alva (IP-tala skráð) 9.11.2008 kl. 23:14

8 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Sá sem borðaði eggið í fréttinni er frændi minn... hahaha

Róslín A. Valdemarsdóttir, 9.11.2008 kl. 23:16

9 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Vá! Þvílikt taktleysi og hroki! Gísli, mér fannst þú ágætur en nú ertu bara fífl eins og ég hafði lúmskan grun um. Far vel.

Jón Steinar Ragnarsson, 10.11.2008 kl. 05:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 7
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 2985874

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.