Leita í fréttum mbl.is

Nördinn er með tvær í takinu

Ein aðal ástæðan fyrir því að ég er ekki búin að tapa þeirri litlu glóru sem ég enn hef yfir að ráða er einfaldlega sú að ég hef nóg að lesa þessa dagana.

Ég hef sagt það áður og segi það enn að eitt besta ráðið á svona tímum er að lesa sig í gegnum þá.

Nóg er framboð af bókum í ár eða 759 titlar, það ætti að duga vel fram á mitt ár.

Þessa dagana er ég með tvær í takinu, sko bækur.  Reyndar var ég að ljúka annarri í gærkvöldi.

Bömmerinn við góðar bækur er að þær klárast alltaf.

ljósaskipti

Ljósaskipti er bók sem selst hefur selst í bílförmum í Ameríku.

Það má segja að bókin sé unglingabók fyrir unglinga á öllum aldri.  Hún er um vampírur.  Nútímavampírur sem eru nokkurs konar grænmetisætur, þ.e. þær lifa á dýrum ekki fólki.  Mjög hipp og kúl. 

Það er eitthvað við vampírugoðsögnina sem er svo heillandi en jafnframt skelfilegt.

Þarna er söguhetjan í nokkurskonar ástarsambandi við strák sem er blóðsuga. 

Ég var að pæla í því hvort vampírumenn væru ekki toppurinn á tilverunni hjá spennufíknum konum, hverjum ég hef átt sögu um að tilheyra.  Það yrði ekki afslöppuð stund með svoleiðis ástarviðfangi.

Hugsið ykkur að vera t.d. boðið út að borða af svona náunga og vera alveg: Verð ég drukkin eða kysst í kvöld?  Velur hann mig eða af matseðlinum? Spenna, spenna, spenna.

Svona fyrirkomulag gefur hugtakinu "að geta étið einhvern" algjörlega nýja merkingu.

Ég mæli heils hugar með "Ljósaskiptum".  Sökkvið tönnunum í hana börnin góð.Devil

Svo er ég að lesa "Bókaþjófinn" líka.

bókaþjófurinn

Þetta er bók sem ekki verður lesin einn, tveir og þrír.

Bókinni hefur verið líkt við "Dagbók Önnu Frank" og ekki út í bláinn sýnist mér.

Á vef bókaútgefandans segir:

"Lísella hefur dálæti á bókum en til að geta eignast þær verður hún að stela þeim – og í bókunum uppgötvar hún mátt orðanna og tungumálsins og um leið mátt illskunnar sem oft er tjáð í orðum. Þetta er sagan um hana og fólkið í götunni hennar sem bíður örlaga sinna þegar sprengjuregnið hefst.

Þetta er saga um hugrekki, manngæsku, gleði og ást en einnig ótta og óskiljanlega grimmd. Umfram allt er hún óður til lífsins og alls sem lífsandann dregur."

Til að gera langa sögu stutta þá er þessi bók algjör skyldulesning. 

Ég þarf engin kreppuviðtöl við sálfræðinga eða geðlækna (ha presta?  Eruð þið ekki í lagi?).

Reyndar horfi ég orðið nánast ekki á sjónvarp nema fréttir og fréttatengda þætti.

Syngjandi Býflugan á Skjánum er ekkert annað en ofbeldi á fólki sem á sér einskis ills von í kreppunni.

Útsvar, spurningakeppnin á RÚV gerir ekkert fyrir mig heldur, bara ekki mín kókdós svona utanbókalærdómsspurningakeppnir.  Er eitthvað svo nördað - of nördað fyrir mig sem er þó nokkuð af þeirri tegund fólks.

Neh, þá les ég í staðinn.

Sé ykkur seinna ljósin mín.  Ég þarf að sinna ákveðnu verkefni.

Hvaða verkefni?

Jú ég þarf að lesa smávegis.

Og hananú.  Nördinn hefur talað.

 


mbl.is Blómleg útgáfa bóka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég er að lesa Lisu Marklund, mjög góðar bækurnar hennar. 

Ásdís Sigurðardóttir, 4.11.2008 kl. 09:44

2 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Knúsilíus knús frá okkur Lindu,Gunnari og dætrum

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 4.11.2008 kl. 10:16

3 identicon

Ummmmm ég elska bækur.Ég á nokkrar hrikalega fyndnar bækur  frá 194og eitthvað.Þær eru margar vampírurnar sem hafa mergsogið íslenskt efnahagslíf og rústað tilveru okkar.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 4.11.2008 kl. 10:49

4 Smámynd: Hulla Dan

Þarf að óska mér þessara bóka í jólapakkan

Hulla Dan, 4.11.2008 kl. 11:03

5 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Bókaþjófurinn er frábær! Hún er búin að liggja í hillu hjá mér frá því að Magga systir lánaði mér hana í sumar (enska útgáfan að vísu) og mælti mjög með henni. Svo mundi ég eftir henni fyrir nokkrum dögum og er alveg sokkin niður í hana.

Núna er ég að lesa Erlu Bolla.

Haustið og veturinn er yndislegur bókatími.

Ragnhildur Sverrisdóttir, 4.11.2008 kl. 11:29

6 Smámynd: Tína

 Satt er það að það hljóti að vera spennandi að fara út að borða með vampíru. Held ég myndi samt aldrei þora því. Hmmmmmm umorðum þetta aðeins......... ég myndi ALDREI þora.

En það er hverju orði sannara að það jafnast fátt á við góða bók 

Annars eru nú skilaboð til þín á blogginu mínu krútta.

Tína, 4.11.2008 kl. 11:31

7 Smámynd: Villi Asgeirsson

Gaman að lesa um það sem þú ert að lesa. Ég las Skipið á sínum tíma og þótti mér hún frekar klisjukennd. Kleifarvatn var frábær, sennilega besta eftir Arnald. Ég er að þræla mér gegn um Konungsbók. Er kominn um 60 blaðsíður inn í hana og hún er bara ekkert að grípa mig. Farþeginn var skemmtilega létt en spennandi, þótt endirinn hafi verið soldið of auðveldur. Af erlendingum er það svo að segja að allt eftir William Kowalski er frábært, Douglas Adams er frábær ef maður er í stuði fyrir algert rugl og svo var Skuggi Vindsins eða hvað hún heitir á íslensku frábær.

:o)

Nú er ég að klára kvikmyndarhandrit og mér datt í hug að vippa því yfir í skáldsöguform. Veit ekkert hvort ég geti það, en er ekki um að gera að rembast og sjá til?

Villi Asgeirsson, 4.11.2008 kl. 11:33

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ásdís: Las "Lífstíð" eftir Lisu í sumar og mér fannst hún æði.  Dauðlangar að lesa fleiri eftir hana.

Hjördís: Já það er af nægu að taka.  Bara spennandi.

Birna Dís: Mamma las Ráðskonuna á Grund meðan hún gekk með mig og var að pissa á sig af hlátri.  Ég held að það hafi haft áhrif á mig, því ég hlæ stundum sjálf eins og brjálæðingur og verð að passa mig að vera snögg á pisseríið.  Hehe.  Er Ráðskonan ein af bókunum frá fjörtíuogeitthvað?

Ragnhildur: Ég er ákveðin í að eignast bókina hennar Erlu.  Bókaþjófurinn er alveg snilld.

 Tína: Kíki á skilaboðin.

Villi: Þú ert bissí.  Takk fyrir tipsin.

Jenný Anna Baldursdóttir, 4.11.2008 kl. 11:43

9 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Mig dauðlangar heim í bókaflóðið en ætli það verði nokkur fyrr en eftir stríð og þó aldrei að vita.

Ía Jóhannsdóttir, 4.11.2008 kl. 12:01

10 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Oh Bókaþjófurinn er uppáhalds! Ég las hana fyrir einu ári...svo aftur fyrir nokkrum mánuðum og er að lesa hana í þriðja.... bloggaði um hana á sínum tíma. Soldið spennt að sjá hvernig hún kemur út í þýðingu

Heiða B. Heiðars, 4.11.2008 kl. 12:08

11 Smámynd: Laufey B Waage

Set bókaþjófinn á jólagjafaóskalistann. Held ég sé ekki alveg þessi vampírutípa. En að sökkva sér í lestur góðra bóka er algjör unaður. Góða skemmtun.

Laufey B Waage, 4.11.2008 kl. 12:16

12 identicon

Kem og sæki þessi Ljósaskipti á eftir. Vil fá að láni takk takk.

Frumburðurinn (IP-tala skráð) 4.11.2008 kl. 12:21

13 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hjördís: Við frumburður skiptumst á bókum.

Það er svona héraðssafn.  hehe.

Jenný Anna Baldursdóttir, 4.11.2008 kl. 20:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 2985744

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband