Leita í fréttum mbl.is

Flott Erla Bolladóttir og Mikael Torfason fullkomnaði helgina

Ég horfði á viðtalið við Erlu Bolladóttur hjá Evu Maríu í gær. 

Mér fannst hún standa sig með prýði og mér finnst hún hafa unnið vel úr þeim skelfingum sem yfir hana dundu sem unga stúlku.

Þrjú ár í fangesli vegna rangra sakargifta fyrir utan einangrun og illa meðferð er nokkuð stór lífspakki svo ég taki nú ekki stærra upp í mig.

Annars fer þetta Geirfinnsmál ennþá alveg svakalega fyrir brjóstið á mér.

Ungir krakkar sem stóðu félagslega höllum fæti voru dregin inn í mál sem ég tel nokkuð víst að þau hafi ekki haft nokkuð skapaðan hlut með að gera.

Á þeim voru brotin mannréttindi og þau sköðuð og meidd fyrir lífstíð.

Þess vegna gleður mig að Erla skuli vera að skrifa bók um reynslu sína.

Auðvitað fæst þessi réttarskömm ekki endurupptekin, allt of margir valdamenn eiga þar hagsmuna að gæta.

Ég er eiginlega komin á þá skoðun að kerfið okkar sé búið að vera gjörspillt lengi og nú fyrst erum við að sjá afleiðingar þess og það í stórum skömmtum.

Mikael Torfason setti punktinn yfir i helgarinnar hvað mig varðar.

Hann var með talpistil í Mannamáli í gær og hann náði mínum eyrum og það algjörlega.

Við erum svo "góðir" við Íslendingar og svo fljótir að fyrirgefa.

Hehemm, ætlum við að halda því áfram.

Hér er Mikael.  Ekki missa af þessum frábæra pistli.

Kastljósið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Takk fyrir, missti af þessu öllu í gær.  Mikael var þrusugóður.

Sigrún Jónsdóttir, 3.11.2008 kl. 23:27

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Þeink jú! Hef nefnilega rekist á umtal um að Erla hafi ekki átt að fá að tjá sig!! Gæti ekki verið meira ósammála þeim sem segja svo......

Hvað er að fólki sem finnst að það megi ekki tala um þetta óréttlæti sem átti sér stað þarna?

Hvers vegna í ósköpunum ætti ekki að tala um það? Á alltaf að þegja allt til fjandans hér á landi?

Aftur Nenna mín! Þeink jú

Hrönn Sigurðardóttir, 3.11.2008 kl. 23:36

3 identicon

Erla er flott.Ég hitti reglulega eitt fórnalamb úr þessu ljóta máli.Hann nær sér sennilega ekki.Ríkið skuldar þessu fólki mikið.Sá ekki nema brot af Erlu og ekkert af hinu.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 4.11.2008 kl. 00:19

4 Smámynd: Kristjánsson

Hvernig í ósköpunum getið þið vorkennt manneskju eins og Erlu Bolladóttur sem að kom sök á eigin bróður til að bjarga sínu skinni.  Bróðir hennar sat inni í e-a mánuði út af þessu, hann fær þann tíma aldrei aftur...

Kristjánsson, 4.11.2008 kl. 00:41

5 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Þó menn vilji hafa samúð með Erlu og það er rétt að hafa samúð með þeim sem hafa ratað í ógæfu er ekki hægt að slá því föstu að hún hafi setið inni vegna "rangra sakargifta". Ef það væri rétt og vafalaust væri auðvitað engin ástæða til að taka málið aftur upp fyrir dómstólum vegna þess að niðurstaðan, að sakborningarnir séu saklausir, liggur þegar fyrir. En hún liggur ekki óyggjandi fyrir.

Sigurður Þór Guðjónsson, 4.11.2008 kl. 01:11

6 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Sá ekki Erlu en Mikael er alltaf góður

Jónína Dúadóttir, 4.11.2008 kl. 06:07

7 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Horfði á þáttin um Erlu og fannst hann merkilegur, ekki síst fyrir þær sakir að hún hafi verið misnotuð kynferðislega í fangelsinu og andlega.

En skrýtin var spurning Evu um það hvort hún hafi reynt að sporna við kynferðislegu misnotkuninni í "fangelsi"!

Mikael skoðaði ég hér og nú og pistill hans er eitthvað sem ætti að óma sem síbylja þessa daganna.

Edda Agnarsdóttir, 4.11.2008 kl. 06:44

8 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Erla kom mjög vel út úr viðtalinu. Og ég get ekki séð afhverju Kristjánsson er svona fúll út í hana... ef Einar gat fyrirgefið henni þá get ég ekki séð hverjum er ekki skítsama þó Kristjánsson geri það ekki

Og ég las líka þetta sem Hrönn er að tala um.... málið er bara að þaðan kemur sjaldnast eitthvað af viti hvort sem er þannig að maður hrekkur nú ekkert langt

Sumir vaxa bara aldrei upp úr því að vilja þaga hlutina í hel

Heiða B. Heiðars, 4.11.2008 kl. 09:12

9 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Margt sem fer fram hjá okkur þessa dagana svo takk kærlega fyrir að setja þetta hér inn.   

Ía Jóhannsdóttir, 4.11.2008 kl. 09:27

10 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég held að það sé orðið nokkuð ljóst að þessir krakkar voru hafðir fyrir rangri sök.

Enda var málatilbúningurinn þannig að þar stendur ekki steinn yfir steini.

Eftir eingagrun og illa meðferð segir fólk hvað sem er.  Ég tala nú ekki um unga stúlku sem var í aðstöðu Erlu með lítið barn heima.

Ég ímynda mér að bróðir hennar hafi skynjað þetta.

Svo mætti fólk fordæma minna.

Svo er rokið upp og öskrað af vandlætingu og áhyggjum yfir að konan skuli segja frá að hún hafi verið misnotuð í fangelsinu.

Fólk í rusli yfir vesalings lögreglumönnunum sem liggja nú ALLIR undir grun.

Ef þessi aðferð væri tekin, að ekki mætti segja frá því að maður hafi verið misnotaður í frystihúsi (dæmi) í Sóandsóbæ af því þá lægu allir í fokkings frystihúsinu undir grun.

Hver er andskotans forgangur hér.

Er í lagi með fólk.

Sjúkkitt þá er það sagt.

Jenný Anna Baldursdóttir, 4.11.2008 kl. 09:34

11 Smámynd: Úlfur

Það er alls ekki óyggjandi að þau hafi verið höfð fyrir rangri sök þó einh ver "haldi" að það sé nokkuð ljóst. Og formlega séð er dómurinn yfir þeim óhaggaður. Dómsniðurstöðum verður ekki breytt þó menn - jafnvel margir - hafi þá skoðun að málatilbúningurinn hafi ekki verið góður. Sýkn sektar er ekki svona einföld. Þó ég hafi fulla samúð með öllum sakborningum Geirfinnsmálisins og þekki suma þeirra og efist um sekt þeirra  gengur þessi málflutningur þinn ekki upp, að hægt sé að sýkna fólk án þess að til þess hæfir aðilar sýni fram á sekt þeirra hafi verið reist á málatilbúningi þar sem ekki "standi steinn yfir steini". Mér finnst þetta hálf vafasöm braut sem þú ert að fara í þessari færslu.  

Úlfur, 4.11.2008 kl. 12:48

12 Smámynd: Mál 214

Hægt er að sjá viðtalið við EB hér:

http://dagskra.ruv.is/streaming/sjonvarpid/?date-from=2008-11-02

Þeim sem vilja kynna sér þessi gömlu sakamál , og tjá sig um þau er bent á :

http://mal214.blog.is

Mál 214, 10.11.2008 kl. 03:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.