Leita í fréttum mbl.is

Sú litla gula afturgengin

Nú leika stjórnvöld og fyrrverandi bankamógúlar skemmtilegan leik sem ég las um í tímakennslu á Hagamelnum í denn.

Hjá honum Þórði en hann kynnti mig fyrir því heitasta í spennusögum fyrir börn með mjólkurtennur.

Það er alveg sama hvert maður snýr sér, þeir koma fram karlarnir einn af öðrum og hafa útskýringar á bálreiðum höndum.

Þeir vita nákvæmlega hvað olli hruninu.

Þeir eru allir hjartanlega sammála um að það hafði ekkert með þá sjálfa að gera.

The blame game?

Nei litla fokkings gula hænukrúttið all over again.

Og við krakkar mínir erum hænan.

Jabb dúllurassarnir mínir.


mbl.is Krónan stærsta vandamálið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já ætli smjörklípusmurð áróðursmaskína Heimdellinga sé ekki farin að mala aftur, búin að ná sér á strik og búin að finna upp hjólið.  Látum ekki endalaust plata okkur, það er komið nóg.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.10.2008 kl. 18:34

2 Smámynd: Ari Guðmar Hallgrímsson

Ekki benda á okkur segja Bakkabræður. Þetta er ríkinu að kenna segir Björg-úlfur. ekki tími til nornaveiða segir Geir. það má rekja sögu litlu gulu hænunnar eins og hún leggur sig í svörum þeirra sem áttu að bera ábyrgðina.

Kveðja

Ari Guðmar Hallgrímsson, 25.10.2008 kl. 18:53

3 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Ltila gula hænan, grísirnir þrír, Bakkabræður, Nýju fötin keisarans, Snædrottningin og ég veit ekki hvað fleira...öll gömlu sígildu ævintýrin gengin í endurnýjun lífdaga.

Greta Björg Úlfsdóttir, 25.10.2008 kl. 19:42

4 identicon

Þeir sem eiga sök segjast saklausir fram í rauðann dauðann.Verði þeim að góðu en sök bítur sekan.Ég ætla EKKI að taka neitt á mig fyrir þá.Held mínu striki eins og venjulega.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 25.10.2008 kl. 20:38

5 Smámynd: María Guðmundsdóttir

their eru ekki skárri en krakkaskammirnar thegar einhver braut glasid..."ekki ég..ekki ég..thad var HANN!"

annars bara gagalagú hédan

María Guðmundsdóttir, 25.10.2008 kl. 20:47

6 identicon

If you are the little yellow chicken I am the afturhaldskommatittur, and proud of it. rgs gb

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 25.10.2008 kl. 20:58

7 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Þeir hafa ekkert lært frá sandkassa árunum

Sigrún Jónsdóttir, 25.10.2008 kl. 21:01

8 identicon

Væri ekki hægt að orða þetta betur

Jón bróðir (IP-tala skráð) 25.10.2008 kl. 21:17

9 Smámynd: Steingrímur Helgason

Ljótt að bendla vænt fiðurfé við þennann ~zkríl~ ...

Steingrímur Helgason, 25.10.2008 kl. 22:28

10 Smámynd: Vilhelmina af Ugglas

Ég hef ekki enn sé frétt um fjölmenn mótmæli fyrir framan ættaróðal Björgúlfsfeðga. Standa þeir með okkur, stöndum við saman?Á litli Bjögginn peninga eða á hann bara skuldir eins og hann reynir að telja fólki trú um? Ef hann á peninga og flytur þá ekki ALLA heim til Íslands nú þegar stendur hann ekki með okkur og þá er hann á móti okkur, óvinur okkar! Þá á að lýsa hann útlægan!Þeir peningar sem þessir Björgúlfsfeðgar eru skráðir fyrir eru okkar peningar. Fríkirkjuvegur 11 er okkar hús. Opnið það strax og gerið það að félagsmiðstöð fyrir fólk sem vill hittast, styðja hvert annað í vandræðum sínum og ræða framtíðina.

Vilhelmina af Ugglas, 26.10.2008 kl. 09:27

11 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Íslenska ríkið á að gera Bjögga útlægan, ef hann sér ekki að sér á næstu dögum og kemur heim með peningana "sína". (Svona í alvöru þá held ég að það sé ekki alveg svo einfalt lagalega í nútímanum. Það þyrfti að beita lögum um landráð og sýna fram á að þau hafi átt sér stað. Annars er ekki hægt að svipta fólk ríkisborgararétti).

Síðan á það að taka Fríkirkjuveg 11 eignarnámi og opna húsið almenningi sem félagsmiðstöð þeirra sem lent hafa í hremmingum í bankakrísunni, og jafnvel athvarf þar sem fólk getur fengið að búa tímabundið.

Góð hugmynd, Vilhelmina.

Greta Björg Úlfsdóttir, 26.10.2008 kl. 09:55

12 Smámynd: Leifur H

Óttalega er leiðinlegt að sjá svona sleggjudóma og upphrópanir um þetta viðtal við Björgólf. Manni er nær að halda að fólk hafi ekki lesið það, en hafi samt skoðun.

Gréta, það kemur t.d. fram í viðtalinu að hann er að öllum líkindum orðinn eignalaus með öllu. Það er þá til lítils að heimta að hann komi heim með peningana sína.

Höfum ekki áhyggjur af Björgólfi, hann spjarar sig. Höfum frekar áhyggjur af öllu því góða fólki hér heima sem tók lán í erlendum gjaldmiðli, sem var fáránlega lágt skráður vegna þess hvernig Seðlabankinn hagaði sér í vonlausum stýrivöxtum.

Leifur H, 26.10.2008 kl. 15:23

13 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Höfum engar áhyggjur af Björgólfi, hann spjarar sig...detta mér nú allar dauðar...hver var að hafa áhyggjur af honum?

Greta Björg Úlfsdóttir, 26.10.2008 kl. 17:36

14 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Ég var líka hjá Þórði! í "vorskóla" held ég að tímakennslan hafi heitið. En var hann ekki að Melhaganum??

Ragnhildur Sverrisdóttir, 26.10.2008 kl. 22:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband