Leita í fréttum mbl.is

Játning

Stundum hlæ ég upphátt þegar ég les slúðrið í blöðunum.

Þetta sem kallast "Fólk í fréttum" en er auðvitað bara beint úr útlendum slúðurdálkum.

Þetta eru fréttir eins og þessi um hnakkaspikið á Jay Lo.

Eða þegar Madonna dettur á rassinn.

Ekki má gleyma að Meg Ryan var að segja frá því núna að Dennis Quiad hafi haldið fram hjá henni þegar þau voru gift fyrir milljón árum.  Þeir sem lesa slúður hefðu getað sagt henni þetta á meðan hþau voru gift.

Annars hef ég aldrei lagt mig eftir svona "fréttum", ég á hins vegar eina dóttur og sú býr í London og hún veit allt um "Fólkið í fréttunum".  En auðvitað kemst maður ekki hjá að lesa þegar verið er að þræða netmiðlana.

Og..

Það sem kætti mig svona að þessu sinni er fyrirsögn þessarar fréttar sem ég tengi við hér.

Lindsay hefur lengi verið lesbía!

Það er ekki sagt hvenær lesbíufyrirkomulagið sló Lindsay litlu í höfuðið en það mun vera dagsetning sem hún ætlar að halda leyndri.

Eins og þetta er sett fram má áætla að samkynhneigð konunnar sé eins og lungnabólga eða tennisolnbogi.

Lindsey hefur lengi verið með tennisolnboga.  Hún vill hins vegar ekki gefa upp hvenær og hvernig hún kom sér upp þessu handarmeini en glottir leyndardómsfull þegar hún er spurð.

Ég ætti að þekkja þetta.  Ég er gagnkynhneigð og búin að vera mun lengur en nokkurn gæti órað fyrir.

En, segi ég og brosi hæðnislega að þeim sem spyr um þennan merkisatburð sem legið hefur í þagnargildi, þá ætla ég og mínir fjölmörgu eiginmenn að halda upphafsdegi gagnkynhneigðarinnar innan fjölskyldnanna.

En ykkur get ég sagt í trúnaði og ég bið ykkur að segja ekki frá því fyrir nokkurn mun, þá var það einn vordag um kl. 15,13 eftir hádegi, þar sem ég steðjaði niður Bankastrætið í góðum fíling, að ég heyrði rödd inni í höfði mínu (karlmanns, nema hvað) segja ákveðinni röddu; Jenný Anna þú ert fyrir karlmenn.

Mér varð svo um að ég hef fram á þennan dag farið með þessa uppákomu sem mannsmorð.

Þess má svo geta í förbífarten að þennan sama dag í Bankastrætinu rétt áður en ég varð gagnkynhneigð þá fékk ég kvef.

Þetta var því dagur tveggja fyrirkomulaga.

Nema hvað.


mbl.is Lindsay lengi verið lesbía
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Til hamingju, ég er stolt af þér, þakka þér fyrir að opna þig svona fyrir okkur

Jónína Dúadóttir, 24.9.2008 kl. 21:08

2 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Ég er með tennisolnboga síðan... æ, ég man það ekki. Síðan ég spilaði keilu. Búin að vera þokkaleg, takk, en hann tekur sig upp endrum og eins samt.

Erfið játning. 

Lára Hanna Einarsdóttir, 24.9.2008 kl. 21:23

3 Smámynd: Lilja G. Bolladóttir

Já, ég man eftir sams konar upplifun, og það var eins og ég sæi ljós nálgast mig, og gott ef himnarnir opnuðust ekki líka

Lilja G. Bolladóttir, 24.9.2008 kl. 21:44

4 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

lesbíufyrirkomulag....elska þetta orð, á eina svona sjálf sem kallar sjálfa sig litla kynvillinginn á góðum stundum..

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 24.9.2008 kl. 21:52

5 Smámynd: Gulli litli

Eru Bítlarnir hættir?

Gulli litli, 24.9.2008 kl. 22:20

6 identicon

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 24.9.2008 kl. 22:25

7 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Ragnhildur Sverrisdóttir, 24.9.2008 kl. 23:24

8 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Hehe, Gulli jafnstuttur og snaggaralegur í húmornum eins og hann er langur, eða þannig!?

En...

Hver er Jay Lo?

Hvar datt Madonna á sinn guðdómlega bossa?

Voru þessi Meg og Dennis Q gift?

Já, ég játa, ég les aldrei F í F!

(skkildi ég vera bjáni að gera það ekki?)

Magnús Geir Guðmundsson, 25.9.2008 kl. 00:14

9 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þetta er náttlega ekki neitt.. eða þannig, þegar ég þrettán ára fór til heimilislæknisis míns, í einhverja skoðun man ekki hvað hehehe... þá sagði hann við mig, skoðandi grindina i mér, Ásthildur þú ert sköpuð til að eiga börn. Mér fokking brá alveg ógeðslega mikið, og fannst þetta hreinasta klám.  Andskotinn allavega er ég orðin 64 ára og hef ekki gleymt þessu enn, en karlinn löngu dauður, grafinn rotnaður, og ég veit ekki hvað.  Ætli þetta flokkaðist ekki undir kynferðislega áreitni i dag ?  En vissulega var ég sköpuð til að eiga.. ekki bara börn, heldur líka barnabörn, og væntanlega líka barnabarnabörn,  og barnabarnabarnabörn, dísus, ég vona að börnin mín hafi vit að að segja bara mamma og allir hinir

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.9.2008 kl. 00:38

10 Smámynd: Tína

Gott að þú komst loksins út úr skápnum með þetta Jenný mín, þó það hafi bara verið að hálfu leyti þar sem þetta má víst ekki enn fréttast. But your secret is safe with me. Alveg satt.

Tína, 25.9.2008 kl. 07:38

11 Smámynd: María Guðmundsdóttir

 lovjútothebone...

María Guðmundsdóttir, 25.9.2008 kl. 07:44

12 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Sigrún Jónsdóttir, 25.9.2008 kl. 08:58

13 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Sunna Dóra Möller, 25.9.2008 kl. 09:54

14 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Dúa: Hringdu þá í mig.

Annars er ég skellihlægjandi hérna.

Djöfull getur lífið verið skemmtilegt.

Jenný Anna Baldursdóttir, 25.9.2008 kl. 09:56

15 Smámynd: Marta B Helgadóttir

"Eins og þetta er sett fram má áætla að samkynhneigð konunnar sé eins og lungnabólga eða tennisolnbogi".

Þér eruð algjörlega óborganleg frú Jenný ! 

Marta B Helgadóttir, 25.9.2008 kl. 11:40

16 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

hehe, vestfirska skutlan hin ómótstæðilega frú Cesil, hefur áður tjáð oss af "brjóstgæðum" sínum miklu, svo ég tek nú bara undir með lækninum löngulátna "hún er sköpuð til að eiga börn" og það enn þann dag í dag!

Magnús Geir Guðmundsson, 26.9.2008 kl. 20:38

17 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jenný Anna Baldursdóttir, 26.9.2008 kl. 21:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 44
  • Frá upphafi: 2985775

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.