Leita í fréttum mbl.is

Um nauðgunarmál

Ég var að lesa leiðara Jóns Trausta inni á dv.is en hann er um nauðgunarmál.

Leiðarinn kemur að nauðgunarmálum frá dálítið öðrum sjónarhóli en vant er og þess vegna er hann mun sterkari fyrir bragðið og skyldulesning.

JT skrifar um þá afstöðu sem dómstólar og samfélgið taka gagnvart nauðgurum vs þolandanum.

Að hagmunir þolandans víki fyrir hagsmunum nauðgarans.

Einnig í sifjaspellamálum.

Eins og ég segi, þennan pistil á enginn að láta fram hjá sér fara.

LEIÐARINN


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Góður leiðar!!

Hrönn Sigurðardóttir, 22.9.2008 kl. 16:52

2 Smámynd: Beturvitringur

Mjög vel unnin grein. Takk fyrir að benda á þetta. Það sem hryggir mann er að þeir sem hafa slíka afstöðu eru ekki líklegir til að breyta henni. Hinir sjá viðbjóðinn sem þetta viðhorf veldur.

Beturvitringur, 22.9.2008 kl. 16:52

3 identicon

Hagsmunum fórnarlambs fórnað fyrir hagsmuni ofbeldismanns.Óþolandi,gjörsamlega óþolandi

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 22.9.2008 kl. 16:53

4 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Góður leiðari, takk fyrir.

Sigrún Jónsdóttir, 22.9.2008 kl. 16:58

5 Smámynd: Gulli litli

Flott skrif...

Gulli litli, 22.9.2008 kl. 17:20

6 identicon

Takk fyrir ábendinguna. Mjög svo tímabært sjónarhorn á það hvernig horft er á nauðgunarmál í samfélaginu - því miður er staðan sú sem Jón Trausti lýsir og það árið 2008. Pældu í því, þetta er upplýsta samfélagið okkar sem virkar svona!

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 22.9.2008 kl. 17:38

7 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Mjög flott skrif, vekur mann til umhugsunar

Sunna Dóra Möller, 22.9.2008 kl. 17:46

8 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Jón Trausti er góður enda ritstjórinn minn.

Helga Magnúsdóttir, 22.9.2008 kl. 17:51

9 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Góður pistill, takk fyrir að benda á hann.

Ía Jóhannsdóttir, 22.9.2008 kl. 17:57

10 Smámynd: Ragnheiður

Þetta er brilliant leiðari. Og það gleður mitt auma hjarta að sjá karlmann taka þessa afstöðu. Þeir þurfa nefnilega að koma meira með okkur stelpunum í að fordæma nauðganir, sifjaspell og heimilisofbeldi. Þá er mun meiri von um árangur í málaflokkunum. En sem betur fer eru margir karlar orðnir það hugaðir að þeir tjá afstöðu sína gegn þessari hegðun með beinum orðum.

Ragnheiður , 22.9.2008 kl. 18:26

11 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Mjög góður leiðari! Sammála, las hann áðan. Auðvitað eru langflestir karlmenn fullir viðbjóðs á þessu en sumir taka skrifum um þetta sem árásum á karlmenn, sem það er auðvitað alls ekki. Enginn er að dæma alla karlmenn fyrir ódæðisverk nokkurra.

Guðríður Haraldsdóttir, 22.9.2008 kl. 18:30

12 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Sammála, frábær pistill. Ég er á því að karlmönnum finnist þessi mál ekkert minna viðurstyggileg en okkur en þeim finnst kannski óþægilegra að tjá sig um það... sem mér finnst ekkert svo skrýtið.....þannig lagað

Heiða B. Heiðars, 22.9.2008 kl. 18:47

13 Smámynd: Jens Guð

  Mjög góður leiðari.  Alveg eins og flestir karlar hafa andstyggð á kynferðisglæpum eru líka dæmi um að konur taki afstöðu með kynferðisglæpamönnum.  Ég minni á nokkurra ára gamalt mál þar sem fórnarlamb nauðgunar var flæmt frá Húsavík.  Í ofsóknum gegn fórnarlambinu fóru fremstar í flokki stelpur sem voru í slagtogi með nauðgaranum. 

  Í því tiltekna máli blandaðist skörp stéttaskipting á Húsavík inn í málið.  Nauðgarinn tilheyrði yfirstéttinni en stelpan lágstéttinni.

Jens Guð, 22.9.2008 kl. 20:28

14 identicon

Frábær pistill og svo satt!

kveðja

Guðbjörg Erlingsdóttir (IP-tala skráð) 22.9.2008 kl. 20:28

15 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Góður leiðari...Við erum komin ansi skammt á veg.

En ég vil leiðrétta Jens.....meintur nauðgari var úr afar venjulegri fjölskyldu og tilheyrði alls engri yfirstétt.

Hólmdís Hjartardóttir, 22.9.2008 kl. 21:29

16 Smámynd: Huld S. Ringsted

Frábær pistill hjá honum og því miður svo sannur!

Huld S. Ringsted, 22.9.2008 kl. 22:23

17 identicon

Þetta var góð lesning sbr. raunir mínar í dag.  Manni verður hreinlega óglatt!!

alva (IP-tala skráð) 22.9.2008 kl. 22:52

18 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Takk fyrir að benda á þennan fína leiðara. Þar er hvert orð satt.

Lára Hanna Einarsdóttir, 22.9.2008 kl. 23:03

19 Smámynd: halkatla

Vá!

halkatla, 22.9.2008 kl. 23:35

20 Smámynd: Steingrímur Helgason

Jamm, óumdeilt góður leiðari & sannur.

Svei mér mánudaga, ef ég fer nú ekki að ázkrifanda DV aftur.

Steingrímur Helgason, 22.9.2008 kl. 23:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 2985756

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband