Leita í fréttum mbl.is

Laufin í vindinum

Unglingurinn í "Bjargvættinum í grasinu" vildi óður komast að því hvað yrði um endurnar á tjörninni í Central Park þegar hún frysi.  Hann spurði leigubílstjórann og sá varð ógeðslega pirraður á spurningunni og líka maðurinn sem hann hitti á göngu.  Þeir urðu pirraðir af því þeir vissu ekki hvað yrði um fjandans endurnar.  Annars er Bjargvætturinn ein af perlunum í bókahálsfestinni minni.

Og núna í dag, nánar til tekið, er ég með svipað vandamál og unglingurinn Holden í bókinni.

Á trjánum eru milljónir laufa.  Það er ekki þverfótað fyrir þeim á þessum árstíma og á reyndar eftir að versna.  Látin lauf út um allt.

Eftir veðrið í nótt er allur garðurinn hjá mér þakin laufum en nóg eftir á trjánum samt.

Miðað við allan þennan hóp af laufum er það stór undarlegt að þau skuli yfirleitt hverfa.  Mér fyndist mun rökréttara að þau væru í hrúgum og breiðum fram á næsta vor.

Hvert fara þau?  Hvernig geta þau horfið á svona stuttum tíma?

Kannski á ég að vita þetta.  Ég þekki jafnvel ekki rétta fólkið.  Má vera að ég hafi verið alin upp af fólki sem lét sér á sama standa um laufin á trjánum þegar þau voru fölnuð?  Var hún amma mín tilfinningaköld gagnvart afdrifum laufa og annarra náttúruafurða?

Held ekki en þetta kom aldrei upp í samræðum.  Hún kenndi mér hins vegar allt um blóðberg og fjallagrös ásamt því að setja mig inn í líf alþýðufólks í byrjun síðustu aldar.  Laufin urðu útundan af einhverjum ástæðum.

Segið mér hvað verður um laufin.  Ég er ónýt til allra verka þar til málið hefur verið til lykta leitt.

Annars góð.

P.s. Ætli það sé hugmynd að kveikja í þeim?  Ég meina lyktin hlýtur að vera góð.

Neh


mbl.is Mörg útköll vegna óveðursins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ég get sagt þér hvað verður um laufin!! Þau rotna og verða að mold... einfalt, þrifalegt og þægilegt

Hrönn Sigurðardóttir, 17.9.2008 kl. 10:19

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ekki á svona skömmum tíma ha?

Gerðu það höfum þetta flóknara.  Þeta eru aum og hversdagsleg afdrik mikilla hetja.

Jenný Anna Baldursdóttir, 17.9.2008 kl. 10:25

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Júbb næsta vor eru þau orðin að mold! Ég legg til að þú rakir þau yfir í beðin hjá þér! Annars verður garðurinn þinn bara forarsvað

Hrönn Sigurðardóttir, 17.9.2008 kl. 10:30

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ókí farin í rak.

Jenný Anna Baldursdóttir, 17.9.2008 kl. 10:38

5 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Fyrir um 3 eða 4 árum tók nágranni minn upp á því að kveikja í risastórum haug af fölnuðum laufum. Reykur og reykjarlykt liðaðist um allt hverfið og minnstu munaði að annar granni hringdi á slökkviliðið. Lyktin var ekki góð...  það var svona dæmigerð reykjarlykt.

Lára Hanna Einarsdóttir, 17.9.2008 kl. 10:41

6 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Í minni sveit kveikjum við í því sem rakað er saman en veit ekki alveg hvort það má hér í henni Reykjavík Jenný mín. 

Varð að láta hausinn í bleyti núna, hvað gerði ég við laufin í Traðarlandinu í denn, jú gróf þau niður, ógeðslega mikið og erfitt verk.  Hitt var sett í ruslapoka og einhver kom og hirti síðan að ég held. Síðan sér Kári (ekki Kári klári) um að afgreiða restina.

Ía Jóhannsdóttir, 17.9.2008 kl. 11:15

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ía: Takk fyrir þetta.  Nú skil ég betur.

Lára Hanna: Reykjarlykt??? Er hún ekki af hinu góða bara?

Jenný Anna Baldursdóttir, 17.9.2008 kl. 11:21

8 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Held þau rotni og verði að mold. Gott að láta þau vera í beðunum; góður áburður fyrir gróðurinn. Amma mín fór líka allta vestur í Ísafjarðardjúp og safnaði blóðbergi og fjallagrösum. Þetta tíðkaðist þar og hún fór á hverju sumri meðan hún gat.Vestfirskt?

Rut Sumarliðadóttir, 17.9.2008 kl. 11:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 2985766

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband