Leita í fréttum mbl.is

..og berin voru súr

 

Uppáhaldslykt Breta er af "fish and chips" og ég er ekki hissa.

Morgunmaturinn er það eina sem breskir kokkar fremja ekki kviðristu út af og matarsmekkur þjóðarinnar er í stíl við það.

Að þessu sögðu þá ætla ég að trúa ykkur fyrir því að ég fór að hugsa um lyktir.  Að þessu sinni aðallega þær sem mér þykir bestar.

Lyktin af börnum, sérstaklega þessum glæ nýju.  Jesús minn, ekkert sem toppar það.

Lyktin af uppáhaldsilmvatninu Famme sem auðvitað er hætt að framleiða, orðið svo gamalt, eins og ég.

Rjúpnalyktin á aðfangadag er sú öflugasta sem ég veit um.  Hún er af lyngi, jólum, hátíð og gleði. Helvíti leiðinlegt að það skuli þurfa að taka veð í fasteign til að geta eignast fuglinn einu sinni á ári.  Lífið er óréttlátt.

Ég fæ stundum kast á kartöflupoka og anda að mér moldarlyktinni upp úr þeim.  Stundum hefur þetta lyktarblæti verið þannig að ég hef nánast sofið með friggings pokann upp að nefinu.

Og svo er það lyktin sem hendir mér tuttugu til þrjátíu ár aftur í tímann.

Patchoil - hippalyktin sú, fann hana fyrir nokkrum árum í mannmergð og hné nánast út af í nostalgíu, ég var komin í Tjarnarbúð, Glaumbæ og Sigtún bara þar sem ég stóð, hviss-púmm-bang. 

Ákveðin meiklykt minnti mig á Inoxa litaða dagkremið sem ég sletti á andlitið á mér á gelgjunni og takmarkið var að glansa sem mest.  Ég vona að ég hafi þroskast nokkuð.

En þá man ég eftir því.  Sko í snyrtibuddu unglingsáranna var áðurnefnt Inoxa meik, House of Whestmore ógeðismaskari sem lengdi augnahárin eða hefði gert hefðu auglýsingar þess tíma verið marktækar, hvítur sanseraður eða mattur varalitur og mellubleikur líka á góðum degi.

Ég náði þeirri færni sem fátíð var og hefur enn ekki verið toppuð, að mála mig í strætó á fljúgandi ferð í hálku og sköflum, án spegils, eftir minni.  Málið var að það var bannað að mála sig, þannig að neyðin kenndi ómálaðri stúlku að spinna.

Æi ég er að missa mig í eitthvað hérna.  Löngu liðnir tímar, hvað er svona merkilegt við þá?

Ekki nokkur skapaður hlutur.

Og berin voru súr!

Uppáhladslykt einhver?


mbl.is Uppáhaldslyktin er frá „fish and chips"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Laufey B Waage

Ég er sammála þessu með ungabörnin og jólarjúpurnar. Og mín persónulega pathouli-blanda er næstum eini ilmaukinn sem ég nota á sjálfa mig - og hef gert það í áratugi.

Laufey B Waage, 27.8.2008 kl. 22:38

2 identicon

Ó já - allar þessar yndislegu lyktir sem hreinlega bara taka mann aftur í tímann - bara ljúft  .. en Jenný .. þú gleymir alveg "eplalyktinni" ...  manstu ... þegar jólin nálguðust og kassi af eplum var keyptur ummm þvílík unaðslykt   Í dag held ég að lyktin af nýþvegnum rúmfötum sem eru búin að hanga úti á snúru sé á topplistanum mínum, ásamt lyktinni af nýslegnu grasi 

Edda (IP-tala skráð) 27.8.2008 kl. 22:56

3 identicon

Ungabörn ilma yndislega

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 27.8.2008 kl. 23:03

4 Smámynd: Hulla Dan

Ungbarna lykt... Ekki spurning.
Og lakkrís lykt er bara gód.

Knús á tig inn í nóttina

Hulla Dan, 27.8.2008 kl. 23:28

5 Smámynd: Guðrún

Ungabörn - jólaeplalyktin - lyktin af rúmfötum nýkomin af stnúrunni - lyktina f þvottinum heima hjá ömmu minni (besta lykt í heimi) - útilyktina þegar maður er í uppi í sumarbústað eða í tjaldi og það er ný búið að rigna - kertalyktin ( hrikalega var ég búin að sakna kertanna í sumar þegar ég kveikti á kerti í fyrrakvöld)  

Guðrún, 28.8.2008 kl. 00:18

6 Smámynd: Tína

Ungabörn og ný slegið gras.

Knús á þig bestust og eigðu alveg yndislegan á vel ilmandi dag.

Tína, 28.8.2008 kl. 08:00

7 Smámynd: Elísabet  Sigurðardóttir

Ungbarnalykt, Þvottur af snúrunni, nýslegið gras, fersk fjörulykt (ekki úldinn þari), rök gróðurlykt, vöfflulykt, pípulykt, sundlaugarlykt, White musk og listinn getur verið endalaus.  Ég held að ég hafi verið leitarhundur í fyrra lífi, með svakalegt lyktarskyn.

Elísabet Sigurðardóttir, 28.8.2008 kl. 08:06

8 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Sammála flestu nema ef væri kartöflupokanum, færi ekki að sofa með hann við nefið á mér, nei held bara ekki.

  Hvernig ferður að því að muna eftir nöfnunum á öllu þessu sem við klíndum á andlitin í denn, Inoxa, House of Whestmore, ég brjálast hehehhe.... 

Ía Jóhannsdóttir, 28.8.2008 kl. 08:12

9 Smámynd: María Guðmundsdóttir

ungbarnalykt, kaffilykt, kleinulykt, vanillulykt 

en moldarlykt..ónó...ekki fyrir mig...

María Guðmundsdóttir, 28.8.2008 kl. 08:50

10 Smámynd: Þröstur Unnar

Lykt af pönnusteiktum Rauðmaga í bland við fjárhúsalykt.

Þröstur Unnar, 28.8.2008 kl. 08:59

11 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Öll jólalykt ....kanill...negull....rjúpur...epli ...bara 118 dagar til jóla spurning um að fara í geymsluna og kanna hvort seríurnar virki !

Sunna Dóra Möller, 28.8.2008 kl. 09:13

12 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Kaffi, vanillu, vöfflur ... ummmmm

Ó, ég man líka eftir LTD, litaða dagkreminu í gulu túpunni sem ég reyndi að "meika" mig með á unglingsárunum en með of þurra húð fyrir og endaði með brúna bletti víða um fésið. Ég vissi ekki hvernig ég gæti lagað það þannig að ég hef bara ekki meikað mig síðan.

Guðríður Haraldsdóttir, 28.8.2008 kl. 10:58

13 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

Nýslegna grasið og sjávarlyktin, mmm. Ilmurinn af ekta ítalskri bolognese að malla í 1 1/2 tíma í eldhúsinu. Rauðkálið að sjóða á aðfangadag. Ungbörnin, ójú. Sunna, kíktu á þessa síðu...

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 29.8.2008 kl. 08:53

14 Smámynd: Fararstjórinn

Fersk lykt af hafinu og vorlykt þegar gróðurinn er að vakna. Svo er eitthvað hlýlegt við lyktina í hesthúsinu. Kannast við þessar þungu lyktir sem maður úðaði á sig í denn, nú er það bara léttur úði af ávaxtailmi frá Leyndardómum Viktoríu sem blívur!

Fararstjórinn, 30.8.2008 kl. 13:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 2985771

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.