Leita í fréttum mbl.is

Dansinn kringum gullkálfinn

Ég er eiginlega með óbragð í munninum vegna frétta af þessu bruðlinu og hinu sem maður heyrir um nánast daglega nú um stundir.

Laxveiðiferðin hjá Villa, Binga og Gulla heilbrigðis er eitt dæmið.

Könnunarferð Samgöngunefndar um Stór-Reykjavíkursvæðið þar sem nefndarmenn gistu á Lúxushóteli við Elliðavatn, í staðinn fyrir að fara heim til sín,  er annað dæmi um þessa firringu fólks sem er kjörið af almenningi til að gæta hagsmuna okkar.

Fimm milljónir fóru í ferð Þorgerðar Katrínar til Kína, ásamt maka og ráðuneytisstjóra sem líka tók með sér hinn helminginn.

Þá erum við að tala um tvær ferðir, dagpeninga, hótel og ferðalög.

Í mínu bókhaldi eru fimm milljónir króna ansi miklir peningar.

Það virðist engu máli skipta þó hvert bruðlmálið komi upp af öðru, áfram heldur dansinn í kringum gullkálfinn.

Ég auglýsi eftir ráðdeild og eðlilegum viðmiðum í eyðslu og meðferð á peningum skattborgaranna.

Það þarf hagsýnar húsmæður í landsbókhaldið ég veit um margar svoleiðis.  

Og ef fólk vill fara tvívegis til Kína í stað einu sinni og ef sumir vilja veiða lax í snobbám er ekki hægt að rífa upp vísakortið eða debbann og gera það fyrir eigin reikning?

Hvers eigum við almenningskrúttin í lífsbaráttunni að gjalda?

Það er ekki eins og þetta fólk sé á strípuðum verkamannatöxtum.

Arrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrg

 


mbl.is Kínaferðir kostuðu 5 milljónir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Gunnarsson

Já þetta er rétt hjá þér .Þetta er ekki líðandi.

Gunnar Gunnarsson, 27.8.2008 kl. 17:57

2 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Arrrrrgh og garg! Aðallega af því ég hef saknað þín svo mikið

...en jú, líka út af þessu öllu saman. Það er svo skelfilega mikið í gangi núna að maður bara hefur ekki við að hneykslast! Þvílíkt og annað eins. Ég hugleiddi alvarlega að flytja í fjallakofa í óbyggðum. Mundi svo að það yrði frekar leiðinlegt svona eftir nokkra daga... svo ég kom aftur heim

 

Laufey Ólafsdóttir, 27.8.2008 kl. 18:37

3 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Elsku Jenný mín, ... ég er svolítið mikið sammála þér. Ísland er heimili í miklum kröggum, en svo tekur eitthað af heimilisfólkinu sig til, tæmir sparifé fjölskyldunnar og meira til - og fer í heimsreisu eða þannig.

Ég kostaði mína ferð til Kína sjálf þegar dóttir mín var að keppa fyrir Íslands hönd (í umdeildri keppni að vísu, en það er önnur saga) .. og hefði alveg þegið að sitja á lúxusklassa í 13 tíma leggnum. Ég greiddi um 115 þús fyrir ferð frá Keflavík-London-HongKong- Sanya.  Þetta voru þrír leggir í flugi.

Ráðherrar og annað "fínt" fólk ferðaðist fyrir einhverja marghundruðþúsundkalla og hefur örugglega ekki sætt sig við sardínusætin.  Smá útrás hér  ..

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 27.8.2008 kl. 18:57

4 identicon

Svo les maður fréttir eins og þessa http://dv.is/frettir/2008/8/27/getur-ekki-borgad-lifsbjorg-dottur/ um móðurina sem berst fyrir lífi dóttur sinnar og fær ekki styrk til þess frá ríkinu og getur ekki fjármagnað þetta.  Á meðan er ausið peningum í ferðalög og gistingar fyrir ráðamenn þjóðarinnar.  Þá er til peningur.  Skil ekki svona fjármálafræði.

Sigga (IP-tala skráð) 27.8.2008 kl. 19:08

5 Smámynd: Sólveig Kristín Gunnarsdóttir

Heyr heyr. Thetta er alveg skammarlegt.

Sólveig Kristín Gunnarsdóttir, 27.8.2008 kl. 19:41

6 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Ég ætlaði einmitt líka að segja Heyr heyr.

Við eigum að krefjast þess að teknar verði upp REGLUR fyrir þetta fólk að fara eftir.  Það á ekki að líðast að fólk geti skoppað út og suður í alls konar skemmtiferðir á kostnað skattgreiðenda.   Ojjjj.

Anna Einarsdóttir, 27.8.2008 kl. 20:24

7 Smámynd: Elísabet  Sigurðardóttir

 Mér verður alltaf bumbult.

Arrrrrrrrg

Elísabet Sigurðardóttir, 27.8.2008 kl. 21:09

8 Smámynd: Huld S. Ringsted

Heyr Heyr. Þetta getur gert mann alveg bandbrjálaðan þetta lið er móralslaust, algjörlega

Huld S. Ringsted, 27.8.2008 kl. 21:16

9 Smámynd: Lilja G. Bolladóttir

Djöfull er ég sammála þér, "kelling....." Á sama tíma og allt þetta er að gerast, þarf að loka Fjölskylduhjálpinni vegna þess að þar vantar 2,5 milljónir!!! Á meðan blikkar ríkisstjórnin ekki auga og gefur HSÍ 50 milljónir. Alveg verðskuldað, auðvitað, en maður veltir fyrir sér hvort það þurfi kannski fulltrúa fátækra fjölskyldna inn í ríkisstjórnina, svona rétt eins og hún hefur fulltrúa handboltans þar.....

Lilja G. Bolladóttir, 27.8.2008 kl. 21:26

10 Smámynd: Eva Benjamínsdóttir

Mér finnst þetta hrein og klár siðblinda. Mannskapurinn í góðum álnum en þarf að þiggja ölmusu frá þjóðinni, meðan útigangsmenn fá hvergi inni. Minn þumalfingur fer beint niður.

Eva Benjamínsdóttir, 27.8.2008 kl. 21:59

11 Smámynd: Sigrún Óskars

Er svo sammála þér, þetta er bara siðblinda. Ráðamenn þjóðarinnar komast upp með allt - við verðum reið í smá tíma svo gleymum við öllu.

Sigrún Óskars, 27.8.2008 kl. 22:06

12 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

úff hvað þetta var mikið antiklæmax eftir að hafa skrifað rósbleikan pistil rétt í þessu.

Ofsalega satt allt sem þú segir hér og rétt og hræðilegt og til skammar og mig langar bara til að grípa höndum fyrir eyrun og syngja lalalalalalalalala eins og litlu börnin.

Jóna Á. Gísladóttir, 27.8.2008 kl. 22:25

13 Smámynd: Laufey B Waage

Já það er gjörsamlega óþolandi hvað ráðamenn þjóðarinnar geta leyft sér að bruðla með almannafé.

Laufey B Waage, 27.8.2008 kl. 22:29

14 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Sko stelpur þetta endar með því að það verður til grasrótarhreyfing sem segir bruðlinu stríð á hendur.

Takk fyrir frábær innlegg í umræðuna.

Ég held að vel flestir séu komnir með upp í kok.

Jenný Anna Baldursdóttir, 27.8.2008 kl. 22:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband