Leita í fréttum mbl.is

Gamli lólítu graðnaglinn

aaa 

Ég minntist á það um daginn að við hér á kærleiks hefðum horft á Stones-myndina Shine a Lihgt.

Mér fanns hún frábær.  Það er eitthvað svo ótrúlega sjarmerandi og æðislegt að horfa á kallana á sviði.  Þeir eru að verða betri og betri.

En..

Merkilegast var að fylgjast með glæsilegasta mannflaki í heimi, af því hann var brosandi eins og gamall afi, alltaf að beygja sig niður að áheyrendum og stundum gaf hann þeim eitt og annð.  Keith er ofurkrútt.

Og svo var það Wúddarinn, hann var edrú for crying out loud.

Rosalega var skrýtið að sjá manninn allsgáðan á sviði.  Í staðinn fyrir að vera eins og löngu dáinn indjáni á hugbreytandi sveppum, dettandi um allt, þá var hann í þetta skipti eins og gamall maður af sama kynstofni og að ofan sem hefur aldrei gert annað en að úða í sig lífrænu grænmeti og stunda sunnudagaskóla.  Til hamingju Ronnie.

En svo féll hann á frumsýningunni, fór á séns með stúlku sem vart er búin að missa mjólkurtennurnar.  Ronnie getur verið langafi þessa barns og gott betur.  En hvað um það hann hunskaðist í meðferð.

Elsku karlinn, hann segist ekki vita í hvorn fótinn hann eigi að stíga.  Elskar eiginkonu og barn sko barnið sem hann sefur hjá.

Ef ég gæti fengið tíu mínútur með gamla manninum þá myndi ég segja honum að líkurnar á að rússneska telpukornið sé í alvörunni ástfangin af honum séu stjarnfræðilega litlar.

Auðvitað gerast ævintýri af og til, en halló var Anne Nichole hrifin af sínum öldungi? 

Hvaða unglingur fellur fyrir tinandi gamalmenni eins og Ronnie bara vegna hans föngulega ytra byrðis og án tillits til innistæðna í bönkum? 

Annar skil ég svona karla.  Þeir eiga allt, geta alls staðar fengið óskir sínar uppfylltar.

Kannski er honum slétt sama hvort hún er að segja satt eða ekki.

Gamli lólítu graðnaglinn.

Fyrirgeifð á meðan ég..

dingla mér.


mbl.is Wood veit ekki í hvorn fótinn hann á að stíga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þú kannt að koma orðum að hlutunum...

Bubbi J. (IP-tala skráð) 24.8.2008 kl. 13:02

2 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Ég get einhvernvegin ekki lýst þessari unaðsstund sem ég átti með myndinni "Shine a Lihgt", hún er bara æðisleg. Ég er líka að hlusta stundum á diskinn og ætla að fá mér myndbandið líka.

Það verður athyglisvert hvort hægt verður að bjarga Ronnie, þetta er eins og að vera gengin í barndóm! 

Edda Agnarsdóttir, 24.8.2008 kl. 14:20

3 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Vá, hvað ég ætla að horfa á þessa mynd á eftir.

Guðríður Haraldsdóttir, 24.8.2008 kl. 14:27

4 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Þessa mynd væri gaman að sjá.  

Ía Jóhannsdóttir, 24.8.2008 kl. 14:34

5 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Ef Ekaterina Ivanova er að sækjast eftir pundum frá Ronnie ætti hún að kynna sér sögu fyrri eiginkonu hans til margra ára hennar Krissy Wood. Vittu til Jenný,  Ivanova á eftir að sitja eftir með sárt ennið eins og svo margar Stones-stelpurnar og einu pundin sem hún fær verða aurarnir sem The Sun og önnur slúðurblöð greiða henni fyrir að segja frá þessu fylliríi og Viagra orgíu þeirra Ronnie.

Svanur Gísli Þorkelsson, 24.8.2008 kl. 15:37

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þessi færsla um Krissy er mér í fersku minni Svanur og segir ljóta sögu.

Annars mætti skrifa þykka bók um sterliseraða og steríótýpíska sýn rokkstjarnanna á konum.  Kvenfyrirlitningin algjör og þeir sem ekki bundu trúss sitt við klámstjörnur eða módel voru stórkostlegt frávik í kvennamálum.

Úff, ég má ekki byrja.

Jenný Anna Baldursdóttir, 24.8.2008 kl. 15:46

7 Smámynd: Villi Asgeirsson

Hann veit alveg að hún er ástfangin að gullinu og ljósinu. Honum er bara alveg sama því lambakjötið er svo mjúkt og gott.

Villi Asgeirsson, 24.8.2008 kl. 20:31

8 Smámynd: J. Einar Valur Bjarnason Maack

*lol*@ Laissez-Faire.

Jenný, þessi stúlka er fullorðin (23 ára) og ræður sér því sjálf, þá er hún ekki barn eða unglingur.

Mér þykir það bera vott um kvenfyrirlitningu hjá þér að tala um þessa konu sem barn. Eru konur ekki færar um sjálfstæða ákvarðanatöku fyrr en þær verða miðaldra og bitrar?

Ég er ekki að segja að mér þyki þetta sérstaklega fallegt samband, en for crying out loud, þetta er fullorðið fólk og ég skil satt best að segja lítið í þér að vera að sóa púðri í þessa vitleysu...? 

J. Einar Valur Bjarnason Maack , 24.8.2008 kl. 23:45

9 Smámynd: J. Einar Valur Bjarnason Maack

PS: Lolita í bók Nabokovs var 12 ára. Ekki 23. Það er talsverður munur á því að liggja með 12 ára barni og að vera með fullorðinni nó ungri konu.

J. Einar Valur Bjarnason Maack , 24.8.2008 kl. 23:47

10 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

J.E.V.B.M: Ég held að þú vitir hvert ég er að fara, er það ekki?

Lassi: Ég ætla héðan í frá að kalla þig Lassa leiðinlega, af því að ég er femínísti sko, eða nei, af því ég er húmanisti með attitjúd.

Jenný Anna Baldursdóttir, 25.8.2008 kl. 11:38

11 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

En Jený, ég sem er svo bálskotin í þér og það veistu líka! Samt er ég svo lítill og ungur, að ég næ þér vart nema í geirvörtur,s sem er þó ósköp yndislegt þegar þú faðmar mig!

Magnús Geir Guðmundsson, 25.8.2008 kl. 14:09

12 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Magnús Geir: Þú ert dúlla.

LL: It´s a fucking deal.

Jenný Anna Baldursdóttir, 25.8.2008 kl. 14:10

13 Smámynd: J. Einar Valur Bjarnason Maack

Tja... þú ert að væna RW um barnagirnd á þeim forsendum að aldursmunurinn á honum og þessari konu er talsverður.

Ekki satt? 

Það eitt og sér ber sterk merki um mannfyrirlitningu.

Ert þú á þeim brókunum að segja að öll sambönd þar sem aldursmunur á milli konu og karls sé meiri en 10 ár, sé eldri manneskjan þjökuð af barnagirnd?
SS: Meiraðsegja ef ég laðaðist að konu sem er einhverjum 20-30 árum eldri en ég og sú aðlöðun væri gagnkvæm, væri sú manneskja þjökuð af barnagirnd, víst hún laðast að mér, fullorðnum einstaklingi, eða ertu bara að gefa í skyn að karlar sem laðast að sér yngri konum séu barnaperrar?

Hefur þú séð myndina 'Harold and Maude' frá 1971?

Mæli sterklega með henni, gefur mjög skemmtilega sýn á þessi mál. 

J. Einar Valur Bjarnason Maack , 25.8.2008 kl. 14:30

14 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Harold and Maude er klassíker.

Ég er að tala um að þessir náungar eru að komast hjá því að lúta eðlilegum lögmálum.  Þeir reyna að vera ungir forever og eitt að leiðunum til þess er að vera með kornungum stúlkum.  Mér finnst það perralegt já og fer ekki ofan af því. 

Annars missi ég ekki svefn yfir þessu heldur en rokkstjörnur og þá einkum og sér í lagi sumir í Stones eiga sér enga prýðissögu í sambandi við konur.

Barnagirnd nei, en hálf ógeðslegt samt og í ætt við lólítudæmið.

Það á ég við JEVBM (þú heitir rosalega löngu nafni Einar Valur, hehe, lengra en dagurinn í gær bara).

Jenný Anna Baldursdóttir, 25.8.2008 kl. 14:34

15 Smámynd: J. Einar Valur Bjarnason Maack

En Lólíta var BARN, hér ræðir um fullorðinn einstakling.

Það væri nær að ræða um annan Rúllustein, Bill Wyman og samband hans við 13 ára stúlku á sínum tíma. Mér skilst þó að þau skötuhjú hafi beðið með allt kynlíf fram yfir lögráðaaldur. 

J. Einar Valur Bjarnason Maack , 25.8.2008 kl. 14:38

16 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

LL: Ladídadída.  Hvaða mynd er þetta maður.  Þetta er ógeðisauga.  Ég verð hrædd.  Værirðu til í að skipti kæri vinur?

Jenný Anna Baldursdóttir, 25.8.2008 kl. 14:46

17 Smámynd: J. Einar Valur Bjarnason Maack

Jenný, ég skrifaði mína skoðun á þessu máli á blogginu mínu. Mæli með því að þú kíkir á hana.

J. Einar Valur Bjarnason Maack , 25.8.2008 kl. 15:50

18 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Fyrirgefðu Ólafur minn.  Við erum ekki að tala um 16 ár við erum að tala um fjögurra kynslóða bil.

En það var ekki ætlun mín að meiða neinn.  Fyrirgefðu enn og aftur.

Jenný Anna Baldursdóttir, 25.8.2008 kl. 16:26

19 Smámynd: J. Einar Valur Bjarnason Maack

Ekki fjórar kynslóðir. Ekki nema börn eignist börn 9-10 ára að aldri. Hér ræðir um 2 kynslóðir um það bil.

61-23=38.

38/4= 9.25

Ef það er lengd kynslóðar, hef ég verið að misskilja eitthvað.

J. Einar Valur Bjarnason Maack , 25.8.2008 kl. 16:29

20 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Give or take one generation. Híhó.

Guð fyrirgefi mér, náðir þú í fermingarmyndina af mér Lassi?

Madre mia.

Jenný Anna Baldursdóttir, 25.8.2008 kl. 19:09

21 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ólafur: Mínir eru ekki betri.  Rétt hjá þér.

Jenný Anna Baldursdóttir, 25.8.2008 kl. 19:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 8
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 45
  • Frá upphafi: 2985787

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 39
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.