Leita í fréttum mbl.is

Silfur, silfur, silfur, minn málmur ekki spurning

Ég ætlaði að sofa af mér leikinn - skemmst frá því að segja þá sat ég hér í spennu og taugaveiklun.

Þetta er smitandi fjári.

Fínt að fá silfur, mér fannst leikurinn bara svo höktandi, ekkert flæði.

En þrátt fyrir smá vonbrigði (annarra en mín sko, ég er kúl) þá er þetta frábært.

Það frábærasta er að nú er þetta íþróttabull búið í bili.

Og rauðir dagar fram að jólum allir uppurnir.

Næsti rauði dagur á almanakinu er aðfangadagur jóla.  Jájá, ekkert slugs börnin góð.

Ég held að það sé 121 dagur til jóla, ég fer að byrja undirbúning.

Mikið skelfing ætla ég að fara og leggja mig.

Heimurinn verður að vera án mín á meðan.

Ég er hrifnari af silfri persónulega, þannig að ég er ánægð.

Síjúsí.


mbl.is Ísland í 2. sæti á ÓL
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

SILFUR er flott, ég er gríðarlega sátt við þennan árangur !

Ragnheiður , 24.8.2008 kl. 09:32

2 Smámynd: Sporðdrekinn

Frábært hjá þeim, alveg frábært!

Sporðdrekinn, 24.8.2008 kl. 09:34

3 Smámynd: Anna Guðný

Sammála, er meira fyrir silfrið

Anna Guðný , 24.8.2008 kl. 09:37

4 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Ég er með niðurteljara á síðunni minni .... jólin koma! ..ó já ...

Silfur er flottara - sammála.

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 24.8.2008 kl. 09:41

5 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Frábær árangur, gott þetta er búið og ég er sammála með silfrið... alltaf verið minn málmur líka

Jónína Dúadóttir, 24.8.2008 kl. 09:44

6 Smámynd: Sólveig Kristín Gunnarsdóttir

Einstakur árangur ekkert smá flott  hjá theim. Er ekkert smá stolt af theim

Sólveig Kristín Gunnarsdóttir, 24.8.2008 kl. 09:54

7 Smámynd: Dísa Dóra

Ég er að springa úr stolti yfir strákunum enda hafa þeir staðið sig frábærlega.

Ég fæ nú reyndar mun betri daga en jólin einhverntíman í nóvember

Dísa Dóra, 24.8.2008 kl. 10:11

8 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Silfrið er bara fínt, allavega fer ég ekkert á líminunni yfir því að við fáum ekki gullið. Þó það sé minn málmur.

Rut Sumarliðadóttir, 24.8.2008 kl. 10:17

9 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Frábært hjá strákunum

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 24.8.2008 kl. 10:29

10 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

  







Hólmdís Hjartardóttir, 24.8.2008 kl. 10:59

11 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Það fellur svo á silfrið finnst mér og það þarf miklu meira viðhald en gullið. Og svo finnst mér það fara dökkhærðu fólki betur en ljóshærðu. Annars er Beckham að fara að sparka bolta upp í áhorfendaskarann á lokahátíðinni í Bejiing á eftir. Hann kemur inn á rauðri tveggja hæða rútu að sjálfsögðu. Og nú fyrst eru þessi hálfvitar hjá BBC að sýna leikinn okkar, þoli þetta ekki...

Svanur Gísli Þorkelsson, 24.8.2008 kl. 11:02

12 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Strákarnir okkar eru bara flottastir

Sigrún Jónsdóttir, 24.8.2008 kl. 11:05

13 Smámynd: Ásgerður Jóna Flosadóttir

Sæl Jenný, silfrið hjá strákunum okkar er gífurleg landkynning.  Takk fyrir frábæra frammistöðu strákar.

kkv.

Ásgerður Jóna Flosadóttir, 24.8.2008 kl. 11:06

14 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Edda Agnarsdóttir, 24.8.2008 kl. 11:14

15 Smámynd: Helga Dóra

Fíla silfrið vel... Þeir stóðu sig eins og hetjur þessar elskur....

En hvað er málið með að byrja að tala um jólin.... Nú fer ég að fá jólapanikk og skólapanikkinn bara rétt að byrja líka.......

ÁFRAM ÍSLAND.... 

Helga Dóra, 24.8.2008 kl. 12:18

16 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég er að hita upp fyrir allar jólafærslunar sem koma á færibandi frá og með október.  Djók.

Svanur: Bretarnir vita greinilega ekki að við erum stórust í heimi.

Jenný Anna Baldursdóttir, 24.8.2008 kl. 12:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband