Leita í fréttum mbl.is

..dansað á línunni?

 linudans

Ég hef orðið svo fræg að fara á Kántríhátíðina á Skagaströnd sem nú heitir Kántrídagar.  Hvaða dagaæði hefur gripið um sig um allt land?  Enginn frumleiki til í jöfnunni?

En hvað um það, rétt fyrir aldamótin fór ég með hljómsveit húsbandsins sem hafði ráðið sig til að spila þarna vegna þess að díllinn var góður.  Þeir spiluðu blús og rokk strákarnir en engu að síður voru þeir beðnir um að koma.  Og við héldum á svæðið.

Við sváfum í Félagsheimilinu.  Það verður ekki á gestrisni Íslendinga logið.  Mig minnir að þetta hafi verið dýnufyrirkomulag í fyrrverandi sturtuklefa.  Okkur leið ágætlega samt, enda ýmsu vön.

Á föstudagskvöldinu var bandið á einhverjum pöbb (Kántríbær?) og þar var hið undarlegasta samansafn af fólki aðallega mönnum sem langaði í slag.  Merkilegur fjandi og fyrirgefið Skagaströnd, þetta voru tvímælalaust utanbæjarmenn.Halo

Gömul vinkona var á staðnum að kenna dans (línudans nema hvað) og hún hélt mér selskap.  Ég man ekkert sérstaklega eftir þessari hátíð að öðru leyti en því að þarna var enginn, ekki kjaftur sem var ekki sérfræðingur í línudansi.

Og það var stöðugt verið að gera tilraunir til að draga mig út á gólf.  Fyrirgefið en ég mun aldrei dansa línudans og það sagði ég þessum dansandi, kábojklæddu konum.

Þær alveg: En maðurinn þinn spilar kántrí og þú kannt ekki að dansa línudans????

Ég: Hann spilar ekkert kántrí og þó hann gerði það þá myndi ég aldrei fara út í þá fótamennt.

Þær litu á mig undrandi og sögðu í línudanskór; hann spilar víst kántrí. Okokok.

En ástæðan fyrir færslunni er einfaldlega sú að þarna þurfti ég að horfast í augu við fordóma mína og heimóttaskap.  Mér finnst kántrí svo plebbalegt og það er tengt við svona frekar undarlegt fólk í Ameríku.  Ég skammaðist mín fyrir að einhver gæti mögulega haldið að ég væri áhugamaður um tónlistina, lífernið, móralinn og dansinn.  Ég gæti ýtt mér í vegg af pirringi út í heimsku mína.

Þess vegna sat ég þarna og með nefið upp í loft, með ískaldan fyrirlitningarsvip á andlitinu og taldi mínúturnar þar til ég kæmist í sturtuklefann.

Ég var lúðinn, ekki spurning, því ég held svei mér þá að ég hafi verið eina kvikindið á staðnum sem EKKI skemmti mér.

Allir hinir voru í geðveiku fjöri og það sást langar leiðir.

Fruss hvað ég sé eftir þessu, ég hefði átt að henda mér í dansinn og hafa gaman af.  Það var held ég enginn sem þekkti mig þarna.

En síðan hef ég ekki komið nálægt Skagaströnd.

Húsband talar enn um hvað þetta hafi verið undarleg en skemmtileg lífsreynsla.

Og þá grjótheld ég kja...

Já ég er ekki í lagi en ég hef þroskast smá síðan þá. 

Hér er svo lagið sem húsbandið lagði á sig að læra til að geta skemmt á kántríhátíðinni (ásamt fleirum auðvitað).


mbl.is Góð stemning á Kántrýdögum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þröstur Unnar

Það hefði nú verið í lagi að tjútta pínu, addna kjelling. En er alveg "sammála" með ----------dansinn. Fæ margrómaðan kjánahroll og flý fram á gang þegar ég sé þetta fyrirbrygði.

Kántrý er flott stundum, ef réttir aðilar fremja það.

Þröstur Unnar, 17.8.2008 kl. 15:28

2 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

plebbismi

Brjánn Guðjónsson, 17.8.2008 kl. 16:54

3 Smámynd: Birna Guðmundsdóttir

Kántrý er er ein besta líkamsrækt sem til er - bannað að hlusta á textana í lögunum- um hundinn sem dó og konuna sem fór frá búi og börnum ásamt fyllibyttunni á barnum! Var full fordóma og plebbisma - fór svo til U.S.A og sá hve allir skemmtu sér konunglega í línudansi - lagði fordómana á hilluna um tíma og stundadi línudans- mér fannst ég upplifa ánægju og ef það er plebbalegt og merki um heimsku að vera svona kátur í kántrýinu - er bara gott að vera heimskur - endilega prófið línuna og dæmið svo

Birna Guðmundsdóttir, 17.8.2008 kl. 17:19

4 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

haha, það er óxla gaman að dansa línudans, eini mínusinn er þessi hroðalega músík :D

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 17.8.2008 kl. 20:00

5 Smámynd: Jens Guð

  Sennilega er hærra hlutfall af plebbaskap að finna í kántrýi en nokkrum öðrum músíkstíl.  Ef vel er leitað má samt finna ágætt kántrý með Neil Young,  Wilco og fleirum.

  Þar fyrir utan er hægt að hafa húmor fyrir plebbakántrýinu.  Ekki síst textunum.  Hérlendis skoraði Johnny King hátt með snilldar kvæðinu um Lukku-Láka og innsiglaði hið fræga rímorð "á" í íslenskt kántrý.  Hallbjörn toppaði það síðan með setningunni "hér á landi á". 

Jens Guð, 17.8.2008 kl. 20:24

6 identicon

hildigunnur ÞÓ! Þetta er besta mjúsikk í heimi!!!!

lelli (IP-tala skráð) 17.8.2008 kl. 20:33

7 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ég hef einu sinni dansað línudans! Það endaði með því að ég hneig í gólfið yfir hallærisskap allra hinna! Þetta geri ég vonandi ekki aftur

En fyndið var það...... 

Hrönn Sigurðardóttir, 17.8.2008 kl. 20:36

8 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Ég hef ekkert á móti línudans en getur verið að sporin séu of flókin fyrir suma hehehhe.... nei bara spyr, Þau eru nefnilega ekkert auðveld að læra svona á einu kántrýballi.  Annars eru kántrý lög misjöfn eins og þau eru mörg, sum alveg hundleiðinleg. Stand by your man girl.

Ía Jóhannsdóttir, 17.8.2008 kl. 20:47

9 Smámynd: Birna Guðmundsdóttir

Dúa –ertu enn á skömmustu aldrinum!! Skil ekkert í að ég hafi ekki verið lokuð inni – nöppuð á leiðinni út í búð –máluð í týgrisgallanum ,dansandi línudans með tryllt kánrý í eyrunum .Kannski ég skelli kúreka hattinum á hausinn næst svo enginn sjái að þetta er ég!!

Birna Guðmundsdóttir, 18.8.2008 kl. 01:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 2985887

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband