Leita í fréttum mbl.is

Maya og árin þrjátíu

20080415134755_1

Í dag á þessi falleg stúlka afmæli.  Hún er þrítug.  Þarna er afmælisbarnið með manni og barni.  Hún ber ekki árin sín utan á sér hún María Greta, en það eru pottþétt 30 ár síðan hún kom í heiminn, nánar til tekið á Fæðingarheimilinu í Reykjavík.

Maya er sæt og góð, dugleg og ákveðin.  Hún er sennilega á leiðinni til Hong Kong í næsta mánuði til að opna nýja Arrogant Cat búð og Oliver og Robbi fara væntanlega með.

Elsku Maysa mín innlega til hamingju með daginn þinn.  Það er á svona dögum sem mamma þín er frekar ósátt við að hafa þig í London og geta ekki knúsað stelpuna sína á þessum stóra degi.

En ég elska þig ljósið mitt.

Kveðjur frá okkur á kærleiksheimilinu.

IMG_3619

Snökt.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Til hamingju með fallegu stelpuna þínaHvað er því til fyrirstöðu að þú farir þá bara til London ?

Jónína Dúadóttir, 17.8.2008 kl. 08:49

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég fer að drífa mig í haust.  En ég vil hafa hana hjá mér alltaf.  Er það ekki þannig með okkur foreldra.  En ég sætti mig við að hún er orðin fullorðin.  Takk fyrir kveðjuna Jónína mín.

Jenný Anna Baldursdóttir, 17.8.2008 kl. 08:51

3 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Auðvitað viljum við hafa þau hjá okkur... alltaf

Jónína Dúadóttir, 17.8.2008 kl. 09:00

4 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Innilega til hamingju með stelpuna þína

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 17.8.2008 kl. 09:12

5 Smámynd: Þröstur Unnar

Sæt stelpa. Til hamingju með hana.

Þröstur Unnar, 17.8.2008 kl. 09:25

6 Smámynd: M

Til hamingju með dótturina

Ég er strax farin að tala börnin mín til og segja hversu ömurlegt sé að búa erlendis Allt í lagi að prófa en KOMA SVO HEIM 

Eigðu ljúfan dag. 

M, 17.8.2008 kl. 09:39

7 Smámynd: Tína

Mikið ofsalega er hún falleg kona hún dóttir þín. Hún hefur reyndar ekki langt að sækja fegurðina.

Innilega til hamingju með hana Jenný mín

Tína, 17.8.2008 kl. 09:48

8 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Til hamingju með dótlu þína.  Hún er falleg.

Edda Agnarsdóttir, 17.8.2008 kl. 10:04

9 Smámynd: Huld S. Ringsted

Til hamingju með glæsilegu dóttir þína

Huld S. Ringsted, 17.8.2008 kl. 10:10

10 Smámynd: Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir

Til hamingju með dótturina Jenný - hún er ekki bara falleg, hún er fögur.

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 17.8.2008 kl. 10:52

11 Smámynd: Hulla Dan

Til hamingju með hana dóttur þína.
Hún er ekkert smá falleg!

Ég skil þig vel að vilja hafa hana hjá þér alltaf! Þannig er ég líka í sambandi við mín börn.
Finnst samt pabbi minn og mamma stundum pínu eigingjörn þegar þau koma því nett að, að ég ætti kannski að flytja heim aftur.

Hulla Dan, 17.8.2008 kl. 10:58

12 Smámynd: Laufey B Waage

Til hamingju með hana . Mikið skil ég þig. Drengurinn minn varð 30 ára í sumar - og þá keyrði ég til Ísafjarðar til að halda upp á það með honum. Það var í fyrsta skipti í ég veit ekki hvað mörg ár sem við vorum saman á afmælisdaginn hans. Í öll hin skiptin hef ég samt, ásamt hjá-mér-stöddum-fjölskyldumeðlimum, haldið upp á afmælisdaginn hans með einhverjum hætti. Ég mæli með því fyrir þig í dag, fyrst þú ert ekki komin til London. Í alvöru. Fáðu einhvern með þér út að borða, bakaðu tertu, eða eldaðu veislumat.

Laufey B Waage, 17.8.2008 kl. 11:38

13 Smámynd: Rebbý

til lukku með dótturina

Rebbý, 17.8.2008 kl. 12:00

14 Smámynd: Hugarfluga

Til hamingju með afmælið, Maysa! Og knús á mömmsluna þína .....

Hugarfluga, 17.8.2008 kl. 12:08

15 Smámynd: Elísabet  Sigurðardóttir

Til hamingju með þína gullfallegu dóttur.

Elísabet Sigurðardóttir, 17.8.2008 kl. 12:43

16 Smámynd: Ásgerður Jóna Flosadóttir

Sæl, þú getur aldeilis verið stolt, til hamingju með djásnið þitt.

Ásgerður Jóna Flosadóttir, 17.8.2008 kl. 12:54

17 Smámynd: María Guðmundsdóttir

til hamingju med thessa fallegu konu og nei,hún ber sko ekki aldurinn utaná sér , uss hvad hún er flott

María Guðmundsdóttir, 17.8.2008 kl. 13:57

18 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Til hamingju með fallegu stelpuna þína og til hamingju með daginn Maya!

Hrönn Sigurðardóttir, 17.8.2008 kl. 13:58

19 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

Innilega til hamingju með Maysuna þína..

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 17.8.2008 kl. 14:18

20 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Innilega til hamingju með yndislegu stelpuna þína!!!

Guðríður Haraldsdóttir, 17.8.2008 kl. 14:30

21 Smámynd: Ragnheiður

innilega til hamingju með hana, hún er yndisleg

Ragnheiður , 17.8.2008 kl. 14:35

22 Smámynd: Ester Sveinbjarnardóttir

Til hamingju með daginn, frábært að hafa svona daga til að minna þig á hvað þú ert heppin að eiga svona yndislega stúlku.

Ester Sveinbjarnardóttir, 17.8.2008 kl. 14:45

23 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Takk fyrir allar fallegu kveðjurnar. Þetta á eftir að gleðja hana, ef það er ekki þegar búið að því.  Hún les alltaf bloggið mitt þessi dúlla.

Jenný Anna Baldursdóttir, 17.8.2008 kl. 15:05

24 Smámynd: Týnd kisa hefur þú séð hana?

Til hamingju með stelpuna;)

Týnd kisa hefur þú séð hana?, 18.8.2008 kl. 14:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 2985807

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband