Leita í fréttum mbl.is

Snúðar og kókómjólk - eðaggibara?

Við systurnar eigum langa og skrautlega ökusögu.

Hver á sinn máta.

Ég keyri ekki vegna dekksins sem losnaði undan bílnum í fyrsta skipti sem ég fór í bíltúr með börnin mín.  Ég fæ enn þakkarkort frá umferðadeild lögreglunnar á hverju ári vegna þeirrar ákvörðunar minnar að keyra ekki bíl framar í þessu lífi.

Sumar systur af sex keyra eins og brjálæðingar.  Blóta og sverja yfir fíflunum í umferðinni.  Eru sum sé eðlilegir íslenskir ökumenn.

Gusla systir mín sneiddi baksýnisspeglana af Fíatbílnum mínum fyrir margt löngu þegar hún var minn einkabílstjóri á sumri ástarinnar.  Við krúsuðum líka góða stund í sama bíl á götum borgarinnar í ýmiskonar snatti og við sáum ekki rassgat út úr augum vegna þoku.  Þokan reyndist vera gufa vegna slitinnar reimar í bíl, Gusla var mjög hissa.  Viftureim what?  Var það ekki veðrið?  Ég hló mig máttlausa, Fíatinn hafði ekki húmor fyrir þessari vankunnáttu og pabbi ekki heldur.

Ingunn systir mín skrapp í bakaríið 198tíuogeitthvað á risastórum kagga sem þau hjón höfðu fjárfest í.  Hún steig á bensínið þessi elska í staðinn fyrir bremsur þegar hún keyrði upp að húsinu sem var einn stór glerveggur.  Inn um gluggann fór hún og rann snyrtilega upp að afgreiðsluborðinu.

Alvöru kona reynir að halda andlitinu í öllum aðstæðum.  Hún missir ekki kúlið.  Þarna sat systir mín með stálbita á húddinu, glerlufsur í hárinu, brauð og kökur í framsætinu og bílinn sinn nánast óskaddaðan, og hún brosti breitt.

Bakarinn varð árásargjarn og gargaði og veinaði yfir nýja veggnum og innréttingunni.  Systir mín sá bara eitt í stöðunni, hún gat ekki bakkað út og keyrt á brott  vegna byggingarefnis af ýmsu tagi sem fylgdi innkomunni.  Hún gerði það eina rétta í stöðunni.  Hún bað brosandi um tvo snúða og kókómjólk

Hún rankaði reyndar við sér með hendur bakarans um hálsinn á sér í krampakenndri tilraun til að binda endi á líf hennar eða allt að því.  En það skiptir ekki máli, hún hélt kúlinu.

Systurnar Önnu og Baldursdætur eru umferðarlögreglunni stöðug hvatning til að gera betur.W00t


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Laufey B Waage

Konur eins og þið, gera lífið skemmtilegt. Alla vega svona í eftiráfrásögnum.

Laufey B Waage, 22.7.2008 kl. 09:14

2 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Hehehhe deginum reddað!!!!!!!!!  Er farin að gera eitthvað af viti.

Ía Jóhannsdóttir, 22.7.2008 kl. 09:15

3 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

 .. það er gott að þekkja sín takmörk! ..

Ég hef lent í glimrandi ævintýrum, braut stýrið á Citroen Diane bílnum mínum (en hélt áfram að keyra gat bara ekki beygt), varð bremsulaus á Ford Fairlaine og stöðvaði á girðingunni heima hjá mér og var í logandi VW en fékk slökkviliðið til að slökkva í aftursætinu og hélt áfram.. en er kominn á svona ömmuhondu núna, eins og dóttir mín orðar það og bara vonandi nokkuð seif.

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 22.7.2008 kl. 09:38

4 Smámynd: Dísa Dóra

hahahaha dásamlegar sögur

Dísa Dóra, 22.7.2008 kl. 09:43

5 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Frábærar systur, þið eigið náttl. bara að hafa einkabílstjóra.  Hún hefur laglega haldið kúlinu. Þetta með snúðana minnir mig á ungan strák frá Húsavík sem var illa holgóma sem barn, auðvitað voru hrekkjalómar sem sendu hann í bakaríið að kaupa þrjá snúða, því það var erfitt fyrir hann að segja þrjá. Hann reddaði sér flott og bað þrisvar sinnum um einn snúð, einn snúð og einn snúð. Málinu reddað. Farðu vel með þig í dag.

Ásdís Sigurðardóttir, 22.7.2008 kl. 10:33

6 Smámynd: Bergljót Hreinsdóttir

Thíhí...svona konur gefa lífinu lit...!!!!!

Bergljót Hreinsdóttir, 22.7.2008 kl. 10:34

7 Smámynd: Elísabet  Sigurðardóttir

Það er eins gott að halda kúlinu hahahaha.  Snilld. 

Takk fyrir frábært blogg.

Elísabet Sigurðardóttir, 22.7.2008 kl. 11:47

8 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Ég er farin út að keyra.

Edda Agnarsdóttir, 22.7.2008 kl. 12:07

9 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Þú ert snilld Jenný Anna

Sigrún Jónsdóttir, 22.7.2008 kl. 12:25

10 Smámynd: María Guðmundsdóttir

  OMG!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Geri adrir betur..hahahahahaha....unbeliveble bara !! 

María Guðmundsdóttir, 22.7.2008 kl. 12:57

11 Smámynd: Kolgrima

hahahahhaha, þú ert bara frábær! Skyndilega verður amstur dagsins leikandi létt, takk fyrir þetta

Kolgrima, 22.7.2008 kl. 13:38

12 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Ég ætla að fá eihn snú eihn snú eihn snú. Sagan sem Ásdís segir er ný fyrir mér. Hef margoft farið með snúða-textann en vissi aldrei um upphaf hans. hehe

En snúður og kókómjólk... var einu sinni uppáhaldið mitt. En frásögnin er drepfyndin (deili samt í með 100  )

Jóna Á. Gísladóttir, 22.7.2008 kl. 21:27

13 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jóna Alltaf að deila með 100 ef ekki 1000 þegar ég segi frá.  Því skyldi skemma góða sögu með sannleikanum. Hehe.

Þið eruð frábær.  Mér finnst gaman að geta hlegið með fólki.

Jenný Anna Baldursdóttir, 22.7.2008 kl. 21:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 2985799

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.