Leita í fréttum mbl.is

Blankur Bubbi?

 bubbinn

Stundum er ég ógeðslega fyrirsjáanleg.  Það er svo dæmigerð Jenný Anna að láta Bubba pirra sig.

Ég var búin að lofa mér að hætta að blogga um Bubba þegar hann fer í taugarnar á mér, það er svo vont fyrir þrýstinginn, en get ég staðið við það?  Nei, að þessu sinni verð ég að gera eins og allir hinir og pirra mig á prenti.

En ég ætla að byrja á jákvæða hlutanum.  Bubbinn er ágætur í viðtalinu.  Ekki óbærilega montinn (en montinn samt), ekki mjög yfirlýsingaglaður og bara svona í skárri kantinum.  Svo er hann hamingjusamur og það gleður mig alltaf þegar fólki líður vel.

Og þá er það frá eins og skáldið sagði.

Bubbi hefur talað gegn öllum andskotanum.  Hvölum, fátækt, græðgi og  með serbnesku blómi.

Og nú telur hann sig þess umkominn að segja Björk og Sigur Rós fyrir hvaða málefni þau eigi að halda tónleika.  Hann segir orðrétt:

"Sá sem býr á Íslandi í íslenskum raunveruleika á að gera sér grein fyrir því að það eru alvarlegri hlutir að gerast en álversframkvæmdir."

Ásbjörn, "wake up and smell the fucking coffie".  Álversframkvæmdir og virkjanir, umhverfisspjöll og allur sá pakki er varanlegt vandamál fyrir komandi kynslóðir ef stjórnmála- og peningamenn fá vilja sínum framgengt.

Bubbi hefði verið maður að meiri hefði hann sleppt þessu skítkasti í garð Bjarkar og Sigur Rósar.

En ég skil vel að fátæktin sé Bubbanum áhyggjuefni.  Í viðtalinu kemur fram að hann tapaði stórfé í hlutabréfaviðskiptum.  Í ljósi þess skil ég röflið í honum.

Fátæktin er eilíft baráttuefni.  Stjóriðjumartröðin er mál dagsins í dag.  Ef við reynum ekki að koma í veg fyrir stórslysin þá sitjum við uppi með álver út um allt, eiturspúandi náttúruspilla sem jafnvel verða ekki aftur tekin.

Ég hef áhyggjur að því.

En ég hef ekki tapað krónu í hlutabréfaviðskiptum.  Einfaldlega vegna þess að ég kaupi ekki hlutabréf.  Amma mín talaði úr mér græðgina í frumbernsku.

Så det så.

Kem að vörmuDevil


mbl.is Björk ætti frekar að syngja gegn fátækt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Mannvitsbrekkan Bubbi með 0.1 prómilla halla. Hvers vegna stökkva allir upp til handa og fóta við allt sem veltur úr hans sjálfmiðaða munni eins og Saraþústra sjálfur hafi mælt?

Skítt með náttúruspjöll.´Að gera okkur háð áli sem helstu tekjulind þjóðarinnar þýðir að efnahagur og afkoma hér stýrist algerlega af stríðsrekstri bandamanna og neyðir okkur í framtíðinni til að styðja allt slíkt brölt. Hvað finnst fólki um það prospekt?

Wake up and smell the blood, segi ég.

Jón Steinar Ragnarsson, 19.7.2008 kl. 12:10

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

LF: Rétt það átti að koma fram.  Ég er ekki hlutabréfakona.  Ekki happdrættiskona heldur.  Takk fyrir Lassi minn.

Jón Steinar: Rétt.

Jenný Anna Baldursdóttir, 19.7.2008 kl. 13:06

3 identicon

Jenný ég las viðtalið við Bubba sem mér innst inni undrvænt um frá því að ég vann með honum á roðflettivélinni í Vestmannaeyjum 1974en hefur alltaf þótt egóið hans vera að þvælast all rækilega fyrir honum. Svo bar við í þessu viðtali að ég nánast fann ekki fyrir þessu bólgna egói og er klárt að strákur er að ná inn að kjarnanum eða ég vil trúa því. Mér fannst hann segja skoðun sína en ekki vera að hrauna yfir Björk og Sigurrósu, engan vegin skítkast. Björk hefur skýrt frá því að hún sé ekkert á móti að við nýtjum okkur orkuauðinn en ekki til brúks í mengandi orkuver á við álverksmiðjur. Mín skoðun er að Íslendingar noti orku- og vantsauðin okkar landsmönnum til auðs og atvinnusköpunar. EKKI HANDA FÁUM ÚTVÖLDUM AUÐMÖNNUM, SEM SPILLTIR STJÓRNMÁLAMENN ÚTDEILA. sólskynskveðjur frá Þuríði í miðbænum

Þurí (IP-tala skráð) 19.7.2008 kl. 13:11

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Þú átt bara alls ekkert að hemja þig í skoðunum, gætir fengið viðvarandi háþrýsting og það væri ekki gott.  Bubbi þolir alveg skoðanir þínar og hann lærir líka af þeim held ég, ef hann les þetta. Eftir að hafa lesið bloggin hjá Birnu Dís og séð þar að það er hópur fólks í bænum í þörf fyrir brækur og sokka, þá segi ég nú bara lítum okkur nær.  Reddum okkar ógæfu fólki, gefum því séns á skárra lífi.

Góða helgi kæra kona Love You sá hvorki né las viðtalið sem um er rætt.

Ásdís Sigurðardóttir, 19.7.2008 kl. 13:22

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ásdís: Er hægt að líta sér nær en í næsta sveitarfélag þar sem t.d. eru hafnar álversframkvæmdir?

Þurí: Ég hef ekkert á móti honum Bubba, finnst konuplatan hans frábær en það er offramboð á manninum og skoðunum hans.  En það er rétt hann var óvenjulega lágstemmdur og penn í viðtalinu.

Jenný Anna Baldursdóttir, 19.7.2008 kl. 14:03

6 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Bubbi er krútt - en ekki hafin yfir gagnrýni!

Edda Agnarsdóttir, 19.7.2008 kl. 14:06

7 identicon

Bubbi er svo leiðinlegur og ofmetin, sérstaklega þegar það kemur að tónlistinni hans. En núna er ég sko ánægður með karlinn !!!!

Það er svo gaman að lesa skoðanir fólks sem hefur ekki neitt vit á því sem það er að segja, þessvegna finnst mér gaman að bubba og þessvegna les ég bloggið þitt Jenný ;)     

Bjöggi (IP-tala skráð) 19.7.2008 kl. 18:57

8 Smámynd: Himmalingur

Jenný mín: Lestu endilega bloggfærslu mína frá 14.6.2008!" Er Bubba Mortens sama um náttúru Íslands eða þorir hann ekki að styggja peningamenn"!!! Kveðja, knús og allur pakkinn!

Himmalingur, 19.7.2008 kl. 19:15

9 identicon

æi má hann ekki hafa þessa skoðun. hann var ekki að segja að "þau hefðu átt" heldur að "honum findist að að þau hefðu átt" það er stór mundur þar á. Merkilegt hvað bubbmundur má ekki segja sína skoðun eins og hver annar ánþess að hann sé fordæmdur fyrir það eða það valdi fjaðrafoki......! Ég hlusta mikið á tónlistina hanns og hef gaman af honum. en ég er alls ekki alltaf sammála honum og sumt finnst mér bölvað bull en annað gott og gilt en það er líka bara mín skoðun. maður á að virða skoðanir annara en ekki fordæma fólk fyrir þær.

Bjarki Hall (IP-tala skráð) 19.7.2008 kl. 20:44

10 Smámynd: Hin Hliðin

Það er alveg rosalega auðvelt að vera sötrandi kaffi í miðborg Reykjavíkur og röfla yfir álverum og orkuverum.  Hvað með fólkið sem býr á þessum stöðum og treystir á að fá þessi fyrirtæki til að geta haft vinnu?

Skítt með fólkið kannski?

Ef það á að koma í veg fyrir þessar framkvæmdir þá verður eitthvað að koma í staðin, eitthvað raunhæft.  VG og aðrir líkir vilja kannski bara leggja landsbyggðina niður, flytja alla á höfuðborgarsvæðið.

Hin Hliðin, 21.7.2008 kl. 13:19

11 identicon

"En ég hef ekki tapað krónu í hlutabréfaviðskiptum.  Amma mín talaði úr mér græðgina í frumbernsku"

Kannski hefur þú ekki tapað beint, en mér finnst afar líklegt að þú hafir einhverntímann - og vonandi enn - borgað í lífeyrissjóð. Þá á þetta ekki við lengur.

Ein stærsta ástæðan fyrir því hvernig FL sukkið viðgekkst var einmitt sú að hluthafar, almenningur, veit ekkert hvað er að gerast eftir að iðgjaldið hefur farið burt af launaseðlinum.

Þrándur (IP-tala skráð) 21.7.2008 kl. 13:27

12 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þrándur: Jú, hef borgað í lífeyrissjóði ofkors, alla mína tíð og nýt nú um stundir góðs af vegna veikinda.

Þannig að ég er í bransanum?

Jenný Anna Baldursdóttir, 21.7.2008 kl. 13:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 9
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 46
  • Frá upphafi: 2985788

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband