Leita í fréttum mbl.is

Sendiboðinn skotinn - búmm pang

 stress

Flott rannsókn frá Dönum um að fólk sé orðið meðvitaðra um streitu.  37% Dana hafa einhvern tímann tilkynnt forföll úr vinnu vegna þess.

Og nú rannsökum við okkar einka stress hér og í kommentakerfinu.  Mitt stress og svo ykkar.

Ég hef aldrei og mun aldrei tilkynna mig frá vinnu eða öðrum skuldbindingum vegna streitu.  Ég er af gamla skólanum.  Mér var kennt að allt sem ekki mældist á hitamæli vel yfir 37 á Celsíus væri þreyta og í versta falli aumingjaskapur.  Þetta hefur fylgt mér út lífið upp á gott og vont.

Ég er hamingjusamlega ómeðvituð um ástandið þegar ég er stressuð.  Kem alltaf af fjöllum þegar mér er bent á það og bregst illa við sendiboðanum og skýt hann á staðnum.  Búmm pang.  Ég átta mig fyrst þegar streitan hefur yfirgefið og þá fæ ég svona uppljómun, alveg, ókei ég var svona stressuð.

En ég veit að ég er undir álagi:

Þegar mjólkurfernan fer í kústaskápinn, fægiskóflan í ísskápinn og mistökin með mjólkina verða ljós einhverjum dögum síðar þegar lyktin er farin að minna á eitthvað sem hefur gefið upp öndina seint á síðustu öld.

Þegar ég man ekki kennitöluna mína þó líf mitt liggi við.

Þegar ég man ekki af hverju ég stend á ákveðnum stað í íbúðinni og verð að fara til baka á upphafsreit,  muna það þá mögulega eða ekki.

Þegar ég man ekki nafnið á eiginmanninum og horfi á hann eins og ókunnugan mann og ég er að hugsa; hver er þetta aftur, asskoti kannast ég við hann (ok,ok,ok, næstum því).

Þegar ég tek upp símann til að hringja, man ekki hvert, legg á og man, lyfti og gleymi.  Endurtekið svona 30 sinnum.

Ég er undir lífshættulegu álagi þegar ég gleymi að taka með mér sígaretturnar ef ég fer eitthvað.

Alvarlega en það getur ástand mitt ekki orðið, ég sver það.  Hefur gerst einu sinni og ég reyndist vera í taugaáfalli.W00t

Hvað ætli myndi gerast ef maður hringdi á skrifstofuna á mánudagsmorgni og segðist vera að drepast úr stressi og tilkynna forföll?

Ég veit hvað ég hefði hugsað fyrir nokkrum árum ef einhver hefði hringt í mig með svona afsökun fyrir fjarvistum.  Ég hefði haldið að viðkomandi væri að grínast.  Svo hefði ég sagt honum að haska sér í vinnuna og hætta þessu væli.

En ég er líka vond kona.

Cry me a river í boði hússins.  Ljúft fyrir svefninn.  Björk klikkar ekki.


mbl.is Fólk meðvitaðra um streitu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

He, he, góð að vanda.  Stress er leiðinda uppákoma. Love You

Ásdís Sigurðardóttir, 19.7.2008 kl. 00:03

2 identicon

Af hverju kannast ég við sum "undir álagi" einkennin - ég sem er ekki undir neinu álagi - eða þannig ????

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 19.7.2008 kl. 00:07

3 Smámynd: Laufey B Waage

Ég man ekki eftir að hafa áður heyrt Björk syngja Cry me a river (eitt af uppáhaldslögunum mínum). Takk fyrir kærlega.

Ég þarf nú ekki að vera undir álagi, til að fara inn í eitthvert herbergi - og muna ekki hvað ég vildi þangað. Það er alvanalegt - og daglegt brauð. 

Laufey B Waage, 19.7.2008 kl. 00:13

4 Smámynd: Steingrímur Helgason

& að auki reykir þú ennþá & ert líka verri vinstri græn femma.

Merkilegt hvað mér líka nú aumir syndarar sem þú, 'ezzgan'.

Steingrímur Helgason, 19.7.2008 kl. 00:28

5 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Ég skil þetta ekki, ég kannast líka við öll þessi "álagseinkennin" ég hlýt að vera undir álagi. - Hvernig ætli ég sé þá, þegar ég er ekki undir álagi. - 

 Stundum þegar ég á erfitt með að sofna, grunar mig, að þá sé ég of stressuð,  en það gleymist um leið og ég sofna.

En það mundi lítið þýða fyrir mig að nota það sem afsökun fyrir að geta ekki mætt í vinnu, að ég væri haldin "streitu". -

Ég mundi örugglega ekki þurfa að mæta framar í þá vinnu.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 19.7.2008 kl. 00:49

6 identicon

Ljúfan ... þetta heitir "hálfsheimer" ... sem sagt á góðri leið með að fá Alsheimer .. eins og ég!!!  Gleymdu þessu með stress eða streitu!!!

Edda (IP-tala skráð) 19.7.2008 kl. 00:52

7 Smámynd: Elísabet  Sigurðardóttir

Þetta útskýrir margt, ég er að fatta þetta núna að kannski er mar bara með streitueinkenni.  Fann ostinn og smjörið inní búrskáp í gær, finn aldrei neitt og gleymi öllu sem skiptir máli.  Hjúkkit, ég hélt að ég væri að tapa glórunni.

Knús

Elísabet Sigurðardóttir, 19.7.2008 kl. 00:55

8 identicon

Sæl Jenný,les alltaf bloggið þitt.  En getur verið að þú værir með AAADD eins og ég: Eftirfarandi er lýsing á dæmigerðum degi þegar einkennin blossa upp : Ég ákvað einn daginn að þvo bílinn og hélt áleiðis að bílskúrnum, en tók þá eftir að bréf höfðu borist inn um lúguna. Ég tók bréfin og ákvað að fara í gegnum póstinn áður en ég færi að þvo bílinn. Sorteraði póstinn og ákvað að henda ruslpóstinum en tók þá eftir að ruslafatan var orðin full og lagði því reikningana sem höfðu borist, frá mér á eldhúsborðið og ætlaði út með ruslið, en ákvað þá að fara og borga þessa reikninga, fyrst ég yrði við bílinn hvort eð er. Fór inn í herbergi til þess að ná í veskið og bíllyklana en sá þá ný e-mail í tölvunni og ákvað að svara þeim strax svo ég gleymdi því ekki. Ákvað að ná mér í kaffibolla fyrst. Á leið inn í eldhús tók ég eftir því að blómið í borðstofunni var orðið heldur þurrt. Hellti nýlöguðu kaffi í bolla og ákvað að vökva blómið áður en lengra væri haldið. Náði í blómakönnuna og ætlaði að fylla hana með vatni þegar ég tók eftir því að fjarstýringin af sjónvarpinu lá á eldhúsborðinu.  Ákvað að fara með hana á sinn stað í sjónvarpsherberginu fyrst, svo ég fyndi hana örugglega um kvöldið þegar ég settist fyrir framan sjónvarpið að horfa á uppáhaldsþáttinn "Sex in the City". Á leið í sjónvarpsholið rakst ég á handklæði sem ég ætlaði að setja í þvottavélina sem beið full af þvotti.  Fór þangað og setti í vélina en fann þá gleraugun sem ég hafði verið að leita að fyrr um morguninn. Lagði fjarstýringuna frá mér í þvottahúsinu og fór með gleraugun inn í svefnherbergi þar sem ég ætlaði örugglega að finna þau þegar ég færi í rúmið að lesa uppáhaldsbókina mína......ef ég finn hana.  Stoppaði í svefnherberginu þar sem dagurinn hófst og mundi ekki lengur hvað ég ætlaði upphaflega að fara að gera !!! Í lok dags hafði ég því hvorki þvegið bílinn né borgað reikningana, ekki vökvað blómin eða þvegið þvottinn, ekki farið út með ruslið, heldur ekki svarað e-mailunum og var auk þess búinn að týna fjarstýringunni, bíllyklunum og veskinu og kaffið beið kalt á eldhúsborðinu.
 Ég skildi ekkert í þessu því ég hafði verið á fullu allan daginn í ýmsum snúningum. Ég hef nú uppgötvað að þetta er alvarlegt vandamál sem ég ætla að leita mér hjálpar við. Þessi sjúkdómur kallast á fagmáli AAADD eða "Age Activated Attention Deficit Disorder", á íslensku "Aldurstengdur athyglisbrestur".

Kveðja, og takk fyrir skemmtilegt og frólegt blogg. Ebba

 

Ebba (IP-tala skráð) 19.7.2008 kl. 01:31

9 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

Ha ha ég er svona flesta daga...guði sé lof fyrir gemsa, hef oft þurft að hringja í húsband til að spyrja af hverju ég sé stödd í þessari eða hinni búðinni í það og það skiptið....samt er hann nú hálfu verri en ég...

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 19.7.2008 kl. 01:59

10 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Ástarkveðjur og góða nóttina

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 19.7.2008 kl. 02:25

11 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Þegar hjartað á mér er farið að halda fyrir mér vöku eins og það gerði hér á lokadögum fyrir sumarfrí þá veit ég að ég er komin með streitueinkenni. Fór til læknis sem sagði mér að forðast streituvalda .. en vinnan er eini stórkostlegi streituvaldurinn minn og ég er bara eins og a.m.k. önnur hver manneskja - er gjörsamlega ómissandi í vinnunni!!!..Það yrðu eflaust flóð og jarðskjálftar ef ég mætti ekki og allt færi úr böndum. Þannig að ég mæti,,dead or alive" !!!

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 19.7.2008 kl. 07:00

12 Smámynd: Linda litla

Úff.... ég er svo heppin að ég veit helst ekki hvað stress er, og svo er ég best undir álagi. En streita.... er það ekki þreyta ?? Eða er ég bara svona voðalega vitlaus ???

Ég alla vega er vinnufíkill og kann mér ekki hóf. Það er sama hve þreytt ég verð, ég get ekki hætt. Lendi svo í því að eftir alla yfirkeyrslu sem ég kem mér í , ligg ég ég alveg bakk, gjörsamlega búin í skrokknum. En ég er ekki í fastri vinnu svo að ég geri ekki mikið af því að lenda í þessu.

Gott að vera komin í bloggheiminn aftur, er búin að sakna þín ansi mikið Jenný mín.

Linda litla, 19.7.2008 kl. 10:51

13 identicon

Við erum örugglega tvíbbar,andlegir tvíbbar

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 19.7.2008 kl. 10:52

14 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég er greinilega ekki ein í stressruglinu. 

Takk krakkr þið eruð frábær.

Jenný Anna Baldursdóttir, 19.7.2008 kl. 11:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 2985878

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband