Leita í fréttum mbl.is

Krúttsería

Ég er alltaf að lofa nýjum myndum af barnabörnunum og nú bæti ég úr því.

Sara er búin að vera dugleg með myndavélina upp á síðkastið.

Það verður ekki alveg það sama sagt um hana Maysu mína í London en hún vinnur svo mikið.  Annars eru nýlegar myndir í albúmi.

En here goes:

20080708124250_720080708124326_14

Hrafn Óli í sólbaði og Jenný Una málar sig aðeins í tilefni sumarsins.  Listrænt barn.

20080708124311_1120080708131933_3

Frumburðurinn sæt og falleg eins og alltaf og þarna eru elsta og yngsta barnabarnabarnið mitt.  Jökull og Hrafn Óli og svo má sjá glitta í köttinn Núll.

20080708133029_320080708133107_10

Hrafn Óli er bókstaflega alltaf hlægjandi en systirin er skuggalegri hér á leiðinni á leikskólann.

20080708133603_620080708133807_3

Ég og Saran á sumarhátíðinni á Njálsborg og Einar með Lilleman í sama partíi. 

20080708133643_1320080708133751_0

Jenný búin að fá listrænt töts í andlitið og svo er hún hér með Franklín Mána Addnasyni, sem lesendur þessarar síðu eiga að þekkja vel.

Jabb svona lítur sumarið út börnin góð nú um stundir.

Farin að kyrja.

Úje.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tiger

 Held ég hafi nú sagt það áður - og segi það aftur - og mun segja það oftar - að þú átt yndisleg barnabörn Jenny! Litli kúturinn er svo yndislega mikið efni í kreist og knús - og málaða leikskólaskutlan er dásamleg. Þú ert rík Jenny - þetta eru sannir gullmolar hvert og eitt - líka stærra fólkið þitt og stærsta fólkið auðvitað líka. Þú getur sannarlega kallað þetta krúttseríu með stolti.

Eigðu ljúfa nótt mín kæra .. nú sem ætíð.

Tiger, 8.7.2008 kl. 23:51

2 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Yndisleg börn!!!!! Sannkölluð krúttsería!

Guðríður Haraldsdóttir, 9.7.2008 kl. 00:04

3 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Ohh æði. Ég skellti upp úr þegar ég sá myndina af Franklín Mána. Held að Jenný hafi hann algjörlega í vasanum.

Gaman að sjá frumburðinn. Myndarkona og samt ekkert lík mömmslunni sinni. Myndirnar eru æði kona. Takk fyrir að deila.

Jóna Á. Gísladóttir, 9.7.2008 kl. 00:34

4 Smámynd: Brynja skordal

je minn svo sannarlega yndisleg krúttfærsla En jenný mín húsbandið þitt er víst frændi minn þarf að spyrja aðeins pabba gamla um það er ekki nógu klár í ættfræðinni

Brynja skordal, 9.7.2008 kl. 01:20

5 Smámynd: Elísabet  Sigurðardóttir

Ó hvað þau eru sæt litlu krúttin.  Get ekki betur séð en að litla prinsessan sé lík ömmu sinni. 

Æðislegar myndir flotta kona.

Elísabet Sigurðardóttir, 9.7.2008 kl. 01:21

6 Smámynd: Bergljót Hreinsdóttir

Bara krúttlegt!

Takk fyrir að deila gullmolunum með okkur hinum

Bergljót Hreinsdóttir, 9.7.2008 kl. 02:04

7 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Jónína Dúadóttir, 9.7.2008 kl. 06:28

8 Smámynd: María Guðmundsdóttir

 falleg fjølskylda sem thú átt Jenný,og já,takk fyrir ad deila med okkur  eigdu gódan dag. 

María Guðmundsdóttir, 9.7.2008 kl. 07:01

9 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

 Voðalega eru þetta krúttlegir og dásamlegir krakkar og familían flott,  öll sem þarna sést!

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 9.7.2008 kl. 07:12

10 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Takk fyrir að deila þessu með okkur Jenný mín. 

Ía Jóhannsdóttir, 9.7.2008 kl. 07:19

11 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Ég var að vakna, ég byrja alltaf á þér, þvílík dásemd að fá svona fallegt í morgunsárið.

Stelpurnar þínar eru nefnilega líka krútt, sjaldgæft að geta haldið krúttaútlitinu fram eftir öllum aldri.

Jenný Una er líklega ekki bara krútt hún er töffari eins og amman var í den á sólgleraugnamyndinni! 

Skemmtileg myndin af Jökli, Hrafn Óla og Núlli, slökun og hlýja. 

Svo eru það tryggðartröll fjölskyldunnar, "frúin"þrefalda og húsbandið sem passa fallega inn í heildina.

Edda Agnarsdóttir, 9.7.2008 kl. 08:46

12 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk fyrir þessar myndir.  Jenný Una er alveg dásamleg lítil stúlka minnir mig á Hönnu Sól.  Litlar (stórar) sjálfstæðar stúlkur.  Þær munu spjara sig þessar dömur.   og litli síkáti bróðirinn flottur, og Jökullinn svalur.  ég elska þessa mynd með sólgleraugun

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.7.2008 kl. 08:50

13 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

þau eru bara yndisleg krútt, Hún nafna þín er með fylgihlutina á tæru,
veski og sólgleraugu verður það að vera, og bleikt er náttúrlega liturinn.
Yndislegt að sjá ykkur mæðgur saman og þið eruð bara flott fjölskylda.

Kveðjur til ykkar allra
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 9.7.2008 kl. 09:25

14 Smámynd: Heiður Þórunn Sverrisdóttir

Flottar myndir af þínu fólki,takk fyrir að deila þeim.

Kveðja Heiður. 

Heiður Þórunn Sverrisdóttir, 9.7.2008 kl. 09:35

15 Smámynd: Dísa Dóra

Flottar myndir og flott fólk

En hvað ertu að kyrja? 

Dísa Dóra, 9.7.2008 kl. 10:24

16 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Takk öll fyrir þessi fallegu komment.

Dísa Dóra: Bara fíflagangur í mér sko, kyrja aldrei.

Jenný Anna Baldursdóttir, 9.7.2008 kl. 11:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband