Leita í fréttum mbl.is

Gítarar með fyrirkomulagi

 Gretsch_072607036

Hver er fréttin?

Að Björn Jörundur hafi gleymt gítarnum sínum, atvinnutækinu, sjálfri gígjunni?  Að það sé eitthvað sem ég og aðrir þurfi að henda reiður á?

Ég skiletteggi.

Sumir hafa farið með ruslapoka heimilisins með sér í vinnuna og skilið vinnupappírana eftir heima, jájá og það þótti ekki fréttnæmt þrátt fyrir að það hafi orðið heljarinnar uppnám á vinnustað vegna lyktar úr pokahelvíti.

Sumir tónlistarmenn sem ég þekki, og ég nefni ekki nöfn, hafa farið til Köben í staðinn fyrir út á Umferðarmiðstöð til að ná sér í kjamma eftir djamm, óvart, en með gítarinn og það kom ekki stafur um það í blöðunum, enda dálítið langt síðan.

"Fréttirnar" á sumrin geta verið svo hryllilega mikið uppfyllingarefni að það er nánast ekki fyndið.

Er verið að segja manni eitthvað hérna?  Er verið að læða að manni kjaftasögu um ástand gítareigandans  Hvert er markmiðið með þessari frásögn?

Burtséð frá því þá er ég ekkert viss um að það sé algengt að menn gleymi hljóðfærunum sínum hér og þar.

Á þessu heimili eru þeir hafðir í sérstöku herbergi, þeir eru teknir út að ganga (ok ekki alveg) og það er farið með þá eins og gull og þeir heita framandi nöfnum eins og t.d. The Mitchigan og Gretch New Yorker. Eða eitthvað sollis.

Hvernig getur maður gleymt þannig fyrirkomulagi?

En að gleyma sjálfum sér er allt annað mál.

Það skiljum við hér á kærleiksheimilinu.

Lalalala, haldið ykkur á mottunni addna.

P.s. Myndin er af New Yorkernum gott fólk. 

Björn Jörundur snæddu hjarta.

 


mbl.is Björn Jörundur gleymdi gítarnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Mikið svakalega þurfti ég að fá upplýsingar um það að þessi týndi gítar, er samt ekki sá sami og hljómar í laginu Flugvélar.......Mikið búin að velta þessu fyrir mér... eða alls ekkiFerð þú með gítara heimilisins út að ganga ?

Jónína Dúadóttir, 8.7.2008 kl. 09:30

2 identicon

Förum við ekki bráðum að leggja okkar af mörkum í þessari gúrkutíð og tilkynna um "fréttir". Þær gætu verið um það hvernig garðsláttur gengur á Akureyri og í Reykjavík, eða heimilisrifrildi á Akureyri og reykjavík, eða jafnvel heimilisrifrildi út af garðslætti á Akureyri eða Reykjavík (svo það sé á hreinu það rifrildi hefur ekki enn átt sér stað en aldrei að vita hvað gerist, það má leggja ýmislegt á sig til að  "skapa" fréttir)   ... eða ... einhver með fleiri hugmyndir? 

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 8.7.2008 kl. 09:32

3 Smámynd: Elísabet  Sigurðardóttir

Það var mikið að það kom eitthvað að viti í fréttunum.  Það hefði verið sorglegt að vera án þessarar vitneskju.

Elísabet Sigurðardóttir, 8.7.2008 kl. 10:53

4 identicon

Einmitt það sem ég þráði að fá fréttir um.Gítar Björns.Jeje.Sviðakjammi og BSÍ hehehehehehe.Minningarnar streyma fram hahahahahaha.Vaknað að morgni,rölt til stofu (ekki mín stofa),hálfétinn kjammi á stofuborði með stubb í auga .Góðan dag snillingur

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 8.7.2008 kl. 10:53

5 Smámynd: Þórdís Guðmundsdóttir

Ég er farin að senda blöðin ólesin í endurvinnslugáminn.  Geðheilsa heimilisins batnaði ótrúlega við það.  Að sama skapi er ég að reyna að takmarka hvað ég tek inn af upplýsingum af netinu, samt svona án þess að detta alveg úr sambandi við heiminn.  Og það er bara sárt að lesa svona gúrku.

Þórdís Guðmundsdóttir, 8.7.2008 kl. 11:12

6 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Þú ert óborganleg að vanda Jenný   Þrátt fyrir alla mína bloggleti og blogg-lestarleti líka um þessar mundir,  sleppi ég því ekki að lesa þig mín kæra.

Marta B Helgadóttir, 8.7.2008 kl. 14:33

7 Smámynd: Steingrímur Rúnar Guðmundsson

er þetta ekki bara lýsandi með ástand gítareigandans?

Steingrímur Rúnar Guðmundsson, 10.7.2008 kl. 00:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 2985811

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.