Leita í fréttum mbl.is

Raðkrísuástand

pd_arguing_080129_ms 

Ég bíð og bíð eftir hjónabandskrísu.

Ég hef beðið reglulega s.l. tíu ár og bráðum ellefu.  Það hlýtur að fara að bresta á með biggtæm veseni því fram að þessu þá höfum vér turtils unað nokkuð glöð við okkar.

Það átti að koma ein eftir tvö ár. Lýsti með fjarveru og við héngum nánast saman á kjöftunum og ástin bara blómstraaaaaaði.

Önnur var væntanleg eftir fimm eða sjö ár, manða ekki en hún lét ekki sjá sig heldur.  En þegar þarna var komið sögu vorum vér samföst á mjöðm við hirðina.

Og svo þessi tíu ára en það fer að sjá fyrir endann á því heilaga ári og ég hélt raunar að ég væri sloppin. svona krísuvæs.  Dem, dem, dem, hún á auðvitað eftir að ríða yfir í haust, mitt í fokkings sláturtíðinni.Devil  Nema hvað,  þegar ég er að 24/7 í vambasaumi, jeræt.

Samkvæmt þessu þá ríða skilnaðarbylgjur yfir á haustin. 

Sko ef sálfræðingar eru með það á hreinu að í hjónabandinu skelli reglulega á krísur og engin alvarleg amk. ennþá (þó reyndar hafi það staðið tæpt eitt sumar, mig minnir í júlí á þriðjudegi frá kl. 21,00 - 21,30 og reiknast varla meðW00t)þá er ég ansi hrædd um að það eigi eftir að hrikta ærlega í stoðum hjónabandsins fljótlega.  Svokallað raðkrísuástand.

Hm...

Ég ætla að hringja í húsband og biðja hann um að koma heim - að rífast. 

Við verðum að vera búin að ganga í gegnum þetta fyrir haustið því þá kemur eins og ég var búin að benda ykkur á börnin góð, SKILNAÐARBYLGJAN!

Ég verð fyrir hvern mun að bjarga hjónabandinu. Ég get ekki haldið áfram að gifta mig endalaust.

Súmí.


mbl.is Skilnaðarbylgja að hausti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Þú ert nú meiri kerlingin Jenný

Kristín Katla Árnadóttir, 7.7.2008 kl. 17:11

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Úff sammála þér. Við erum nú búin að hanga saman í 15 ár án uppákoma og ekki vil ég missa hann núna, ætla að lesa greinina fyrir hann í kvöld og stinga uppá hressilegu rifrildi sem endar svo með æðislegri sáttartilraun uppúr miðnætti. Verð þá búin að afrgreiða þetta með stæ.  Bravo Þú lofar mér að vita hvernig gengur hjá ykkur.

Ásdís Sigurðardóttir, 7.7.2008 kl. 17:14

3 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Hvað má ég þá segja búin vera gift þessum manni í 17 ár úff

Kristín Katla Árnadóttir, 7.7.2008 kl. 17:19

4 Smámynd: María Guðmundsdóttir

úff...eins gott ad taka út thvargid i sumar bara...segi eins og Ásdís..madur búin ad "hanga" saman i 12 ár,æ thá nennir mann ekki ad fara ad skipta ...og ala allt uppá nýtt nei fjandinn,thvi stendur madur ekki í ...

                                   

María Guðmundsdóttir, 7.7.2008 kl. 17:20

5 identicon

Húsbandið mitt og ég höfum allveg misst af þessum krísum.Það eru komin 18 ár hjá okkur.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 7.7.2008 kl. 18:27

6 identicon

Hehehe  þú ert óborganleg kona..

Guðrún B. (IP-tala skráð) 7.7.2008 kl. 18:47

7 Smámynd: Hulla Dan

 
Þú ert endalaust fyndin.

Hulla Dan, 7.7.2008 kl. 18:50

8 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Ég tek út öll reiðiköst og fýlu fyrir okkur bæði .. ótrúlega skapstilltur maður sem ég er bý með ..  ..gýs kannski bara eins og Hekla á 10 ára fresti .. kemur í ljós eftir átta oghálft ár!

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 7.7.2008 kl. 19:57

9 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Ætli ég sé ekki sloppin fyrir horn eftir 33 ár! 

Ía Jóhannsdóttir, 7.7.2008 kl. 20:08

10 Smámynd: Jens Guð

  Er ekki miklu betra að vera laus og óháður en í hjónabandi?  Það hefði ég haldið.  Var giftur í næstum aldarfjórðung en skemmti mér núna konunglega einhleypur og sæll.  Ég líki því ekki saman.  Það er búið að vera samfellt partý síðan ég skildi fyrir næstum áratug.  Þvílíkt stuð og læti.

Jens Guð, 7.7.2008 kl. 20:32

11 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Mitt fyrra hjónaband dugði í fimm ár með stanslausum krísum. Það seinna hefur varað í 27 ár tiltölulega krísulítið enda maðurinn á sjó fyrstu 20 árin.

Helga Magnúsdóttir, 7.7.2008 kl. 21:35

12 Smámynd: Eva Benjamínsdóttir

Að vera einhleypa eru forréttindi, einskonar pistola á ferðinni og það dugar alveg, ef maður kann að munda frelsið.

Þú ert svo vel gift Jenný mín, svo ég tali nú ekki um húsband, endilega tuskist þið smá í kvöld.

Eva Benjamínsdóttir, 7.7.2008 kl. 21:54

13 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Jenný mín ég held að þetta eigi ekki við 7. hjónaband

ætli skammturinn þinn og þessara kvenna hér að ofan hafi ekki dæmst á mig og Bretann. Hér eru sko krísur á hálfsmánaðarfresti.

Jóna Á. Gísladóttir, 7.7.2008 kl. 22:41

14 identicon

Æ hjónabandskrísur koma alltaf annað slagið maður bara tekst á við þær og leisir málin heldur svo bara áfram í hamingjuni.

Eyrún Gísladóttir (IP-tala skráð) 7.7.2008 kl. 22:50

15 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Hahahaha! Raðkrísuástand! Er þá þetta "happily ever after" bara lygin ein?

Ég ætla að rífast við sjálfa mig í kvöld just in case. Væri agalegt ef það heilaga union brotnaði saman!

Laufey Ólafsdóttir, 7.7.2008 kl. 23:04

16 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 8.7.2008 kl. 00:32

17 Smámynd: M

Það er nauðsynlegt að krísast inná milli, sættast svo á eftir

M, 8.7.2008 kl. 00:42

18 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Úff, það er ekki ráð nema í tíma sé tekið. Gangi ykkur vel.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 8.7.2008 kl. 01:32

19 identicon

 Þú ert fyndin frú Jenný - ógisslega fyndin  Ég fylgist spennt með. Bloggarðu annars ekki örugglega næst um rifrildið?

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 8.7.2008 kl. 01:49

20 Smámynd: Elísabet  Sigurðardóttir

Ég bíð spennt eftir rifrildablogginu.  Það verður örugglega eitthvað fútt í henni.

Elísabet Sigurðardóttir, 8.7.2008 kl. 09:30

21 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Anna: Það tókst ekki að koma af stað krísu að þessu sinni.  Við gáfumst upp og munum reyna síðar.  Í staðinn horfðum við á bíómynd.  Hehe.

LG: Takk honní.

M: Jabb.

Laufey: Það er nauðsynlegt að rífast við sjálfan sig reglulega og sættast svo með blautum kossi.

Jenný Anna Baldursdóttir, 8.7.2008 kl. 09:30

22 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jóna: Auli.  Jú þið Bretinn eruð í stöðugum milliríkjadeilum.

Hallgerður: Sumir vilja vera einir, aðrir ekki.  Mér persónulega ferst illa úr hendi að rífast við sjálfa mig.

Helga:Góð.

Eva: Gaman að sjá þig.  Þú ert bara sjaldséð núorðið.

Jenný Anna Baldursdóttir, 8.7.2008 kl. 09:32

23 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jóhanna: Þú verður að spenna beltin á 10 ára afmælinu.

Ía: Þú ert sloppin fyrir horn.

Jenný Anna Baldursdóttir, 8.7.2008 kl. 09:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 2985888

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband