Leita í fréttum mbl.is

Kanelsnúður eða kleina - meikar ekki diff

20080429111835_0 

Ég er í kasti, algjöru krúttkasti.

Jenný Una var að gera fimleikaæfingar.

Amma, taktu mig í kanilbulla.

Amman: Ha?  Ég fer ekki að baka snúða núna Jenný mín.

Jú gerðu svona kanilbulla amma.

Amman hringdi í mömmuna eftir túlkun, en hún þurfti að hugsa sig lengi um og svo fékk hún móðursýkislegt hláturskast.  Mamma, þetta barn gengur frá mér.  Hún vill að þú takir sig í KLEINU.

Það var allavega eitthvað úr bakaríinu.

Og: Í rúminu þar sem barn liggur þreytt og pirruð, enda komið langt fram yfir hefðbundin háttatíma.  Amman er að segja söguna af Rauðhettu sem Jenný elskar þessa dagana.  Nokkurs konar kannibalismi fyrir börn sagan af henni Rauðhettu.  Og allt í einu:

Amma hættu að segja söguna.  Ér pirruð.  Á morgun fer ég bara heim og kem ekki attur.

Amman: W00t Verður amma þá ekki bara að fá aðra stelpu til sín?

Jenný Una: Jú þú getur alleg fengið eina þriggja ára stelpu (jafnaldri sko mína), sem kann ekkert að ganga og tala og er bara í kerru.

Amman (að drepast úr hlátri inni í sér) Já ég vil alveg fá svoleiðis stelpu til að knúsa.

Barn: Nei þú máttaekki!  Þú ert bara amma mín.

Amman í krúttkasti.  Góða nótt Jenný mín.

Jenný Una(ákveðin): Þú ert amma mín og Lillemann og Olivers og Jökuls, en ekki stelpu!

Amman: Auðvita er ég amma ykkar allra og verð það alltaf.

Lítil rödd: Góða nótt.

Og núna sefur litli skæruliðinn svo fallega á koddanum sínum, svo saklaus að það er ekki laginu líkt.

Ég elska börn.  Þau eru svo skemmtilegt fólk.

P.s. Á morgun set ég inn glóðheitar myndir frá Spáni af Maysunni og Oliver.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heiður Þórunn Sverrisdóttir

þvílíkt krútt þessi stelpa þín er í hláturskasti...takk jenny og Jenný una  fyrir góða skemmtun...

Heiður Þórunn Sverrisdóttir, 14.6.2008 kl. 22:41

2 identicon

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 14.6.2008 kl. 22:49

3 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

 Þvílík dásemd ! Hún er alveg stórkostleg, hún nafna þín og ömvmustelpa! Kanilbulla !  Flottar tengingar hjá henni. -  allavega eitthvað sem vefur upp á sig, og byrjar á K.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 14.6.2008 kl. 23:01

4 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Fyrirgefðu Jenný þetta á að vera "ömmustelpa" hef ekki hugmynd um hvaðan þetta v kom. - né til hvers það er ætlað. - Það hlýtur einhver hér fyrir ofan að hafa misst það,  og ekki fundið það aftur.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 14.6.2008 kl. 23:04

5 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Mikið ertu heppin að eiga svona Jennýju Unu!

Var að senda þér póst - opna... 

Lára Hanna Einarsdóttir, 14.6.2008 kl. 23:22

6 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Hún er nú bara eitt stykki perla þessi stelpa.  Hlakka til að heyra hvað hún segir þegar hún opnar augun í fyrramálið! 

Ía Jóhannsdóttir, 14.6.2008 kl. 23:54

7 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

 Kanilbulla ömmu sinnar

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 15.6.2008 kl. 00:42

8 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Krakkinn er óforskammað krútt og tekur bæði eftir ömmu sinni.

Jóna Á. Gísladóttir, 15.6.2008 kl. 01:31

9 Smámynd: Lilja G. Bolladóttir

Sammála Jónu !!

Annars eru krakkar yndislega opin og einlæg.... ég man að einhverju sinni fyrir löngu, þegar minn var ca. 4-5 ára, stóð ég fyrir framan spegilinn og sagði við strákinn: "ææ, Jói minn, hvað mamma þín er orðin gömul og ljót". Sá stutti hoppaði upp á klósettið, virti mig fyrir sér í langan tíma og felldi svo dóm: "Þú ert ekkert svo ljót, mamma."

Nei, ekkert SVO.... ég get lifað með því

Lilja G. Bolladóttir, 15.6.2008 kl. 01:58

10 Smámynd: Linda litla

Ég líka, elska börn. Þau eru frábær, kanilbulla !?!?!? Þetta er hrein snilld.

Linda litla, 15.6.2008 kl. 02:21

11 Smámynd: María Guðmundsdóttir

 krúttulingur thessi stelpa sko. eigdu gódan sunnudag. 

María Guðmundsdóttir, 15.6.2008 kl. 08:08

12 Smámynd: Emma Agneta Björgvinsdóttir

börn eru æðisleg og gaman að setja sig stundum niður á þeirra plan.

Emma Agneta Björgvinsdóttir, 15.6.2008 kl. 10:06

13 Smámynd: Huld S. Ringsted

Ég veit ekkert skemmtilegra en börn, þau eru svo yndislega saklaus og hreinskilin. Og hún Jenný þín er bara hreint stórkostleg, stelpa að mínu skapi  

Huld S. Ringsted, 15.6.2008 kl. 10:41

14 Smámynd: Svala Erlendsdóttir

Kanilbulla eða krúttbulla allavega algjör dulla

Svala Erlendsdóttir, 15.6.2008 kl. 11:43

15 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Mjög skemmtilegt barn og svo mikil dúlla.

Kristín Katla Árnadóttir, 15.6.2008 kl. 12:05

16 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Hvað getur maður sagt? Yndislegt.

Einhver sagði; þar sem eru börn, þar eru eilíf jól.

Edda Agnarsdóttir, 15.6.2008 kl. 12:09

17 Smámynd: M

Yndisleg þessi stelpa. Mikill karakter

M, 15.6.2008 kl. 12:28

18 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Krúttapúttið!...

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 15.6.2008 kl. 12:51

19 Smámynd: Sigrún Ósk Arnardóttir

Algert mega krútt þessi stelpa sem þú átt þarna.

Þegar dóttir mín var á þessum aldri þá átti hún það til að ruglast á orðum og einhvern tímann talaði hún um að mamma og pabbi hefðu farið í pípulagningu, hið rétta er að við fórum í kistulagningu. 

Snillingar þessir krakkar sko. 

Sigrún Ósk Arnardóttir, 15.6.2008 kl. 12:52

20 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Hún er yndisleg þessi litla dama.  Kanilsnúðar eru náttúrulega málið í dag, það steikir enginn kleinur lengur

Sigrún Jónsdóttir, 15.6.2008 kl. 13:09

21 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Yndisleg frásögn hahaha elsku litla Jenný Una. Maður hlær og hjartað tekur kipp í sömu andránni.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.6.2008 kl. 15:36

22 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Takk öll fyrir falleg orð.

Í morgun vaknaði sú stutta og vildi fara fram og horfa á baddnaeddni og svo út á róló.  Og auðvitað gerðum við það.

Jenný Anna Baldursdóttir, 15.6.2008 kl. 16:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 2985887

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.