Leita í fréttum mbl.is

Ógeðslega fullorðins Árni

Ég vaknaði í morgun og kveikti mér í sígó eftir mitt hefðbundna ritúal. Og svo kveikti ég mér í annarri.  Sem væri ekki í frásögur færandi nema af því að ég var með eina í eldhúsinu og aðra úti á svölum.  Barnalegt?  Nei ákaflega nikótínsfíkilsleg hegðun og mér ekki til sóma, en sem betur fer er ég enn á mannlegu nótunum og haga mér reglulega eins og svín.

Ég er höll undir börn.  Ef ég á að vera alveg hreinskilin þá eru börn það fólk sem höfðar hvað mest til mín og hefur alltaf gert.

Börn hafa ekki komið sér upp tækifærishegðuðum.  Þau hafa ekki ritskoðað hugsanir sínar, heldur koma þær tærar og hreinar fram í viðhorfum barnsins til lífsins.

Börn setja skörp skil á milli þess sem er rétt og þess sem þeim finnst rangt.  Það skarast stundum á við stefnuskrá fullorðinna en þeim er nákvæmlega sama krökkunum, þau eru nefnilega ekki á atkvæðaveiðum.

Þess vegna finnst mér algjörlega út úr kortinu að kalla hegðun fullorðinna sem manni finnst lítt skiljanleg, óæskileg og öðruvísi - barnalega.  Það er beinlínis móðgun við börn.

Týpískt að kartöflusöngvarinn og fangelsisinnréttingafrömuðurinn Árni Johnsen, skuli kalla Björk barnalega í neikvæðum skilningi orðsins auðvitað, fyrir að vilja vernda náttúruna.

Á ekki að nauðga umhverfinu endalaust bara?

Ég vildi að við ættum fleiri Bjarkir, Láru Hönnur og Ómara Ragnarssona.  Það færi betur á því.

Og svo finnst mér Árni Jhonsen ekki rass barnalegur að einu eða neinu leyti.

Þvert á móti finnst mér hann ógeðslega fullorðins í neikvæðri merkingu þess orðs og þið megið skjóta mig fyrir það þessvegna.

Og hana helvítis nú.

P.s. Orðbragðið skrifast á lyklaborðið sem hefur tekið upp á því að skrifa allskonar sem ég ber enga ábyrgð á.  Ég sver það.  Sit hér og skammast mín í hrúgu fyrir þetta blygðunarlausa heimilistæki.

Holllíhú.


mbl.is Barnalegt að hækka koltvísýringslosun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Sigurður Helgi: Ég reyki í eldhúsinu og á svölunum.  Nema þegar barnabörnin eru hjá mér auðvitað.  Hehe, var þetta aðalatriðið í færslunni.

Jahérna hér. 

Jenný Anna Baldursdóttir, 14.6.2008 kl. 12:03

2 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Góður pistill elskan - las bæði pistilinn hennar Bjarkar og Elísabetar í morgun, nennti ekki lesa Árnapistil nema í skönnun.

Hann er í umönnunarhlutverki hins staðbundna manns sem hefur orðið fangi eigin búsetu og ekki gæfu til að sjá aðrar lausnir en þær sem eru skaffaðar!

Árni er ógeðslega aldraður - engir hagsmunir hjá honum hlýtur að hverfa bráðum!

Árni skaffari!

Edda Agnarsdóttir, 14.6.2008 kl. 12:22

3 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

Árni er fínn náttúrurunkari.  

Brjánn Guðjónsson, 14.6.2008 kl. 13:01

4 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Árni er meira svona..... kartöfluhaus!!

Hrönn Sigurðardóttir, 14.6.2008 kl. 13:48

5 Smámynd: M

Hlustar einhver á Árna lengur ?

Annars kom myndbandið mér í stuð

M, 14.6.2008 kl. 13:52

6 identicon

sammála þér, góður pistill, gat nú verið að reykingafasistar reki augun í reykingarnar, það  ætti bara að skjóta okkur á færi, helst á okkar eigin heimilum:)

rut sumarliðadóttir (IP-tala skráð) 14.6.2008 kl. 14:06

7 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

Björk svarar með stæl hér. Up yours, Árni Nonsens!

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 14.6.2008 kl. 14:08

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Sig.Helgi: TIl hamingju

Hallgerður: Brjálæðingur.  Hehe.

Hildigunnur: Takk.

Rut: Ætli það endi ekki með að við verðum bannfærð úr samfélagi siðaðra manna og send í óbyggðir?  Ekki leiðinlegt þar sem mesta fjörið er alltaf í smókhópnum.

M: Þetta er geggjað myndband.

Hrönn: Satt segir þú.

Brjánn: Náttúrurunkari, OMG

Hallgerður: Hér er allt löðrandi í agúbörnum í vöggu.  Ein vöggustofa bara og við svælandi hvort í kapp við annað.

Jenný Anna Baldursdóttir, 14.6.2008 kl. 22:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband