Sunnudagur, 1. júní 2008
Þetta er útkall!
Nú kalla ég til allar vinkonur mínar, á öllum aldri, nær og fjær að fjölkvenna í bíó í vikunni. T.d. á fimmtudagskvöldið.
Við erum svo margar að ég nenni ekki að hringja í ykkur allar, þið hangið hvort sem er allar á blogginu mínu í vinnunni, letingjarnir ykkar, í þeirri von um að ég geri ykkur ódauðlegar hér.
Og systur mínar: Greta, Jóna, Guðlaug, Ingunn, Hilma og Stenna, hringja í sys.
Sko, nú er ekkert sem heitir, við förum á beðmálin og svo á kaffihús.
Eða á kaffihús og SVO á beðmálin. Mér gæti ekki staðið meira á sama um röð.
Ef einhvern tímann er tækifæri til að gera skemmtilegan hlut sem við allar getum hlegið að og allt það, þá er það núna. Hver hefur ekki gaman að stelpunum. Pæliðíðí, fötin, skórnir, töskurnar, meiköppið og allur friggings ballettinn? OMG.
Annars var ég að horfa á ameríska fréttastöð á föstudaginn, CNN eða Fox (uss, geri það stundum) og þá var heill panell af fólki að ræða hvort þær væru lausgyrtar stelpurnar. Það var búið að fara í gegnum hvern einasta þátt og reikna fjölda elskhuga allra kvennanna og fyrir utan Samönthu sem var eins og hausaveiðari í sínum hjásofelsum, reyndust allar hinar vera "high above average" í elskhugatali.
Það virtust allir í panelnum hafa gleymt þeirri léttvægu og löðurmannlegu staðreynd að beðmálin voru sjónvarpsþættir.
Þetta minnir mig á yndislega konu sem ég þekki sem sagði við mig þegar Dallas átti hug og hjörtu margra kvenna: "Jenný finnst þér Sue Ellen ekki líta mikið betur út eftir að hún hætti að drekka?".
Hringið í mig esskurnar. Vér erum á leið í kvikmyndahús og ekkert kjaftæði.
Það verða fokkings sætaferðir frá Umfó, þess vegna.
Beðmálin boluðu Indiana Jones úr efsta sætinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Kvikmyndir, Menning og listir, Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 23:45 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 16
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bláar eyllýar
- Bloggar
- Bækur
- danskar kjötbollur með sósu
- Dómar
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Femínistablogg
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Halloki
- Hamfarablogg
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hneyksli
- Íþróttir
- Jólafár
- Kjaramál
- kvikindiskapur og illt umtal
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Lúkas
- lygasögur
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjálfsdýrkun
- Sjónvarp
- Snúra
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Synt til sigurs
- Synt yfir sundið
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Þvagleggur
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Tenglar
Tónlist
Vinir og fjölskylda
Vinkonur
Ég les alltaf
Netmiðlar
Tónlistarspilari
Bloggvinir
- draumur
- jonaa
- hronnsig
- larahanna
- skessa
- eddaagn
- amman
- annabjo
- annambragadottir
- annaragna
- asthildurcesil
- kolgrima
- birnan
- bjarnihardar
- brjann
- brylli
- christinemarie
- danjensen
- lillagud
- disadora
- einari
- einarorneinars
- emm
- estro
- evabenz
- fifudalur
- garun
- gelgjan
- gunnarggg
- halkatla
- halo
- hildurhelgas
- heidah
- helgamagg
- hildigunnurr
- iaprag
- hlynurh
- hugarfluga
- hugsadu
- ibbasig
- katrinsnaeholm
- ingolfurasgeirjohannesson
- jogamagg
- jara
- jensgud
- katlaa
- krummasnill
- krissa1
- lehamzdr
- ktomm
- laufeywaage
- lauola
- lindalinnet
- madamhex
- maggij
- majaogco
- mariakr
- markusth
- meistarinn
- motta
- nimbus
- olinathorv
- pollyanna
- ragnarfreyr
- ragnhildur
- ringarinn
- rosa
- roslin
- saedis
- sailor
- salkaforlag
- skordalsbrynja
- skrifa
- snar
- soley
- steingerdur
- steinnhaf
- steinunnolina
- stinajohanns
- sunnadora
- svetlana
- thuridurbjorg
- tibet
- tigercopper
- toshiki
- unns
- valgerdurhalldorsdottir
- wonderwoman
- vefritid
- vest1
- bidda
- zeriaph
- killjoker
- sisvet
- gudrununa
- dora61
- possi
- gelin
- silfri
- jyderupdrottningin
- gretaulfs
- sibba
- baldvinj
- stjaniloga
- bokakaffid
- kreppukallinn
- jonerr
- gerdurpalma112
- adhdblogg
- astafeb
- snjolfur
- haddih
- brell
- reisubokkristinar
- little-miss-silly
- baldis
- olofdebont
- kikka
- jarnar
- thorolfursfinnsson
- birnast
- vrkristinn
- leifur
- astroblog
- bjarkey
- manisvans
- siggisig
- nordurljos1
- gunnaraxel
- ragnar73
- sij
- kreppu
- runirokk
- gotusmidjan
- dorje
- slembra
- skari60
- must
- fhg
- aevark
- fridaeyland
- hedinnb
- cakedecoideas
- taraji
- audurproppe
- kollakvaran
- finni
- arnaringvarsson
- samstada
- drum
- gretarogoskar
- tbs
- vistarband
- valdivest
- fingurbjorg
- gustichef
- skulablogg
- andreskrist
- fasteignir
- rognvaldurthor
- helgatho
- gullfoss
- bailey
- jennystefania
- gattin
- annaandulka
- ansy
- gumson
- berg65
- bjarnimax
- brahim
- elin
- gudlaugbjork
- dramb
- gudrunkatrin
- hvilberg
- himmalingur
- ingaragna
- naflaskodun
- kiddirokk
- sigurborgkrhannesdottir
- joklamus
- stjornlagathing
- saemi7
- unnurgkr
Athugasemdir
Þetta er frábær hugmynd hjá þér Jenný mín og ég hefði stokkið ef ég væri ekki að kaupa, mála og smíða skjólgirðingu fyrir minn blákalda bossa. Góða skemmtun, ég bið að heilsa
Eva Benjamínsdóttir, 2.6.2008 kl. 00:41
Það gengur ekki að plana bíóferð sama kvöldið og Desperate housewives er að byrja aftur í TV. Bara gengur ekki sko
Góða nótt annars og sofðu rótt.
Björg K. Sigurðardóttir, 2.6.2008 kl. 01:12
Mér fannst þetta einmitt með hana Sue Ellen. Allt annað að sjá hana eftir að hún hætti að þjóra
Svetlana, 2.6.2008 kl. 01:16
Góða skemmtun
Jónína Dúadóttir, 2.6.2008 kl. 06:32
Góðan daginn Jenný mín. Gaman ef maður gæti farið með vinkonum sínum í bíó, svo annað, nú var ég sammála þér hér í færslunni góðu fyrir neðan, BB gekk eiginlega fram af mér með þessu bulli sínu. Hvað var maðurinn að hugsa?
Ía Jóhannsdóttir, 2.6.2008 kl. 07:17
Vá... Þú átt margar systur!!!
Góða skemmtun, konu/stelpu kvöld eru alltaf hið besta mál.
Hulla Dan, 2.6.2008 kl. 08:12
Hallgerður: Ertameinetta?
Jenný Anna Baldursdóttir, 2.6.2008 kl. 08:45
Sniðugt við erum einmitt vinkonuhópurinn að fara á kaffi blu og svo á beðmál á fimtudaginn bara fjör.
Eyrún Gísladóttir (IP-tala skráð) 2.6.2008 kl. 21:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.