Leita í fréttum mbl.is

Gjörningaveður

Gjörningar eða "happenings" er skemmtilegt listform.  Ég hef aldrei séð þann gjörning sem ekki hefur hreyft við mér á einhvern hátt.  List í augnabliksins hugnast mér vel.

Og nú ætla atvinnubílstjórar að vera með gjörning niðri við Alþingishús.  Reyndar er gjörningurinn fyrirfram leikstýrður og allt það, en gjörningur er það samt.

Það er húmor í þessu og skýr skilaboð líka til ráðamanna.  Jóhanna fær rósir, hinir líkkistur.  Ég hefði nú persónulega haft öskuker vegna ummáls líkkistnanna, en ég stend ekki fyrir þessu.

Jóhanna á allar rósir heimsins skilið, þó ekki væri fyrir annað en hversu sönn hún er og samkvæm sjálfri sér.

En..

það er galli á gjöf Njarðar, hvað mig varðar, þegar bílstjórarnir eru annars vegar.

Ég stóð með þeim alveg þangað til þeir fóru að kalla fram í á Alþingi og heimta forgang fram yfir fólk í neyð úti í heimi.

 Akraneshugmyndafræði Frjálslynda flokksins er engum til framdráttar og þeim og öllum sem hana stunda til vansa.  Ég er að pirringsjafna hérna svo ég held mig á lýsingaorðamottunni.

Auðvitað mæti ég ekki í jarðaförina, en ég óska þeim góðs töffurunum á trukkunum.

En þeir settu niður sína næstsíðustu kartöflu í mínum garði með því að heimta forgang yfir fólk í sárri neyð.

Lélegur stíll.

 


mbl.is Fyrst og fremst táknræn athöfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

bara smá leiðretting. Gjörningur (Performance) sem listform er leikstýrður fyrirfram ákveðinn viðburður sem á að baki sömu hönnunarvinnu og önnur listaverk. Hann er unnin eftir handriti listamannsins og fylgir því á meðan framkvæmdur er. Uppákomur (Happenings) er annað, eða spontant viðbragð við umhverfinu hverju sinni þótt unnin sé út frá einhverri grunhugmynd þá er ekki lagt af stað með handrit heldur spunnið á´staðnum. Það orkar tvímælis að heimfæra gjörð vörubílstjóra í listform. Það sem þeir eru að gera eru táknræn mótmæli og góð sem slík.

thora gunnarsdottir (IP-tala skráð) 29.5.2008 kl. 10:54

2 Smámynd: Ragnheiður

Ég er alveg sammála þeim með að Jóhanna hefur ein unnið fyrir fólkið í landinu, ég hins vegar kemst ekki með þeim í dag.

Ragnheiður , 29.5.2008 kl. 10:54

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þóra: Þetta veit ég, hefði getað sagt þetta betur.  Takk fyrir.

Ragnheiður: Fólk treystir ennþá Jóhönnu, það er rétt.

Jenný Anna Baldursdóttir, 29.5.2008 kl. 11:12

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Uppákomur er orðið Þóra, takk aftur. 

Jenný Anna Baldursdóttir, 29.5.2008 kl. 11:12

5 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

Ég bara skil ekki af hverju mótmæli bílstjóra beinast ekki gegn  olíufélögunum?? Þeir misstu líka stuðning margra með því að vera fylgjandi Akranes hugmyndafræðinni...þar á meðal minn...

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 29.5.2008 kl. 11:17

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Krumma: Sammála.

Jenný Anna Baldursdóttir, 29.5.2008 kl. 11:20

7 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Sammála ykkur hér að ofan og Jóhanna hefur staðið sig vel, enda afar einlæg og heil kona, verst er að hún skuli ekki ráða meiru.

Jenný mín fyrirgefðu langlokuna á síðunni þinni í gær, er bara ein af þeim sem á erfitt með að þegja stundum, eða eiginlega alltaf þegar einhver segir mig meina annað en ég segi.
                             Knús til þín
                             Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 29.5.2008 kl. 11:41

8 identicon

Það er ekkert að því hafa skoðanir á innflytjendamálum og því síður að hafa þær skoðanir að valdhafar eigi taki til heima hjá sér þegar þörf þykir á.  Það má ekki útmála alla sem tala í þá áttina sem rasista.

Ég vil benda öllum á að það er enginn skortur á sorgarsögum í íslensku samfélagi. Ég les um þær reglulega og því miður orðið vitni að þeim líka, eins og flestir væntanlega.  En ef fólk vill setja einhverja mælistiku á mannlega þjáningu þá er án efa hægt leita út fyrir landsteinana til að finna ýmsar hörmungar sem við Íslendingar þurfum sjaldan eða aldrei að upplifa. 

Kjarni málsins er að yfirgefa ekki góðan og réttlátan málstað þó að málflutningur af einhverju tagi skarist við einhvern annan betri og réttlátari (að einhverra mati) þó svo að málin tengist ekki á nokkurn hátt.  Þetta er alltof ríkt í íslenskri þjóðarsál og mér finnst það ömurlegt, því það brýtur niður samstöðu almennings.

Margir eru orðnir eldklárir í að ala á slíkri sundrungu ég er orðnn þreyttur á að alltof margir falli í þessa gryfju.  STYÐJUM BÍLSTJÓRANA OG LÁTUM EKKI ENDALAUST SLÁ RYKI Í AUGUN OKKUR.

Bergur (IP-tala skráð) 29.5.2008 kl. 11:53

9 Smámynd: Huld S. Ringsted

Ég tók sérstaklega eftir þessu með rósirnar til Jóhönnu, hún á þær vel skilið þar sem hún virðist vera eina manneskjan í þessu ráðaliði sem lætur sig hlutina varða.

Huld S. Ringsted, 29.5.2008 kl. 12:29

10 identicon

Ég set stórt spurningamerki við þessi mótmæli. Ekki vegna þess að menn mótmæla, miklu frekar líkkistuumgjörðin. Ein líkkista kostar hátt í bensínkostnað eins fjölskyldubíls. Hverju er þá verið að mótmæla? Hvaða kosningaloforð er verið að "jarða"? Er verið að mótmæla komu flóttamanna til Akraness? Eftirlaunaósómanum? Formenn flokkana sitja eftir og klára dæmið. Álögur á eldsneyti? Eru það ekki olíufélögin sem ákveða álögur...nei, alls ekki í samráði. "Að sögn Sturlu er hópurinn ekki bara að berjast fyrir réttindum atvinnubílstjóra heldur berjist hann fyrir alla þjóðina." Nei, takk Sturla. Mér sýnist fátt sameina skoðanir okkar.

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 29.5.2008 kl. 13:01

11 identicon

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 29.5.2008 kl. 13:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 2985770

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband