Leita í fréttum mbl.is

Stelpukvöld - Einhvers afturendi - Arg

11

Þar sem ég hef farið lyklaborðshamförum hér í allan dag, í trylltum pirringsbloggum, sé ég mig knúna til að gefa aðeins í og enda kvöldið með bravör - og pirrast meira.Devil

Ég er svo sein að kveikja, ég horfi ekki það mikið á sjónvarp að ég hafi mikla yfirsýn yfir dagskrána svona almennt, en halló, eruð þið að djóka í mér?

Stelpukvöld á Stöð 2! 

Greys Anatomy, Miðillinn, Rómantískar bíómyndir.  Allt af því að við erum konur.  Allar með sama smekkinn.  Ég er græn í framan.

Hvenær eru strákakvöldin, vilja þeir ekki líka fá útdeilingu á sérvöldu efni fyrir manneskjur með typpi?

Er það box?  Pólitískar umræður? Fótbolti? Friggings íshokkí? Fjallaklifur?  Halló aftur!

Konur eru eins, karlar eins.  Einfalt og gott ef hugmyndafræði Stöðvar 2 væri ekki glórulaust kjaftæði. 

Nú myndi ég segja upp áskriftinni ef ég hreinlega nennti að standa í því.

Reyndar ættum við að mynda þrýstihóp um málefnið við stelpurnar, heimta venjulega dagskrá sem er ekki kynhlutverkaklisjusteríótípumiðuð.

Er enginn að fá kast yfir þessu nema ég?

ARG

Annars góð. Hehe!

Gamanaðessu.

Á morgun mun ég pirringsjafna og verða eins ljúf og konurnar í dömubindaauglýsingunum.  Lofa.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Marta B Helgadóttir

"Á morgun mun ég pirringsjafna"  

   - óborganleg!

Góða nótt Jenný mín

Marta B Helgadóttir, 29.5.2008 kl. 00:18

2 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Hlakka til að lesa pirringsjöfnun. Það hlýtur að verða ofurljúf og beinlínis væmin færsla eftir þessa gusu!

Ragnhildur Sverrisdóttir, 29.5.2008 kl. 00:24

3 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

hvaða hvaða. Ég er kollfallin fyrir stelpudagskránni.

Jóna Á. Gísladóttir, 29.5.2008 kl. 00:26

4 Smámynd: Eyrún Gísladóttir

Róa sig aðeins dúlla greys eru bara góðir þættir og sofðu nú vel í nótt svo þú vaknir ópirruð á morgun bara hress og kát eins og þú ert.hehehe

Eyrún Gísladóttir, 29.5.2008 kl. 00:27

5 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Vil hafa þig pirraða áfram Síðasta færsla var frábær

Sigrún Jónsdóttir, 29.5.2008 kl. 00:30

6 Smámynd: Steingrímur Helgason

Konudýr mitt gekk fetinu lengra, enda með sjálfstæða stórutá & sagði öllu 365 drazlinu upp, bara fyrir þessa ~kyngreinandi~ auglýzíngu & ég hágrét yfir því fyrir nokkrum færslum síðan.

Hún er líka mín uppáhalds 'femýnizdabelja' þó ekki sé verri vinstri græníngji, & framkvæmir hlutina, nennir því, stendur við meinínguna 24/7, frekar en að kúka yfir kúk í horni.

Enda elska ég hana undurheitt.

Steingrímur Helgason, 29.5.2008 kl. 00:36

7 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

Jebb...geri eins og þú, pirrast heil ósköp út í þessa fja...stelpu dagskrá en segi ekki upp áskrift.....

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 29.5.2008 kl. 00:40

8 Smámynd: Kolgrima

Hmm..hef aldrei haft þessa stöð og veit ekki um hvaða þætti þú ert að tala.. en hlakka til að lesa pirringsjöfnunina á morgun

Kolgrima, 29.5.2008 kl. 00:48

9 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Pirringsjöfnun? Það hlýtur að vera lyfjatengt, ég get bara jafnað út pirringin með lyfjum eða vera í 35 stiga hita!

Edda Agnarsdóttir, 29.5.2008 kl. 01:12

10 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Ahh, Gurrí hin spengilega sportkona með meiru á Skaga, hefur nú margoft tekið þetta fyrir, mér finnst þú nú svolítið sein að byrja fyrst nú að bölsótast!

En vel að merkja, hefur ekki tekið eftir þessu fyrr.

Magnús Geir Guðmundsson, 29.5.2008 kl. 01:36

11 identicon

Þú ert svo sannarlega ekki ein um að pirrast yfir þessu! Skjár 1 var einmitt að auglýsa heilt stelpusumar þar sem dagskráin virðist einkennast af einhverjum grínþáttum um feita karla og lífsleiðar eiginkonur þeirra og svo eru herlegheitin kórónuð með þáttaröð um vændiskonu í London! Ég er með brjóst og þá hlýt ég að vilja horfa á þátt sem að sýnir vændi sem skemmtilegt og gefandi starf!! Arrgggh!

Emelía (IP-tala skráð) 29.5.2008 kl. 01:40

12 Smámynd: Lilja G. Bolladóttir

Hey hey, stelpur mínar, munið að næsti vinningsleikur hjá LU-kexi er handan við hornið. Þá getum við tekið gleði okkar!!

Lilja G. Bolladóttir, 29.5.2008 kl. 01:47

13 Smámynd: Berglind Nanna Ólínudóttir

Ég er með lausnina á þessu vandamáli Jenný mín! Sleppa bara að kveikja á sjónvarpinu!!! Er ekki með áskrift að 365, ekki vegna þess að ég væri ekki til í það í sjálfu sér, en er svo "heppin" að búa í Hafnarfirði, þar sem íbúar áttu kapalkerfi til skamms tíma, og því engin loftnet í þessum bæ (allavega sárafá). En einhverjum snillingnum í bæjarstjórn datt í hug að selja Rafveitu Hafnarfjarðar (þjónustuaðila á kapalkerfið) til Hitaveitu Suðurnesja, og einhverra hluta vegna fylgdi kapalkerfið eins og það lagði sig með í kaupunum! Enn að velta fyrir mér hvernig þetta var hægt, og hvers vegna ekkert hefur heyrst um málið opinberlega. HS tók sig svo til og seldi kapalinn Símanum, sem innlimaði hann með pomp og pragt inn í breiðbandskerfið sitt. Þannig að til að geta séð 365 miðla þarf ég að versla við Símann, og það er bara LAAAAAAAAANGT fyrir neðan mína virðingu!

Svo lausnin, Jenný mín, er bara að slökkva á imbanum, og taka upp handavinnuna, og græja eitthvað gott á geislann!!!!

Knús á þig. 

Berglind Nanna Ólínudóttir, 29.5.2008 kl. 03:22

14 Smámynd: Berglind Nanna Ólínudóttir

P.S. Hlakka líka ógjó mikið til að lesa pirringsjöfnunina!

Berglind Nanna Ólínudóttir, 29.5.2008 kl. 03:23

15 Smámynd: María Guðmundsdóttir

þoli ekki svona "stelpustimplun"...við erum bara hreint ekkert allar eins og höfum ekkert allar gaman að sömu þáttunum í sjónvarpinu stórt FRUSSSSS bara...en já,bíð lika spennt eftir pirringsjöfnuninni...

María Guðmundsdóttir, 29.5.2008 kl. 07:46

16 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Jamms, get orðið brjáluð á þessu. Hef alveg gaman af t.d. Grey´s Anatomy en það hefur sonurinn líka. Ég sit líka stjörf yfir spennuþáttum á borð við Shield, EM í fótbolta og HM í fótbolta, Formúlu og fannst hún svo sæt "stelpumyndin" The Note Book. Hef gaman af stjórnmálaþáttum og bókaþáttum og gamanmyndum og .... ja, skiptir ekki máli en ég þoli ekki þegar á að troða mér inn í staðalímyndapakka Stöðvar 2 og horfa bara á krúttlegheit á meðan "maðurinn minn" horfir á fótbolta, eða sem uppbót fyrir að hann fái boltann. Skilaboðin eru: Stelpur mínar, verðið þið bara þarna, sætu kjánaprikin ykkar, rómantíska deildin hentar ykkur. Ekki er gert ráð fyrir að konur hafi kannski ögn fjölbreyttari smekk en að sitja í sífellu yfir tilfinningaflækjum.

Ég veit ekki hvaða "bjánar" bjuggu til auglýsingaherferð úr þessu, bæði hjá Stöð 2 og SkjáEinum, og skil ekki af hverju strákar láta ekkert í sér heyra. Ekki hafa þeir allir áhuga á fótbolta, síður en svo. Varla vilja þeir að okkur stelpunum sé endalaust troðið inn í tilfinningapakka, eða hvað?

Ég bloggaði nýlega um þetta og gerði ráð fyrir að þeir sem stæðu fyrir þessu héldu að reynsluheimur kvenna væri svona eins og í Lu-auglýsingunni þar sem konukjánar hafa ekkert við tíma sinn að gera nema hanga yfir sjónvarpinu og gráta yfir að vinna ekkert í kexleik. Fínt kex, hræðileg auglýsing. Ég fékk málefnalegt komment um að ég ætti að hætta að vera svona beisk og öfundsjúk út í fallegu konurnar í auglýsingunni. Þá var mér nú soldið skemmt! Við eigum greinilega svolítið langt í land með að breyta hugarfari þeirra sem stjórna eins og t.d. dagskránni sjónvarpsstöðvanna, nema RÚV. Angi af þessu stelpukjaftæði eru miðvikudagskvöldin á Stöð 2, þá er dagskráin frekar kvenmiðuð: Greys Anatomy, Medium (spennuþáttur með kéddíngum í aðalhlutverki og "mjúkum" manni) og svo Oprah ... 

Sorrí, ætlaði ekki að blogga á blogginu þínu, missti mig aðeins! 

Guðríður Haraldsdóttir, 29.5.2008 kl. 08:29

17 Smámynd: Linda litla

Ég er sammála þér... á stöð 2 er ákveðið að allar konur vilji spítalaþætti og rómantík....

Er ekki með stöð 2.... sleppi pirringnum.

Linda litla, 29.5.2008 kl. 08:32

18 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Já, ég er sko ekkert hætt. Angi af Strákastöð er enn á þriðjudagskvöldum á Stöð 2 (þriðjudagskvöldið hétu Strákastöð). Nú er spennuþáttur, Kompás og 60 mínútur, svona efni sem höfðar væntanlega til karla ... um þjóðfélagsmálin og svona. Ég er ekki í krúttkasti yfir þessu. Knús í bæinn.

Guðríður Haraldsdóttir, 29.5.2008 kl. 08:34

19 Smámynd: Unnur R. H.

Bara ljúft að við kellur fáum sérefni fyrir okkur Og til að toppa það þá er skjár 1 líka svona elskulegur við okkur og byrjar sína stelpuvakt á föstudaginn

Unnur R. H., 29.5.2008 kl. 08:59

20 identicon

Tæp70 þúsund krónur á ári miðað við núverandi ástand,kostar að vera bara með st 2.Horfi sjaldan á sjónvarp.Svo mér er slétt sama um stelpukvöld,fótboltakvöld eða sjónvarpskvöld yfirleitt.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 29.5.2008 kl. 09:20

21 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Góðan og glaðan pirringsjöfnunardag !

Stelpusumarsauglýsingarnar á Stöð 2 eru búnar að fara í taugarnar á mér frá upphafi....! Ég ætla að horfa á EM í fótbolta og fjöldamorðingjamyndir á meðan stelpusumarið gengur yfir !

Sunna Dóra Möller, 29.5.2008 kl. 09:37

22 identicon

Ég er nú meira að pirra mig á því af hverju það er ekkert sýnt af kvennalandsliðinu í fótbolta, bara karla. Ég horfi nú ekki mikið á fótbolta en finnst það helvíti slæmt að eftir allt þetta púl sem þær leggja á sig, að þær fá ekki vott af viðurkenningu í sjónvarpinu. Love u mamma

Sara Einarsdóttir (IP-tala skráð) 29.5.2008 kl. 10:11

23 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þið drepið mig.

Magnús Geir: Auðvitað var ég búin að heyra um stelpustöðina en ég hafði ekki pælt í því eða kannað málið af því ég var ekkert að fylgjast með.  En þegar ég svo settist fyrir framan sjónvarpið í kvöld og sá dagskrána ásamt heilsíðuauglýsingu í bleikum sétteringum í einhverju blaðinu, sá ég rautt.

Gurrí: Hahaha, skil þig vúman.  Gey´s er ágætur.  Ég súa þeim sem kallar þriðjudagskvöldin á Stöð 2 strákakvöld, það eru einu kvöldin sem ég sest örugglega fyrir framan sjónvarpið.

Sara: Sammála, strákaboltinn (líka þegar hann er uberlélegur), er sýndur.  Love u 2.

Jenný Anna Baldursdóttir, 29.5.2008 kl. 10:15

24 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Sko - þetta er svona álíka og fullyrðingarnar og í Hellisbúanum um hvernig konur ERU og hvernig karlar eru. Miðað við það er ég meiri karl en kona og er því afbrigðileg kona... 

Ég viðurkenni alveg að sumir þættir höfða yfirleitt meira til kvenna og sumir til karla, en það er hálf neyðó fyrir þá karla en það er bara ákveðin prósenta.. Hvað með karla sem hafa gaman af ,,konukvöldunum" upplifa þeir sig afbrigðilega karla ??... Æ bara svona að pæla.

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 29.5.2008 kl. 10:27

25 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jóhanna: Við erum með svo ólíkan smekk mannfólkið, en þessar steríótýpur sem þeir eru að búa til þarna á sjónvarpsstöðinni eru frekar hallærislegar og töluvert afturhvarf til fortíðar.

Steingrímur: Konan þín er flott.

Jenný Anna Baldursdóttir, 29.5.2008 kl. 10:49

26 identicon

Mikið rosalega getur þessi feminismi verið þunglyndisvaldandi.  Að upplifa hann svona í gegnum ykkur er alveg einstaklega neikvætt og niðurbrjótandi fyrir mig.

Vá hvað ég er ánægður að eiga eðlilega konu sem er hress, glöð, jákvæð, framsýn, dugleg, frumkvöðull, uppfinningamaður, jafnlynd, með fullkomna stjórn á skapi sínu og skilningsrík út í gildi og þarfir annarra.

Fyrir mér er þetta hræðilegur heimur sem feministar lifa í.  Heimur neikvæðni, undirferli og sorglegra atburða.  Gríðarlega depressing upplifun.

Logi (IP-tala skráð) 29.5.2008 kl. 11:24

27 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Dona, dona, Logi minn.  Konur (lesist femínistar) geta auðvitað ekki haft þessa jákvæðu eiginleika sem þú nefnir í fari kvenna.  Sniðug skilgreining.

Nú er bara að drífa sig í sveitina og ná upp hinu andlega jafnvægi.

Jenný Anna Baldursdóttir, 29.5.2008 kl. 12:16

28 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Æ, góði Logi minn. Það má gagnrýna það sem rangt er og lifa í leiðinni góðu og innihaldsríku lífi. Mér finnst fótbolti skemmtilegur og vil ekki að sjónvarpsstöð reyni að stýra smekk mínum í annan hátt af því að ég er kona.

Guðríður Haraldsdóttir, 29.5.2008 kl. 19:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 2985770

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband