Leita í fréttum mbl.is

Og ég vissi það

Hillary_vs_Obama 

Ég elska að fylgjast með kosningum og aðdraganda þeirra að sjálfsögðu.  Ef ég sest niður við sjónvarpið (túbuna þið munið) á kvöldin, horfi ég á CNN og fleiri stöðvar fjalla um komandi forsetakosningar í USA.

Og ég hef komist að þeirri niðurstöðu að í nóvember verði dálítið erfitt að vera hvítur karlmaður á miðjum aldri, í góðri vinnu, með hús, konu, börn og bíl, verandi demókrati í þokkabót.

Valkostirnir eru ekki beysnir fyrir þennan holdgerving ameríska draumsins.

Hvað stendur manninum til boða sem svona er ástatt um?

Jú lengi vel kom til greina að það yrði hvít kona, forrík og að margra mati ísköld tæfa (ekki mín skoðun, en hafið þið horft á Fox?), eða svartur karlmaður, forríkur og með vafasama fortíð í trúmálum.

Það krimtir nú eiginlega í mér af því stundum er skrattanum skemmt.

Fyrir ári síðan, þegar öll vötn runnu til Hillary, sagði ég einhvers staðar að það myndi saxast af henni fylgið þegar nær drægi kosningum.   Mig grunaði að það væri ekki alveg komið að því að strákarnir helyptu Hillary í Hvíta Húsið.  Og ég hafði rétt fyrir mér.

Þegar allt kemur til alls, standa þeir saman karlarnir,  jafnvel þó litasétteringin á bróðurnum sé ekki alveg eftir bókinni.

Súmí.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

þeir afsaka sig með því að bróðirinn ólst upp hjá hvítri fjölskyldu

Jóna Á. Gísladóttir, 28.5.2008 kl. 01:05

2 Smámynd: Linda litla

Kveðja inn í nóttina.....

Linda litla, 28.5.2008 kl. 01:07

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jóna: Það breytir öllu

Linda: Sömuleiðis honní.

Jenný Anna Baldursdóttir, 28.5.2008 kl. 01:13

4 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Ég hélt að þú værir að lýsa mér þangað til þú nefndi demókrati en það er ég víst ekki, ég er bara í Frjálslynda flokknum.

En hvað um það þá finnst mér þessir tveir kostir líklega með því skásta sem bandarískum kjósendum hefur verið boðið upp á lengi. Ég skal alveg viðurkenna að það gæti út af fyrir sig verið gaman að fá konu í þetta valdamesta embætti í heimi. En með hliðsjón af pólitískum skoðunum beggja er ég ekki í vafa um að ég myndi heldur velja Obama. Hann studdi ekki Íraksstríðið og er líklegri til að virða mannréttindi og stuðla að friði. Ef hann gerir það  má hann mín vegna trúa hverju sem hann vill.

Sigurður Þórðarson, 28.5.2008 kl. 01:17

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Mér hugnast ágætlega bæði tvö.  En face it þetta eru auðvitað hægri menn sem ég vildi ekki sjá í íslenskri pólitík en á Fox eru þau skilgreind sem radical lefties.  Ójá.

Jenný Anna Baldursdóttir, 28.5.2008 kl. 01:20

6 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Er Hilarý búin að tapa?  Ég held með henni

Sigrún Jónsdóttir, 28.5.2008 kl. 01:21

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Nei, ekki búin að tapa, en nánast engar líkur á að hún hljóti útnefningu. 

Jenný Anna Baldursdóttir, 28.5.2008 kl. 01:37

8 Smámynd: Eva Benjamínsdóttir

Hillary verður bara að taka þetta, og ekki láta pína sig til uppgjafar...það er vont.

Varð að líta við Jenný mín, þó pr. og kvikmyndastörf hafi átt allan minn tíma að undanförnu.  Saknaði þinna góðu pistla. Gangi þér vel

Eva Benjamínsdóttir, 28.5.2008 kl. 01:55

9 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Strákarnir standa alltaf saman.......Ætli skýringin væri ekki sú að heimurinn væri ekki tilbúin fyrir konu á forsetastóli USA...rétt eins og að Íslendingar voru ekki tilbúnir fyrir kvenbiskup þegar Auður Eir bauð sig fram 1997 þegar Karl var kosinn......það var alla vega skýringin þá og er eflaust notuð enn við ýmis hátíðleg tækifæri !

Eigðu góðan dag !

Sunna Dóra Möller, 28.5.2008 kl. 08:55

10 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Takk fyrir komment. Heimurinn er ekki tilbúinn fyrir konur á æðstu póstum.  Glerþakið þið munið.

Njótið dagsins.

Jenný Anna Baldursdóttir, 28.5.2008 kl. 09:16

11 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Hm ég er ekki ánægð með þróun mála. Ég held að þetta sé fjölskyldurasimi - Hillary er ekki ung með smábörn - Obama á fagra konu og tvær litlar hnátur - ímynd  USA

Edda Agnarsdóttir, 28.5.2008 kl. 09:20

12 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Þetta eru ekki sanngjörn komment frá ykkur stelpur. Ég tók það fram að að öðru jöfnu hefði ég frekar kosið Hillary vegna þess að hún er kona. Hún er vel menntuð, greind og flottur frambjóðandi. 

Hún er bara full mikill hernaðarsinni fyrir minn smekk. Það er eiginlega komið gott af slíku í bili í þetta embætti.

En þið þurfið ekki að hafa áhyggjur ég hef ekki kosningarétt þarna og ekki sendur til að breyta því. 

Sigurður Þórðarson, 28.5.2008 kl. 19:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 2985770

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband