Leita í fréttum mbl.is

Örmagna en kúl

Sjálfri mér trú og til að þurfa ekki að gleypa í mig allar fullyrðingar mínar um að ég muni að þessu sinni hanga intúitt yfir Júró, þá gerði ég einmitt það, frá byrjun til enda.  Og sannast sagna er ég úrvinda eftir afrekið.

Ég ákvað að líta á þetta sem sjó, ekki tónleika.  Guði sé lof.  Það vorum margir í töff skóm í keppninni.  Það linaði sársaukann í eyrunum. 

Ég vona að okkar riðill sé skárri en þessi, hlýtur eiginlega að vera af því við erum þar og Charlotta Perrelli (hún heitir Anna Jenny Charlotta, ég næ ekki upp í nef).  Ásamt Danmörku, það hlýtur að ganga.

Þvílíkar tónsmíðar.  Stundum hélt ég að það væri verið að endursýna tuttugu ára framlög, ég sver það.

En..

Armenía var lúmskt töff.  Gæti unnið.

Fínnland: Hversu oft er hægt að segja sama brandarann?

Noregur: Ég fann ekkert út úr melódíunni fyrr en í síðasta viðlagi.

Rússland: Gæinn reif sig úr að ofan í restina.  Þar með fór hans síðasta kartafla í mínum garði fyrir lítið.

Írland: Úff.

Og svo man ég ekki meir.  Jú Grikkland var smá líkt Armeníu minnir mig.

Þetta var sum sé ordíl ef ekki hefði verið fyrir skótauið.

Ég veðja á Armeníu.  Gætu unnið, þ.e. ef Sverige taka þetta ekki - nú eða við, god forbid.

Jú og Bosnía-Herzigovina voru megakrútt.

En ég stóð mína pligt.

Djö sem ég er mikill harðsoðningur.

Úje.

Armenía gjörsvovel!

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Linda litla

Sá þetta ekki. Missti ekki heldur af því , hafði ekki hugmynd um að þetta væri. En ég verð bara sammála þér... Armenía vinnur  hvernig sem lagið er......

Linda litla, 20.5.2008 kl. 21:35

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Grikkland er með þrusurödd!

Hrönn Sigurðardóttir, 20.5.2008 kl. 21:35

3 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

en stærsti kosturinn...þetta tók fljótt af. ekki nema rúmur klukkutími.

Brjánn Guðjónsson, 20.5.2008 kl. 21:38

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Linda: Til hvers heldur þú að ég sé að setja inn myndbönd hérna?  Það er til fræðslu fyrir ykkur aulinn þinn  Hlusta.

Grikkland: Já var það ekki?

Brjánn: Segðu.

Jenný Anna Baldursdóttir, 20.5.2008 kl. 21:42

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hahaha, er ég að hafa þessar Jórósamræður?  Mig er að dreyma?  Hahahahahaha.  En Armenía var með seiðandi lag og góðan takt.  Það er meira en hægt er að segja um meiripartinn af þessum riðli minn góði egó.

Jenný Anna Baldursdóttir, 20.5.2008 kl. 21:51

6 Smámynd: Signý

Mér þykir það nú merkilegast að fólk skuli yfir höfuð hafa fundið eitt lag í þessari undankeppni sem hlustandi er á án þess að manni langi til þess að stökkva niður af svölunum...

Áfram Frakkland!

Signý, 20.5.2008 kl. 21:57

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Dúa, ég pissa á mig.  Stytturnar af landvættunum.  ARG

Jenný Anna Baldursdóttir, 20.5.2008 kl. 22:27

8 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Dúa! Ég hélt að öllu hefði verið umvarpað bara fyrir júróvisíonnördinn í þér!! Svo veistu ekki einu sinni hvaða kvöld þú átt að syngja?? Díj!

Góð mynd af þér samt - krúttið mitt

Hrönn Sigurðardóttir, 20.5.2008 kl. 22:34

9 Smámynd: Valgerður Sigurðardóttir

Armenía gæti alveg eins tekið þetta. Fyrir mína parta verð ég alltaf jafn glöð þegar að maður sér stelpur sem geta verið í fötum á sviðinu, eru ekki sprangandi um á nærbrókunum einum

Valgerður Sigurðardóttir, 20.5.2008 kl. 22:34

10 identicon

Var "sokkabrúðan"ekki fyrir Írland? þetta lag minnir mig á Ruslönu sem vann hér um árið

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 20.5.2008 kl. 22:45

11 Smámynd: Huld S. Ringsted

Ég missti af þessu en samkvæmt því sem þú segir þá missti ég kannski ekki af miklu. En þetta lag á myndbandinu er ekki "my cup of tea"

Huld S. Ringsted, 20.5.2008 kl. 22:45

12 Smámynd: Tiger

Mér fannst þessi keppni svo sem í lagi, en ekkert lag heillaði mig hérna samt. Er þó ánægður með að kalkúninn komst ekki lengra .. alveg nógu mikið skrípó í keppninni fyrir sko.

Eigðu ljúfa nótt mín kæra og fagra drauma..

Tiger, 20.5.2008 kl. 23:08

13 Smámynd: Eyrún Gísladóttir

Ég horfði ekki einu sinni á í kvöld nota frasan þinn ffrrrrrruuuuuuuussss. hehe.

Eyrún Gísladóttir, 20.5.2008 kl. 23:27

14 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Horfði á keppnina en missti af úrslitunum, varð að fara að svæfa smábarnið, skæruliðan minn. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 20.5.2008 kl. 23:43

15 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Þetta var óxla skemmtilegt, mér fannst reyndar norska lagið fínt, addna! Annars er ég heilluð af franska laginu, finnst það dásamlegt og vona að það sigri. Úps, ég meina auðvitað það íslenska ...

Guðríður Haraldsdóttir, 21.5.2008 kl. 00:16

16 Smámynd: Andrea

Ég sá bara tvö lög -  einhvern fiðurfénað sem gat hafa verið kalkúnn eða eitthvað álíka. Gæti líka hafa verið steindauð álft , bíttar ekki skipti! Var hræðilegt!
En Bosnía Herzegovkannekkiaðskrifa fannst mér alveg þrusuflott!

Andrea, 21.5.2008 kl. 00:21

17 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Það er bara ekki kveikt á sjónvarpinu í mínu húsi þessa dagana og vikurnar og auk þess er ég að vinna á kvöldin þessa viku.... Einu lögin sem ég heyrt fyrir utan íslenska er hérna á þessu fræðslubloggi ! Takk fyrir það Jenný mín

Jónína Dúadóttir, 21.5.2008 kl. 07:10

18 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Góðar stelpur.

Búkolla: Ég held líka með Ítalíu.  Dedd á því.

Hallgerður: Hefðirðu mig til að syngja þig í svefn vúman, sæir þú fram á svefnlausar nætur

Jónína: Gott að ég hef tilgang.  Muhahahaha

Andrea: Bosníu-Herze eitthvað var svo leikrænt og skemmtilega flutt, en sjálft lagið man ég ekki.

Gurrí: Megi Frans vinna, ættingjar mínir sko.

Og að lokum til að pakka þessu Júródæmi saman, þá er mér svo sama um þessa keppni sko.  En þetta er ágætis tímaþjófur á verkefnalausum kvöldum.

Love u guys.

Ásthildur: Tek það fram yfir Júró anytime að svæfa litla skæruliða.

Og þið allar, takk fyrir innlegg.

Jenný Anna Baldursdóttir, 21.5.2008 kl. 07:56

19 Smámynd: Linda litla

Ég er bilaða hátalara við tölvuna, þannig að ég get horft á myndböndin og búið...... gæti kannski reynt að ímynda mér hvernig lagið er..

Linda litla, 21.5.2008 kl. 08:11

20 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Dúa!! Vissirðu það ekki??

Hrönn Sigurðardóttir, 21.5.2008 kl. 19:30

21 Smámynd: halkatla

sko þetta gastu!

halkatla, 22.5.2008 kl. 10:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 2985887

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband